Ný saga - 01.01.1993, Síða 40

Ný saga - 01.01.1993, Síða 40
Anna Agnarsdóttir sumrinu 1784, þar sem hann leggur til að vinnufært húsgangsfólk verði flutt utan. Rentukammerið hafnaði tillögunni „nu for Tiden“.’7 Þá má nefna álitsgerð Skúla landfó- geta Magnússonar „um brottflutning íslend- inga vegna móðuharðinda", trúlega ritaða í desember 1784,’K sem Aðalgeir Kristjánsson b)ó til prentunar.’9 Nefnir Skúli, í fyrsta kafla sem ber titilinn „Om folkenes bortförsel fra Is- land“, tölurnar „10 til 20 Tusinde". Ennfremur nefnir hann „Heederne i Jylland" og jafnvel „finmarken" og Kaupmannahöfn sem áfanga- staði liinna brottfluttu/’0 Má vera að hér sé fundin sú heimild semjón Sigurðsson studdist við. Ennfremur er vert að hafa í huga minnis- greinar Jóns Eiríkssonar konferensráðs um ráðstafanir vegna Skaftárelda í útgáfu Svein- bjarnar Rafnssonar. Þessar minnisgreinar eru aðeins yngri en fyrrnefnd álitsgerð Skúla Magnússonar/’1 Jón var háttsettur í Rentu- kammerinu og hafði þar mikil afskipti af ís- landsmálum. Jón nefnir ekki þjóðarflutninga en ræðir m.a. um hvort rétt sé að „transportere nogle Folk“ frá íslandi og þá hverja helst. Vill hann takmarka flutningana við þurfamenn/’2 Hannes Finnsson segir f ríli sínu Um Mannfœckun a/Hallœrum á Islandi að til tals hafi komið, að gera íslend- inga að ný- býlingum í Danmörku. Árið 1984 vakti Sigfús Haukur Andrésson athygli á prentaðri frumheimild um málið, sem kom út í Kaupmannahöfn árið 1792 á undan ritum Hannesar og Magnúsar. Er það bók Carls Pontoppidans Magazin for almeenn- nyttige Bidrag til Kundskab om Indretninger og Forfatninger i de Kongelige Danske Stat- er/’1 Pontoppidan var afar kunnugur íslenskum málefnum, haföi m. a. verið framkvæmdastjóri konungsverslunarinnar síðari og átt sæti í Landsnefndinni síðari. í fyrra bindi verksins er nokkrum sinnum minnst á fólksflutninga frá íslandi, rætt var um að „transportere Ind- byggerne fra et saa lidet Folkerigt Land som Island...“, minnst var á „Forslaget om Folke- Transporten fra Island“ og að „före Islændere fra huus og Hiem“. Sigfús Haukur telur orða- lag Pontoppidans „heldur óljóst“. Hann telur vafalaust að hér sé um að ræða „einhvern óá- kveðinn fjölda Islendinga en alls ekki alla þjóðina". Sigfús Haukur setur fram þá tilgátu, að Magnús og Hannes hafi stuðst við bók Pontoppidans — en misskilið hana og þar sé fundin skýringin á því hvernig sagan komst á kreik. Er jrað skoðun Sigfúsar Hauks, að þjóð- arflutningssagan sé „ekkert annað en eins konar þjóðsaga" sþrottin af misskilningi/’1 Sigurður I.índal hefur manna kröftuglegast mótmælt niðurstöðum Þorkels og Sigfúsar Hauks/’’ Árið 1971 taldi hann að sú ályktun væri „fráleit, að sagan um fyrirhugaðan jojóð- arflutning sé alröng í gerð þeirra Hannesar Finnssonar og Magnúsar Stephensens, af því að um hana finnist engin skjalagögn í stjórnar- deildum né i plöggum landsnefndarinnar síð- ari.“ Siguröur færir gild rök fyrir joví að Hann- es og Magnús hljóti að teljast meðal traustustu heimildarmanna um þessa atburði og sér enga ástæðu „til að vefengja frásagnir Hannesar Finnssonar og Magnúsar Stephensens um, að 1784 hafi komið til orða að flytja alla íslend- inga af landi brott“. Jóhannes Nordal á einnig erfitt með að trúa Joví að Hannes Finnsson hefði „fariö með fleipur eitt um svo alvarlegt mál...“ sem brottflutningur íslendinga var. Finnst honum „sönnu nær“ að Hannes „hafi haft sannar spurnir af slíkum ráðagerðum hátt- settra manna, þótt heimildir um það verði ekki lengur grafnar úr gleymsku"/’7 Við rök- semdir Sigurðar Líndal má því bæta, að sú staðreynd aö Skúli Magnússon landfógeti, sem var staddur í Kaupmannahöfn joennan vetur og skrifaði þá títtnefnda álitsgerð um máliö, 38
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.