Morgunblaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 85 ,140 og 160m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s. 897- 5300.
Þú átt skilið að komast í hvíld!
Í Minniborgum bjóðum við upp á
ódýra gistingu í notalegum frístunda-
húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2.
Fyrirtækjahópar, óvissuhópar,
ættarmót. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofur – vinnustofur –
geymslur
Til leigu nokkur skrifstofu- eða vinnu-
stofurými, 20–43 m², í snyrtilegu
húsnæði í Hafnarfirði. Nánar á
www.leiga.webs.com
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Tómstundir
Öflugir fjarstýrðir bensínbílar í
úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Fjarstýrðar innanhússþyrlur –
Gott verð
Tilbúnar til flugs beint úr kassanum
á góðu verði. Erum einnig með bíla,
báta, skriðdreka og m.fl. Netlagerinn
slf. Kíktu á vefsíðuna okkar Tactical.is
S: 517-8878.
Til sölu
Smáratorgi
Lágvöruverðsverslun fyrir
heimilið
Mikið úrval af nýjum vörum.
Lægsta verð kr. 290. Gott verð kr.
390. Hæsta verð kr. 690.
Augnablik
Geisladiskur með lögum við
ljóð Hákonar Aðalsteinssonar,
flutt af Nefndinni og gestum.
Fæst í Hagkaupum, Tónspili,
Samkaupum Egilsstöðum og
hjá útgefanda í síma 863 3636.
Netfang: darara@gmail.com
Mbl. 1. febr. ★★★✰✰
,,Það sem gerir plötur eins og
þessar svo mikilvægar er
hreinleikinn sem við þær er
bundinn og forsendur allar”.
Arnar Eggert Thoroddsen
Óska eftir
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhald, laun, öll skattþjónusta
Áreiðanleiki, traust og gagnkvæmur
trúnaður. www.fsbokhald.is.
Fyrirtæki og samningar ehf.,
Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík,
s. 552 6688.
FSbókhald.is.
Skattframtöl
Framtöl - bókhald - ársreikningar
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla. Einnig
bókhald, ársreikn. o.fl. fyrir fyrirtæki.
HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977.
www.fob.is
Þjónusta
ERFÐASKRÁR
Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara-
nemi í lögfræði, tek að mér
samningu erfðaskráa, þannig að
öllum lagaskilyrðum sé fullnægt.
Hóflegt verð — persónuleg
þjónusta. Sími: 696 8442,
netfang: hth56@hi.is
Ýmislegt
Verkfæri
Trésmíðavél óskast
Sambyggður afréttari og þykktar-
hefill, lágmark 40 cm, má vera meira.
Uppl. í síma 863-7139.
Bílar
Landcruiser frúarbíll
Einstaklega gott eintak, nýskr.
12.2003, ek. 109 þús. 35" breyting,
einn eigandi. Verð 4.190 þús.
Upplýsingar í síma 894-1298.
Dodge RAM 2500 VAN ´96
Ek. 75 þús. km. Allt nýtt í bremsum
og nýir spindlar. Mikið yfirfarinn bíll.
Sprautaður í fyrra, góð dekk. Byrjaður
að setja svefnaðstöðu í hann. Bíllinn
er góður og lítur vel út. Verð aðeins
550.000. Ath. skipti. S. 893-5201.
2008 Range Rover Vouge SE V8
Diesel. Þetta er einn af fimm bílum
sem komu til landsins 2008.
Með öllum búnaði og meira til. Einn
eigandi. Nýr kostar um 22 milljónir.
Þessi kostar aðeins 12.800 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið 12-18 virka daga.
Bílaþjónusta
! "
#
! !!
!
Hjólbarðar
Rýmingarsala á vörubíladekkjum
13 R 22.5
12 R 22.5
11 R 22.5
425/65 R 22.5
1100 R 20
1200 R 20
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði,
Dalvegi 16b, Kópavogi,
sími 544 4333.
✝ Kristinn Ó.Guðmundsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 2. nóv-
ember 1924. Hann
andaðist í faðmi
fjölskyldunnar á
heimili sonar síns
aðfaranótt 26. febr-
úar 2011.
Foreldrar hans
voru Pálína Jóns-
dóttir húsfreyja í
Vestmannaeyjum f. 14. júlí 1880,
d. 6. mars 1963 og Guðmundur
Einarsson bóndi og útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum f.
18. nóvember 1885, d. 14. mars
1943. Kristinn Ó. kvæntist 15.
október 1955 Jóhönnu Sigurð-
ardóttur húsfreyju f. 18. janúar
1927, d. 12. janúar 2004. For-
eldrar hennar voru Sigríður
Geirsdóttir húsfreyja í Vest-
mannaeyjum, síðar í Reykjavík f.
7. júlí 1907, d. 29. nóvember 1985
og Sigurður Ásgeir Gunnarsson
kaupmaður og útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum f. 18. febrúar
og starfaði sem slíkur í 13 ár eða
til 1979. Eftir það starfaði hann
sem forstöðumaður Húsatrygg-
inga Reykjavíkur fram til 1992
er hann lét af störfum. Kristinn
Ó. sinnti af kostgæfni heima við
langveikri eiginkonu sinni þar til
hún lést en þá flutti hann til son-
ar síns og bjó þar til æviloka. Þau
hjónin byggðu sér myndarlegan
sumarbústað í Þrastarskógi og
dvöldu þar mikið að sumri til.
Kristinn Ó. var einn af stofn-
endum skátafélagsins Faxa í
Vestmannaeyjum og síðar skáta-
flokksins Útlaga sem er vænt-
anlega einn elsti skátaflokkur í
heimi. Hann var einnig heið-
urmeðlimur í Akoges og á yngri
árum ötull félags- og stjórn-
armaður í íþróttafélaginu Þór í
Vestmannaeyjum. Kristinn Ó.
fylgdi barnabörnum sínum og fé-
lögum þeirra mikið eftir og gekk
nánast undir nafninu Afi í Vest-
urbæ Reykjavíkur.
Útför Kristins Ó. fór fram í
kyrrþey 4. mars 2011 og var það
að hans eigin ósk.
1902, d. 12. október
1941. Sonur Krist-
ins Ó. og Jóhönnu
er Sigurður Ásgeir
bæklunarlæknir og
framkvæmdastjóri í
Reykjavík f. 20.
október 1958. Eig-
inkona hans er
Supranee Aris Sa-
engkhao og börn
Elísabet Vilborg,
Kristinn Þór, Þórir
Örn og Sigríður María. Barna-
börn Sigurðar Ásgeirs eru Alex-
ander Sebastian og Oscar Emil.
Kristinn Ó. var yngstur fjölda
systkina og eru 2 þeirra enn á lífi
ásamt einum yngri uppeld-
isbróður. Kristinn Ó. starfaði
mikið á sjó og við bústörf meðan
á námsárum stóð en hann út-
skrifaðist sem lögfræðingur frá
H.Í. 1953. Hann varð hæstarétt-
arlögmaður 1966. Eftir útskrift
úr H.Í sinnti Kristinn Ó. lög-
fræðistörfum í Reykjavík og
Hafnarfirði en 1966 var hann
kjörinn bæjarstjóri í Hafnarfirði
Eftir sögulegar bæjarstjórnar-
kosningar í Hafnarfirði árið 1966
reyndist í fyrstu erfitt að mynda
starfhæfan meirihluta í bæjar-
stjórn. Var þá leitað til Kristins Ó.
Guðmundssonar um að taka að sér
starf bæjarstjóra til bráðabirgða,
en Kristinn hafði þá um átta ára
skeið unnið að lögfræðistörfum fyr-
ir Hafnarfjarðarbæ. Síðan tókst
meirihlutasamstarf óháðra borgara
og sjálfstæðismanna og Kristinn
ráðinn bæjarstjóri. Bæjarstjóraár
hans urðu þrettán og er það lengsta
tímabil, sem sami maður hefur ver-
ið bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Þegar Kristinn að eigin ósk lét
af starfi sem bæjarstjóri árið 1979
átti hann að baki einkar farsælan
starfsferil. Hann starfaði alltaf sem
ópólitískur embættismaður og tók
ekki þátt í starfi stjórnmálaflokka,
en einbeitti sér af mikilli trú-
mennsku að þeim verkefnum, sem
hann tók að sér.
Kristinn naut alltaf verðskuld-
aðs trausts og virðingar bæjarfull-
trúa og bæjarbúa og var fyrir hvert
kjörtímabil endurkosinn án mótat-
kvæða í bæjarstjórn. Þá þótti
starfsfólki bæjarins mjög gott að
vinna undir stjórn Kristins.
Vegna formennsku minnar í
bæjarráði á starfstíma Kristins
voru samskipti okkar mjög náin og
eins góð og best varð á kosið. Krist-
inn var mjög þægilegur í allri um-
gengni, gerði glögga grein fyrir
málum og allur undirbúningur fyr-
ir fundi var vandaður. Það fór orð
af vinnusemi, réttsýni og heiðar-
leika Kristins í störfum hans.
Kristinn var sérlega hógvær, já-
kvæður og bjartsýnn, ljúflyndur og
góðviljaður. Hann gaf sér alltaf
góðan tíma til að sinna erindum
fólks, var ráðhollur og hjálpfús. Til
hans þótt fólki gott að leita. Öll
framkoma hans var til fyrirmynd-
ar.
Staða fjármála hjá Hafnarfjarð-
arbæ var mjög erfið, þegar Krist-
inn hóf störf sem bæjarstjóri, mikl-
ar skuldir og lánstraust í lágmarki.
Var því undir stjórn Kristins lögð
áhersla á að treysta fjárhags-
grundvöll bæjarfélagsins og kapp-
kostað að sýna aðhald og ráðdeild
við fjármálastjórn bæjarins með
þeim árangri, að á bæjarstjóraár-
um Kristins var eitt mesta fram-
faratímabil í sögu bæjarins. Þegar
Kristinn lét af störfum var fjár-
hagsstaða bæjarins mjög góð og
talin ein sú besta í samanburði við
önnur sveitarfélög.
Góðvinur og heiðursmaður er
kvaddur með einlægri þökk fyrir
vináttuna, traust samstarf og allt
það góða, sem hann vann mínum
heimabæ. Gifturíkt framlag Krist-
ins til heilla fyrir Hafnarfjörð mun
lifa í bjartri minningu.
Árni Gunnlaugsson.
Kveðja frá Útlögum
Fallinn er frá Kristinn Óskar
Guðmundsson, Kiddi í Viðey eins
og hann var kallaður þegar hann
var unglingur í Eyjum. Hann var í
hópi þeirra sem stofnuðu Skátafé-
lagið Faxa í Vestmannaeyjum 22.
febr. 1938 og Útlaga í Reykjavík
22. okt. 1942. Þorsteinn Einarsson
íþróttafulltrúi bauð þá nokkrum
Eyjaskátum heim til sín og þar var
flokkurinn stofnaður fyrir 68 árum
og starfar enn. Þá var Kristinn 17
ára gamall og kominn í 2. bekk í
Verslunarskóla Íslands.
Kristinn fæddist í Vestmanna-
eyjum 2. nóv. 1924, sonur hjónanna
Guðmundar Einarssonar og Pálínu
Jónsdóttur. Hann var yngstur 12
alsystkina og átti auk þeirra þrjú
hálfsystkini. Foreldrar hans fluttu
1921 frá Ytri-Hól í Vestur Land-
eyjum til Vestmannaeyja og reistu
1922 stórhýsi á horni tveggja að-
algatna kaupstaðarins og nefndu
Viðey. Þar fæddist Kristinn og ólst
upp á fjölmennu heimili við mikil
umsvif föðurins, sem rak sveitabú-
skap í miðjum Vestmannaeyjabæ
og að auki útgerð. Allir urðu að
taka til hendi um leið og þeir gátu.
Kristinn lét sitt ekki eftir liggja og
var ungur að árum farinn að slá tún
föður síns og annarra með hesta-
sláttuvél. Eftirfarandi frásögn lýsir
verkum sem hvíldu á herðum Pál-
ínu móður Kristins. „Það þurfti að
sjá um búskapinn, klæða alla fjöl-
skylduna, fæða alla heimamenn og
verkafólkið og sjómennina sem
komu á vertíð. Það þurfti að verka
allan mat, mjólka kýrnar og búa til
mjólkurvörur, verka kjöt, búa til
slátur á haustin, verka fiskinn á
vertíðinni, rækta kartöflur og róf-
ur, baka brauð og kökur. Svo þurfti
að þvo allan þvott niðri í kjallara og
bera upp á þurrkloftið. Krakkarnir
hjálpuðu til strax og aldur leyfði,
skóli var stuttur.“ (ESV) Ólíkt
systkinum sínum, sem nutu aðeins
stuttrar skólagöngu, gekk Kristinn
á vit menntagyðjunnar og settist 16
ára gamall í Verslunarskólann og
lauk þaðan verslunarprófi 1945 og
stúdentsprófi 1948 og laganámi frá
Háskóla Íslands 1953. Hann öðlað-
ist réttindi héraðsdóms- og hæsta-
réttarlögmanns og var bæjarstjóri
í Hafnarfirði 1966 til 1979, lengur
en nokkur annar, gegndi störfum
fyrir Reykjavíkurborg og vann
verk sín öll af trúmennsku.
Eiginkona Kristins var Jóhanna
Sigurðardóttir frá Vestmannaeyj-
um. Giftu þau sig 15. okt. 1955. Jó-
hanna átti lengi við MS-sjúkdóm að
stríða og síðustu 20 árin var hún
bundin hjólastól og þurfti mikla
hjálp og aðhlynningu. Kristinn
annaðist hana af stakri alúð og um-
hyggjusemi. Jóhanna lést 12. jan.
2004. Sonur þeirra er Sigurður
Kristinsson læknir.
Heilsu Kristins tók að hraka sl.
haust og lést hann á heimili sonar
síns 26. febrúar sl. Útför hans fór
fram frá Seltjarnarneskirkju föstu-
daginn 4. mars. Vandamenn hans
og vinir komu þá saman í kirkjunni
og vinur hans séra Ægir Fr. Sig-
urgeirsson flutti kveðjuorð og lagði
út af sæluboðuninni í fjallræðunni:
„Sælir eru hógværir, því að þeir
munu landið erfa.“ (Matt. 5)
Við leiðarlok flyt ég aðstandend-
um Kristins Óskars samúðarkveðj-
ur frá okkur flokksbræðrum hans.
Minning um hógværan, glaðværan
og tryggan vin lifir með okkur.
Óskar Þór Sigurðsson.
Kveðja frá Bandalagi
íslenskra skáta
Kristinn Ó. Guðmundsson, fé-
lagi í skátaflokknum Útlögum, er
farinn heim.
Við skátar þökkum honum sam-
fylgdina og viljum minnast hans
með ljóði eftir Hörð Zóphaníasson.
Þú ert skáti horfinn heim,
himinn, jörð, ber sorgarkeim.
Vinar saknar vinafjöld,
varðar þökkin ævikvöld.
Sérhver hefur minning mál,
við munum tjöld og varðeldsbál,
bjartan hug og brosin þín,
þau bera ljósið inn til mín.
Kveðjustundin helg og hlý,
hugum okkar ríkir í.
Skátaminning, skátaspor,
skilja eftir sól og vor.
Aðstandendum öllum sendum
við samúðarkveðjur.
Bragi Björnsson
skátahöfðingi
Kristinn Ó. Guðmundsson