Ný saga - 01.01.1993, Side 78

Ný saga - 01.01.1993, Side 78
Lára Magnúsardóttir Þótt kyrrstaðan í samfélaginu sé óumdeil- anleg, þ.e. íhaldsemi og tæknileg stöðnun og stundum jafnvel afturför,'2 þarf að hafa í huga að óreiða og upplausnarástand var viðvarandi. Þessi sundrung átti sér orsakir í samfélags- gerðinni sjálfri og hversu óstöðug staöa hvers og eins var innan samfélagsins. Harðæri, hall- æri og pestir hafa löngum veriö talin með helstu einkennum aldarinnar og þau ýttu vissulega undir óöryggi og upplausn og þar átti vanmáttur samfélagsins til að bregðast við áföllum nokkurn hlut að máli. Togstreita milli yfirvalda og landslýðs kom meðal annars fram í því að lengi hafði liið op- inbera reynt aö hafa áhrif á líferni almennings. Það var ekki síst meö ströngum hegningum fyrir, að því er nútímamönnum virðist, Iétt- vægar yfirsjónir. Hafa margir orðið til að furða sig á því hversu algeng brot voru miöað við þyngd refsingar sem fólk átti yfir höfði sér. í áðurnefndum tilskipunum frá 1685 og 1746 var hlýðni lykiloröiö. Vald var skilgreint og á- kvaröað af talsverðri nákvæmni hver ætti að hlýða hverjum. Þó var engan veginn einhlítt hvernig bæri að túlka lögin eða hvaða lögum ætti að fylgja. Guðmundur Jónsson hefur rannsakað sambúð landsdrottna og leiguliða á 18. og 19- öld. Hann segir: „Þegar skjölin eru lesin fer ekki hjá því að manni verði starsýnt á réttaróvissuna í málefnum landsdrottna og leiguliða. |...] En þetta var ekkert einsdæmi á 18. og 19- öld, því þá ríkti svo mikill glund- roði í íslenskum rétti, að jafnvel æðstu yfirvöld voru ekki alltaf viss um hvað væru lög í land- inu.“-M Þegar kom að því aö framfylgja lögum voru fleiri vandamál en óvissan um lögin. Mis- gerðir voru miklu fleiri en svo að yfirvöld hefðu tök á aö koma lögum yfir alla sem breyttu rangt, þótt vissulega séu til mörg dæmi um, að hart væri gengiö eftir brotamönnum og þeir látnir taka út ótæpilegar refsingar. Skírlífi Már Jónsson hefur sýnt fram á að 50% kvenna sem gengu í hjónaband á síðustu 15 árum 18. aldar voru sannanlega óskírlífar fyrir vígsl- una.'1 Þetta undirstrikar orð séra Þorsteins Pét- urssonar: „...flestir byrja nú sitt ektaskap á lauslæti og frillulifaöi..."." Rannsókn Más mið- aðist eingöngu við fædd börn giftra kvenna, en eins og nærri má geta hafa skírlífisbrotin verið mun fleiri en þau, sem sannast með of- bráðri barneign. Rannsóknir af ýmsu tagi, ásamt frásagnar- heimildum 18. aldar, sem hér er stuðst við, benda eindregið til þess að skírlífisbrot liafi veriö mun fleiri en refsað var fyrir. Það þýöir, að þótt refsingar væru þungar, voru miklar lík- ur á að komast upp með brotið og þess vegna var áhættan, sem tekin var, ekki eins mikil og ætla mætti. Séra Þorsteinn var mjög óánægður með, að ekki væri nóg með, að fólk kæmist upp með brotin, heldur var því sýnd sama viröing og þeim, sem höguðu lífi sínu sam- kvæmt lögum. Þetta styrkir einnig þá skoðun, að siðferðisreglur, sem giltu í reynd, hafi verið allt aörar en þær, sem yfirvöld töldu æskilegar. Astæður fyrir skírlífisbrotum eru fjölmargar, meðal annars takmarkaðir möguleikar kvenna til að giftast. Gísli Gunnarsson hefur leitt líkur aö því aö það hafi borgað sig fyrir samfélagið aö láta fólk komast tipp með ólöglegar barn- eignir fremur en að leyfa hjónabönd, þvi þannig fæddust færri börn og hreppurinn hafði færri fátæklinga á sinni ábyrgð.'6 Flakk A 18. öld var óvissa um hvernig skilja bæri lögin og yfirvöld gátu ekki alltaf framfylgt þeim. Lögin voru líka með þeim hætti, að ó- gerningur var oft að hlýða þeim. Bann við flakki er dæmi um þetta tvennt . Flakk var eitt aðalmein þjóðfélagsins að mati samtíma- manna. Öldum saman höfðu menn amast við því og sett voru lög og reglur til að hamla gegn því, en flest var það árangurslaust. Hall- ærisárið 1756 var séra Þorsteinn Pétursson beðinn að taka saman lista yfir fermd og ó- fermd ungmenni, sem flökkuðu um í sókn hans. Hann sendi sýslumanni bréf, þar sem segir m.a.: „Nú af því ég veit slíkra tala verður meiri hér í Húnavatnssýslu en menn fái við- gjört, þá nefni ég einn af öllum Símon Jóns- son...“'7 Þetta var ekki í fyrsta skipti, sem séra Þorsteinn lét vita af Símoni þessum, sem flakkaði um ófermdur á þrítugsaldri. Þeim á- bendingum hafði ekki verið sinnt, en af bréfi séra Þorsteins má sjá, að hann telur það til- gangslaust að hafa fyrir því að útbúa skrá um 76

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.