Morgunblaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 91. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Lést eftir að hafa setið fastur ... 2. Nota tíðatappa til að verða ölvuð 3. Ný sprunga í Almannagjá 4. Skoraði ótrúlega flautukörfu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Japanski útgefandinn Rallye Co. hefur sterk tengsl við Ísland og hefur m.a. gefið út Eberg og Rökkurró í Japan og mun gefa út plötu Amiinu, Puzzle, í apríl. Eftir jarðskjálftaham- farirnar ákvað eigandinn, Fumi Chika- koshi, að gefa út safnplötur til styrkt- ar fórnarlömbunum. Hann hafði samband við nokkra íslenska lista- menn sem brugðust vel við. Amiina gaf lagið „Bláskjár“ af fyrstu plötu sveitarinnar Animamina. Hellvar gaf sitt nýjasta lag, „Ding an Sich“ og listamaðurinn 7oi samdi nýtt lag, „Breath“. Einnig eiga Nóra, Rökkurró, Kira Kira og Eberg lög á plötunum Fyrri platan kom út í vikunni og fór beint í 42. sætið á japanska vinsældalista iTunes og í 4. sæti á hinum óháða vinsældalista. Plöt- urnar verða einnig til sölu á iTunes í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk- landi, Þýskalandi, Noregi, Ástralíu, Svíþjóð, Írlandi, Danmörku og Kan- ada. Morgunblaðið/Ernir Amiina og fleiri á japanskri safnplötu  Megas og Senuþjófarnir verða með tónleika á Norðurpólnum á morgun. Platan (Hugboð um) vand- ræði kemur svo í verslanir í næstu viku. Aðrir tónleikar sem liggja fyrir eru á Græna hatt- inum á Akur- eyri, 24. apr- íl, og á Faktorý í Reykjavík, 29. apríl. Megas spilar á Norðurpólnum Á laugardag Hæg suðlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða slydduél. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag Hæg breytileg átt og dálítil él í flestum landshlutum. Vægt frost, en yfirleitt frostlaust við ströndina. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning með köflum í flestum landshlutum og hiti yfirleitt á bilinu 3 til 8 stig. Norðaustlægari norðvestantil seint í kvöld og kólnar lítið eitt. VEÐUR Stjarnan úr Garðabæ er komin í úrslit Íslandsmóts karla í körfuknattleik í fyrsta skipti eftir að hafa sigrað Íslandsmeistara Snæfells í þriðja sinn í jafn- mörgum leikjum, og mætir þar KR eða Keflavík. „Við erum núna að skrifa okkar sögu og Teitur er höfund- urinn,“ sagði Justin Shouse, leikmaður Stjörn- unnar, við Morgunblaðið í leikslok í Stykkishólmi. »4 Stjarnan í úrslita- leiki í fyrsta sinn Heiðar Helguson er orðinn marka- hæsti íslenski knattspyrnumaðurinn á erlendri grund frá upphafi. Hann er annar tveggja Íslendinga sem hafa skorað yfir 100 mörk í deildakeppni erlendis og nú er útlit fyrir að hann spili á ný í ensku úr- valsdeildinni næsta vetur. Morgun- blaðið ræddi við Heiðar og birtir lista yfir 12 marka- hæstu Ís- lend- ingana erlend- is. »1 Heiðar er orðinn sá markahæsti frá upphafi Íslandsmeistarar Hauka taka ekki þátt í úrslitakeppninni um Íslands- meistaratitilinn í handknattleik karla þetta árið. Það varð ljóst eftir að þeir töpuðu fyrir FH og HK lagði Fram í næstsíðustu umferð úrvalsdeildar í gærkvöldi. Afturelding vann deild- armeistara Akureyrar og tryggði sér þar með næstneðsta sætið sem þýðir að lið Selfoss er fallið í 1. deild. »2-3 Haukar úr leik og Sel- foss fellur úr deildinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Jón Sigurðsson á Sindra RE er síðasti trillukarlinn í verbúðunum við Geirsgötu í hjarta höfuð- borgarinnar. Hann kvartar þó ekki yfir breytingunum og alls ekki yfir nágrönnum sínum í verslunum, veitingastöðum og á verkstæðum í nágrenninu. „Auðvitað sakna ég gömlu vina minna sem voru hérna með mér og maður fær sjaldnar í nefið en áð- ur. Hins vegar eru þessar konur sem nú ráða víða ríkjum í verbúð- unum bara yndislegar. Lífið er orðið allt öðruvísi hérna en áður var, svo ég tali nú ekki um lyktina. Það má kannski segja að það sé miklu betra að fá svona fínar stúlkur í sambýlið hérna, heldur en fúla trillukarla með kerrur full- ar af drasli. Samt sakna ég karl- anna minna svolítið, þeir spáðu með mér í veðrið og fiskiríið,“ seg- ir Jón á Sindra, sem nú er 73 ára. Aukið líf færist í gömlu verbúð- irnar með hækkandi sól og stöðugt fleiri ferðamönnum. Jón segir ver- búðirnar iða af lífi þegar komi fram á sumar, en þeir trufla lítið hans daglegu störf við að salta fisk og verka grásleppuhrogn í hvíta húsinu sem hann kallar svo. Þá verbúð keypti Jón á sínum tíma og starfar þar og í verbúðinni við hliðina við þriðja mann stærstan hluta ársins á milli þess sem hann rær út á Flóann. Þorskurinn um allt og frestar grásleppunni „Ég var búinn að vera rannsóknamaður í tíu ár með Jak- obi Jakobssyni og Hjálmari Vil- hjálmssyni og öðru góðu fólki á Hafrannsóknastofnun þegar ég keypti fyrsta Sindrann af hag- leiksmanni, sem hafði smíðað bát- inn í bílskúrnum sínum í Bakka- gerðinu. Þetta var árið 1974. Svo lét ég byggja nýjan Sindra á Skagaströnd árið 1977 og það ár hætti ég hjá Hafró. Ég lét síðan byggja ofan á hann og lengja og báturinn varð á allan hátt miklu betri við þær breytingar.“ Jón segir að þorskur sé um allt þessar vikurnar og þess vegna hafi hann frestað því um einhverja daga að byrja á grásleppunni. „Við fengum þrjú tonn af fínum þorski á Sundunum nýlega og ég var al- veg búinn eftir róðurinn. Síðan vorum við þrír í þrjá daga að flaka og salta. Ég hefði ekki boðið í að fá sjö tonn eins og einn kunningi minn gerði í vikunni. Sá rær einn, en ég hef þó verið með ungan mann með mér um borð í um 20 ár.“ Þeir á Sindranum reru í gær- morgun og fengu um tonn við Brimnes við Kollafjörð eftir að netin höfðu legið í um tvo tíma. „Boltafiskur,“ sagði Jón. »18 Nýtt líf og ný lykt í verbúðunum  Jón á Sindra RE kvartar ekki yfir nýjum nágrönnum Morgunblaðið/RAX Í heimsókn Karlarnir af Sindra litu inn hjá listakonunum í Gallerí Dunga, frá vinstri Bjarni Sigmar Kjartansson, Jón Sigurðsson, Kristján Páll Ström Jónsson, Ingibjörg Þ. Klemenzdóttir og Gunnhildur Þórarinsdóttir. Fimmtán bátar eru með farþega- leyfi í Reykjavík og flestir koma þeir að hvalaskoðun frá höfuð- borginni. Í dag byrjar Elding sum- aráætlun sína með fjölgun ferða. Í vetur var fyrirtækið með daglegar ferðir á áætlun og var algengt að farþegar væru 50-70 þegar gaf til hvalaskoðunar. Ferðin kostar 8 þúsund krónur eða 48 evrur. Að sögn Vignis Sigursveinssonar voru farþegar Eldingar um 50 þúsund í fyrra og samtals fóru um 70 þús- und farþegar í hvalaskoðun frá Reykjavík í fyrra. Fyrirtækjum sem sinna þessari starfsemi hefur fjölgað. Mikið líf er samfara sjávarferða- mennskunni í suðurbugt hafnar- innar og á næstu árum verður lögð enn meiri áhersla á ferðamennsku og lifandi starfsemi þar. Lífleg sjávarferðamennska DAGLEGAR HVALASKOÐUNARFERÐIR Á ÁÆTLUN Í VETUR Elding Vignir Sigursveinsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.