Morgunblaðið - 05.03.2011, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
Samkvæmt frétt á
ruv.is telur Friðrik
Már að mikið sé gert
úr gengisáhættu vegna
Icesave III sam-
komulagsins. Hann tel-
ur réttilega að eignir
Landsbankans séu í er-
lendri mynt og skuldir
Tryggingasjóðs inni-
stæðueigenda séu jafn-
framt í erlendri mynt.
En það sem Friðrik nefnir ekki og er
algjört lykilatriði í gengisáhættu
vegna samningsins er að krafa
Tryggingasjóðsins á Landsbankann
er í íslenskum krónum, 673 millj-
arðar af krónum nánar til tekið.
20% veiking = 300% aukning
Ef við tökum raunhæft dæmi og
gefum okkur að krónan veikist um
20% og evran kosti þá 190 krónur þá
mun krafa Tryggingasjóðsins á
Landsbankann lækka í evrum talið
um 700 milljónir evra eða vel rúm-
lega 130 milljarða. Þetta er áhætta.
Gengi krónunnar hefur styrkst um
tæplega 20% síðustu mánuði og al-
veg eins líklegt að hún
veikist aftur. 20% veik-
ing mun auka kostnað
ríkisins úr 50 millj-
örðum í hátt í 200 millj-
arða.
Já = herða þarf á
gjaldeyrishöftum
Ef þjóðin samþykkir
Icesave III sam-
komulagið er ekki ein-
göngu verið að fram-
lengja gjaldeyrishöft í
landinu heldur neyðist
Seðlabankinn jafnframt til að
styrkja þau enn frekar þannig að
krónan veikist alls ekki neitt. Það er
hins vegar hagsmunamál fyrir þá er-
lendu aðila sem eiga skuldabréf
Landsbankans að krónan veikist, því
það myndi auka endurheimtur
þeirra. Í raun þarf Seðlabankinn að
negla niður gengi krónunnar.
Friðrik Már telur
veikingu ólíklega
Friðrik segir: „Raungengi krón-
unnar er mjög lágt, langt undir lang-
tímameðaltali núna. Það er erfitt að
sjá fyrir sér að það veikist mikið til
langframa að minnsta kosti“. Hins
vegar gefur gengi krónunnar fyrir
hrun enga vísbendingu um styrk
krónunnar í framtíðinni. Á fyrri ár-
um var viðskiptajöfnuður við útlönd
einstaklega neikvæður, í dag er
hann jákvæður en rétt slefar í það að
geta greitt vexti og afborganir af
lánum. Að ganga að því vísu að krón-
an styrkist er vafasamt.
Fyrri ummæli Friðriks
Í nóvember 2007 gaf Friðrik
ásamt Richard Portes út heilbrigð-
isvottorð fyrir íslenska bankakerfið.
Fyrir ári barðist Friðrik Már fyrir
samþykki Icesave II og mat þá
ranglega kostnaðinn. Nú fer Friðrik
Már með alvarlegar rangfærslur
varðandi Icesave III. Ummæli Frið-
riks Más, sem er forseti við-
skiptadeildar Háskólans í Reykja-
víkur, eru þess vegna að mínu mati
álitshnekkir fyrir skólann.
Eftir Örvar Guðna
Arnarson » 20% veiking mun
auka kostnað ríkis-
ins úr 50 milljörðum í
hátt í 200 milljarða.
Örvar Guðni Arnarson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Rangfærslur Friðriks Más
Vinstri grænir
höfðu uppi stór orð
um breytingar og
endurskoðun á fisk-
veiðistjórnunar-
kerfinu í aðdraganda
síðustu alþingiskosn-
inga. Þegar sjáv-
arútvegsráðherra var
í stjórnarandstöðu
flutti hann þingmál
ásamt núverandi
mannréttindaráðherra, Ögmundi
Jónassyni, núverandi formanni
sjávarútvegsnefndar, Atla Gísla-
syni, auk þingmanna Frjálslynda
flokksins, sem fól það í sér að
breyta stjórn fiskveiða í samræmi
við álit Mannréttindanefndar Sam-
einuðu þjóðanna. Framangreindir
þingmenn VG sem nú eru valda-
mestu menn Íslands sögðu afstöðu
sína þá að álit Mannréttinda-
nefndarinnar væri skuldbindandi
og að ríkinu bæri að bæta þeim
sjómönnum sem sóttu mál sitt og
ættu rétt á bótum.
Ekki ber á öðru en að þremenn-
ingarnir hafi skipt um skoðun við
það að setjast í mjúka valdastóla
og telji við sætaskipti sín réttlæt-
anlegt að virða fyrrgreint álit að
vettugi og að ríkið haldi áfram að
brjóta mannréttindi og níðast á
þeim sjómönnum sem
þeir áður vörðu. Eng-
inn af framangreind-
um ráðamönnum VG
hefur heldur haft
manndóm í sér til þess
að ræða við sjómenn-
ina sem þeir þóttust
berjast fyrir. Í raun
hafa sáralitlar breyt-
ingar orðið á stjórn
fiskveiða frá því að
VG fékk lyklavöldin í
sjávarútvegsráðuneyt-
inu. Loforð rík-
isstjórnarflokkanna um frjálsar
handfæraveiðar breyttist þegar til
átti að taka í ófrjálsar hand-
færaveiðar og nýbúinn á fiski-
miðum, makríllinn, var að mestu
settur inn í kerfið og landsmenn
standa ekki jafnfætis við nýtingu
hans. Nákvæmlega engin meining
virðist hafa verið á bak við þá ætl-
an Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs-
ráðherra að endurskoða fisk-
veiðiráðgjöfina þegar á hólminn
var komið.
Nýlega stóð sjávarútvegsráðu-
neytið fyrir „ráðstefnu“ um svo-
kallaða aflareglu sem tekin var í
notkun snemma á tíunda áratugn-
um og átti að leiða til aukins afla
þegar fram liðu stundir. Aflareglan
snerist sem vonlegt var upp í and-
hverfu sína enda gengur hún þvert
á viðtekna vistfræði. Þorskaflinn
nú er einungis helmingurinn af því
sem hann var áður en reglan var
tekin í notkun. Aflareglan og beit-
ing hennar þolir ekki neina mál-
efnalega gagnrýni og var það
tryggt við val á fyrirlesurum á
fyrrgreindri ráðstefnu að engum
gagnrýnisröddum væri hleypt að.
Vísindin ganga út á gagnrýna
hugsun og að spurt sé gagnrýn-
inna spurninga og segir það í raun
allt sem segja þarf um viðkomandi
ráðstefnu að gagnrýnisröddum var
ekki hleypt að. Ekki ætla ég
sjávarútvegsráðherra að vilja vís-
vitandi svíkja öll loforð um úrbæt-
ur en greinilegt er að stefna VG í
verki er allt önnur en sú sem boð-
uð var. Forysta VG hefur greini-
lega guggnað og hlýtur hún að
þurfa að gefa kjósendum ein-
hverjar skýringar á kjarkleysinu.
Vinstri grænir guggnuðu
Eftir Sigurjón
Þórðarson
» Vísindi ganga út á að
spurt sé gagnrýn-
inna spurninga og segir
það allt sem segja þarf
um ráðstefnuna að
gagnrýnisröddum var
ekki hleypt að.
Sigurjón Þórðarson
Höfundur er formaður Frjálslynda
flokksins.
Það er ekki til-
viljun að sumir ná
meiri árangri en aðr-
ir. Þeir sem ná ár-
angri hafa markmið
og ástríðu fyrir við-
fangsefninu sem knýr
þá áfram. Til að geta
nýtt þann kraft sem í
okkur býr verðum við
að einbeita okkur að
því hvert við erum að
stefna. Því ef við vit-
um ekki hvert við erum að fara þá
er líklegt að við endum þar sem
okkur langar alls ekki til að vera.
Maður sem nær árangri er með
markmið í huga og hugmynd um
hvernig á að ná því.
Þeir sem eiga sér metnaðarfulla
drauma ganga lengra en þeir sem
eiga sér metnaðarlausa drauma.
Mikilvægt er að skuldbinda sig
til að ná markmiðinu. Skuldbind-
ing gefur markmiðinu þýðingu, til-
gang og hvatningu sem gerir okk-
ur kleift að ná og viðhalda góðu
gengi.
Mikilvægt er að brjóta mark-
miðið niður í smærri einingar og
áþreifanleg skref í verkefnum okk-
ar. Þannig eru bækur skrifaðar orð
fyrir orð, blaðsíðu fyrir blaðsíðu,
kafla fyrir kafla uns bókin er klár.
Við þurfum líka að geta brugðist
við vonbrigðum á réttan hátt, því í
lífinu þurfum við að takast á við
bæði árangur og mótlæti.
Við þurfum að sýna sjálfsaga og
þrautseigju og gefast
ekki upp, sama hvað
gengur á, því þegar
komið er á leiðarenda
sér maður ekki eftir
erfiði ferðarinnar.
Gott er að treysta
öðrum líka fyrir mark-
miðinu en aðeins þeim
sem geta hjálpað okk-
ur að ná því með því
að veita okkur aðstoð,
hvatningu og upp-
örvun.
Gott er að sjá fyrir
sér mynd í huganum af því sem við
viljum vera, gera eða eiga og sjá
útkomuna fyrir okkur.
Það sem við hugsum mest um er
líklegast að muni gerast. Ef við
horfum á lífið jákvæðum augum
gerast jákvæðir hlutir. Sjón-
arhornið er það eina sem skilur á
milli svartsýnna og bjartsýnna.
Allir geta náð árangri ef aðeins
vilji, agi og skýrt markmið er fyrir
hendi.
Sá getur allt sem trúir!
Þeir sem ná árangri
eru með áætlun
Eftir Gísla Hvann-
dal Jakobsson
Gísli Hvanndal
Jakobsson
» Það er ekki tilviljun
að sumir ná meiri
árangri en aðrir. Þeir
sem ná árangri hafa
markmið og ástríðu fyr-
ir viðfangsefninu sem
knýr þá áfram.
Höfundur er nemi og blaðamaður.
Er með til sölu 127,6 fm, 4ra-5 herbergja hæð við Hagamel í Reykjavík.
Vel umgengin eign með sérinngang og vel viðhaldið. Húseignin öll lítur
afar vel út. Áhugaverð eign fyrir vandláta kaupendur. Getur verið laus með
litlum fyrirvara. Verð 36 milljónir.
Nánari upplýsingar veita Magnús 892 6000 og Hinrik 893 4191
Hagamelur – Vesturbær
VESTURHÚS 4
EINBÝLISHÚS Á ÚTSÝNISSTAÐ
OPIÐ HÚS Á MORGUN, SUNNUDAG
Eignin verður til sýnis,
sunnudag, frá kl. 14-16
Afar vandað um 265,0 fm einbýlishús á frábær-
um útsýnisstað í Grafarvoginum. Á efri hæð
eru m.a. glæsilegar stofur með arni og útgangi
á vestursvalir, eldhús með innréttingum úr
hlyni og 4 herbergi auk fataherbergis. Á neðri
hæð er séríbúð auk rýmis er fylgir efri hæð.
Ræktuð lóð með viðarverönd til suðurs og
hellulögðu bílaplani og stéttum. Verð tilboð.
Húsið stendur á einstökum útsýnisstað við
opið óbyggt svæði.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Morgunblaðið birtir alla útgáfu-
daga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér
rétt til að hafna greinum, stytta
texta í samráði við höfunda og
ákveða hvort grein birtist í um-
ræðunni eða í bréfum til blaðs-
ins.
Blaðið birtir ekki greinar, sem
eru skrifaðar fyrst og fremst til
að kynna starfsemi einstakra
stofnana, fyrirtækja eða samtaka
eða til að kynna viðburði, svo
sem fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Formið má m.a. finna
undir Morgunblaðshausnum efst
t.h. á forsíðu mbl.is. Einnig er
hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við grein-
um sem sendar eru í tölvupósti
og greinar sem sendar eru á aðra
miðla eru ekki birtar.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið, en næst þegar
kerfið er notað er nóg að slá inn
netfang og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur þeirri
hámarkslengd sem gefin er upp
fyrir hvern efnisþátt en boðið er
upp á birtingu lengri greina á
vefnum.
Nánari upplýsingar gefur
starfsfólk greinadeildar.
Móttaka
aðsendra greina