Morgunblaðið - 05.03.2011, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
Ný finnsk rann-
sókn bendir til
þess að sæðis-
magn hafi minnk-
að hjá karl-
mönnum á
síðustu árum en
tíðni eistna-
krabbameins hafi
aukist. Vísinda-
menn telja að
þetta megi rekja
til breytinga í umhverfinu, m.a.
sterkra iðnaðarefna.
Hópur finnskra karlmanna á aldr-
inum 24-32 ára var rannsakaður þar
sem áður hafði verið sýnt fram á að
sæðismagn finnskra karlmanna var
með því mesta í heiminum. Niður-
staðan var sú að yngri mennirnir
höfðu minna sæðismagn en þeir
eldri. Samanburður við karla fædda
1950 leiddi í ljós að tíðni eistna-
krabbameins var hærri hjá þeim
sem voru fæddir í kringum 1980.
Vísindamennirnir sem stóðu að
rannsókninni sögðu að niðurstöður
hennar sýndu fram á mikilvægi þess
að grípa til forvarnaraðgerða. Þar
sem allt benti til þess að breyting-
arnar mætti rekja til þátta í um-
hverfinu ætti að vera mögulegt að
snúa þróuninni við.
Sæðismagn
hefur
minnkað
Sæðið á í vök að
verjast.
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
„Við berjumst til sigurs eða dauða,“
segja uppreisnarmenn í austurhluta
Líbíu og ljá ekki máls á viðræðum við
Muammar Gaddafi nema hann fallist á
að láta af völdum.
„Við hættum ekki fyrr en við höfum
frelsað allt landið,“ sagði Mustafa Ab-
del Jalil, sem fer fyrir bráðabirgða-
stjórn uppreisnarmanna í Benghazi,
næststærstu borg Líbíu. Jalil var
dómsmálaráðherra landsins en sagði
af sér til að mótmæla árásum liðs-
manna Gaddafis á óvopnaða mótmæl-
endur þegar mótmælin gegn honum
hófust fyrir hálfum mánuði.
Sérfræðingar í málefnum Líbíu
segja að erfitt sé að meta styrk upp-
reisnarmannanna sem hafa náð nær
öllum eystri helmingi landsins á sitt
vald. Hermt er að margir hermenn í
austurhlutanum hafi snúist á sveif með
uppreisnarmönnunum en fréttirnar
eru mjög óljósar. Ekki er vitað hversu
margir liðhlauparnir eru, hversu
margir hermenn biðu bana í átökunum
eða flúðu til herstöðva vestan við yf-
irráðasvæði uppreisnarmanna. Óljóst
er einnig hversu öflug vopn þeir skildu
eftir í austurhlutanum.
Hermt er að herforingjar úr röðum
liðhlaupanna fari nú fyrir um það bil
10.000 manna uppreisnarliði í austur-
hlutanum. Flestir þeirra eru óþjálfaðir
sjálfboðaliðar, að sögn fréttaveitunnar
AFP.
Fréttaskýrandi BBC, Kevin Conn-
olly, segir að aðeins örfáir herir í heim-
inum hafi bolmagn til að flytja svo fjöl-
mennt lið yfir víðáttumiklar
eyðimerkur Líbíu með öllum þeim
búnaði sem uppreisnarmennirnir
þurfa til að geta gert sér vonir um að
ná höfuðborginni Tripolí á sitt vald.
Það tæki mánuði að búa uppreisnar-
liðið undir slíka sókn og kostnaðurinn
yrði mjög mikill.
Ættbálkarnir mikilvægir
Ranj Alaaldin, sérfræðingur í mál-
efnum Mið-Austurlanda, telur að örlög
Muammars Gaddafis geti ráðist af af-
stöðu áhrifamestu ættbálkahöfðingj-
anna í Líbíu. Hann segir að Gaddafi
hafi á síðustu áratugum sýnt mikil
klókindi til að tryggja sér stuðning
leiðtoga stærstu ættbálkanna og m.a.
notað olíuauð landsins í þeim tilgangi.
Gaddafi getur nú ekki lengur reitt
sig á þennan stuðning því leiðtogar
nokkurra ættbálka hafa snúist á sveif
með uppreisnarmönnunum, þeirra á
meðal höfðingjar tveggja stærstu ætt-
bálkanna. Um milljón manna er í öðr-
um þeirra, warfala, flestir þeirra í
borgunum Bani Walid, Tripolí og
Benghazi. Tæp milljón er í hinum ætt-
bálkinum, þar af um
350.000 í höfuð-
borginni.
Nokkrir aðr-
ir ættbálkar
hafa snúið baki
við Gaddafi,
þeirra á meðal
ættbálkur fyrrverandi innanríkisráð-
herra Líbíu sem sagði af sér eftir að
uppreisnin hófst og kvaðst hafa sann-
anir fyrir því að einræðisherrann hefði
fyrirskipað hryðjuverkið yfir skoska
bænum Lockerbie árið 1988 þegar
þota var sprengd í loft upp með þeim
afleiðingum að 270 manns létu lífið.
Annar ættbálkur á einu olíusvæðanna
hefur hótað að stöðva olíuútflutning til
Vesturlanda ef liðsmenn Gaddafis
hætta ekki árásum á andstæðinga
hans.
Alaaldin segir í grein í The Tele-
graph að mikilvægt sé að styðja þessa
ættbálka, m.a. með því að sjá þeim fyr-
ir vopnum og aðstoða þá við að skipu-
leggja baráttuna gegn Gaddafi. Ætt-
bálkaleiðtogarnir séu best til þess
fallnir að koma í veg fyrir glundroða í
landinu og sameina þjóðina í uppreisn-
inni.
Ættbálkar gætu ráðið úrslitum
Reuters
Leiðtoginn Mustafa Abdel Jalil, sem fer fyrir bráðabirgðastjórn uppreisnarmanna í Líbíu, tekur þátt í föstudags-
bænum í bæ sem nefnist Beyda. Jalil var dómsmálaráðherra en sagði af sér til að mótmæla árásum á mótmælendur.
Gaddafi hefur misst stuðning áhrifamikilla ættbálkahöfðingja í Líbíu Talið er að það geti tekið
mánuði að undirbúa sókn uppreisnarmanna að höfuðborginni og flytja allan liðsaflann yfir eyðimörkina
Heimild: IISS
HER LÍBÍU
50.000
8.000
18.000
2.205
2
3
1.945
2.421
14
227
120
216+
216
76.000
40.000
Skriðdrekar
Kafbátar
Herskip
Brynvagnar
Stórskotatæki
Landher
Sjóher
Orrustuþotur/
Sprengjuflugvélar
Þyrlur
Þyrlur
Loftvarnaflaugar
Stórskota-
vopn
Lofther
Loftvarnir
Fjöldi hermanna
fyrir uppreisnina
Öryggissveitir
Utanríkisráðherra Japans lét í ljósi
miklar áhyggjur af vaxandi herút-
gjöldum Kína eftir að skýrt var frá
því í gær að þau yrðu aukin um
12,7% í ár.
Li Xhaoxing, talsmaður kínverska
þingsins, sagði að herútgjöldin á
fjárhagsárinu 2011 myndu nema um
6% af heildarútgjöldum kínverska
ríkisins. „Þetta er mjög hátt hlut-
fall,“ sagði Seiji Maehara, utanríkis-
ráðherra Japans. „Við getum ekki
annað en velt því fyrir okkur hvernig
allir þessir peningar eru notaðir. Við
höfum miklar áhyggjur af málinu.“
Varnarmálaráðherra Indlands
hefur einnig látið í ljósi áhyggjur af
vaxandi hernaðarmætti Kína.
Talsmaður kínverska þingsins
sagði að herútgjöldin í Kína væru
„tiltölulega lítil“ sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu miðað við
önnur ríki heims.
Herútgjöldin í Kína jukust um
meira en 10% milli ára í mörg ár þar
til á síðasta ári þegar þau jukust um
7,5%. Stjórnvöld í grannríkjunum,
Bandaríkjunum og fleiri löndum
hafa lengi haft áhyggjur af þessari
þróun en Kínverjar segja að mark-
miðið með auknum herútgjöldum sé
aðeins að efla varnir landsins.
Sérfræðingar í varnarmálum
segja að útgjöld Kína séu í raun
miklu meiri en sagt er í fjárlögum
landsins. Willy Lam, varnarmálasér-
fræðingur í Hong Kong, segir að
herútgjöldin samkvæmt opinberu
fjárlögunum séu í raun aðeins um
þriðjungur eða helmingur af raun-
verulegum herútgjöldum Kína. „Það
að útgjöldin skuli nú aftur hækka um
tveggja stafa tölu endurspeglar vax-
andi mátt kínverska hersins,“ hafði
fréttaveitan AFP eftir Lam. „Kín-
verski herinn er að reyna að vinna
upp forskot Bandaríkjanna og Rúss-
lands.“
Taívanskir varnarmálasérfræð-
ingar telja að meira en 1.600 eld-
flaugum kínverska hersins sé miðað
á Taívan. bogi@mbl.is
Hafa áhyggjur af
stórauknum her-
útgjöldum Kína
Sögð eiga að aukast um 12,7% í ár
0$
20$
40$
60$
80$
100$
Heimildir: Reuters, International Institute for Strategic Studies, globalsecurity.org,
Alþjóðlega friðarrannsóknastofnunin í Stokkhólmi, Bandaríkjaher.
* Talan nær ekki yfir milljón manna varalið kínverska hersins og 800.000 manna vopnað lögreglulið.
** Landherir Kína, Bandaríkjanna og Rússlands ráða einnig yfir orrustuþotum.
*** Tölurnar um herskip í Kína og Rússlandi byggjast aðallega á mati sérfræðinga.
HERÚTGJÖLD Í KÍNA SAMKVÆMT FJÁRLÖGUM
í milljörðum dollara
‘00 ‘01 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11
14,6 17
20 22,3 25
29,5
34,9
45
61,1
70,2
81
91,5
Kínversk herþota
sem sést ekki á ratsjá
2011
Aukast
um 12,7%
Kína Rússland
Bandaríkin
533,8 milljarðar $ 91,5ma. $
61
ma. $
MIÐAÐ VIÐ ÖNNUR LÖND (byggist á tölum frá síðasta ári nema annað sé tekið fram)
2011
Bandaríkin
1,58 millj.
Kína
2,3 millj.*
Rússland
1,03 millj.
HERMENNHERÚTGJÖLD
Kína
Bandaríkin
Rússland
Herflugvélar
lofthers**
Kafbátar Flug-móðurskip
KjarnaoddarTundur-
spillar
FreigáturBeitiskip
400
7.900
14.000
0
11
1
63
71
67
47
30
10
26
59
16
0
22
4
2.071+
2.300
2.400
Öryggissveitir beittu táragasi til
að dreifa hundruðum manna sem
efndu til mótmæla gegn Muammar
Gaddafi í Tripolí, höfuðborg Líbíu,
eftir föstudagsbænir í gær. Áður
höfðu leynilögreglan og stuðn-
ingsmenn Gaddafis reynt að
hindra mótmælin, m.a. stöðvað
bíla sem ekið var í áttina að mið-
borginni og lokað moskum.
Til átaka kom einnig í bænum
Zawiya, nálægt Tripolí, og hafnar-
bænum Ras Lanuf.
Fregnir hermdu að mikið mann-
fall hefði verið í hörðum átökum
milli uppreisnarmanna og stuðn-
ingsmanna Gaddafis í Ras Lanuf.
Ríkisfjölmiðlar í Líbíu skýrðu frá
því að liðsmenn Gaddafis hefðu
náð mestum hluta Zawiya á sitt
vald. Einn leiðtoga uppreisnar-
manna í Zawiya neitaði
þessu og sagði að liðsmenn
Gaddafis hefðu umkringt
bæinn. Herþotur gerðu
einnig árásir á bæinn
Ajdabiya á yfirráðasvæði
uppreisnarmanna.
Táragasi beitt í höfuðborginni
HART BARIST Í TVEIMUR BÆJUM Í LÍBÍU
Mótmælandi í
Tripolí.