Morgunblaðið - 17.06.2011, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011
Jón leit á þúsund ára afmæli Ís-
landsbyggðar sem kjörið tækifæri
til að afla málstað Íslands stuðn-
ings. Hinn fimmta janúar 1874 var
gefin út Stjórnarskrá um hin sér-
stöku málefni Íslands af Kristjáni
níunda Danakonungi. Í henni var
komið til móts við kröfur Íslend-
inga um aukið frelsi í eigin málum
að einhverju leyti.
Alþingi Íslendinga var veitt lög-
gjafarvald í sérmálum Íslands, sem
takmarkaðist af neitunarvaldi kon-
ungs, og fjárforræði auk þess sem
var skipaður sérstakur ráðgjafi í
málefnum landsins. Stjórnarskráin
var að miklu leyti samin upp úr
dönsku stjórnarskránni. Hún var
síður en svo gallalaus og voru Ís-
lendingar einkum ósáttir við
ákvæði hennar um stöðu fram-
kvæmdavaldsins en hún myndaði
þó grunn til að setja fram frekari
kröfur. Þetta var áfangasigur sem
hafði verið haft mikið fyrir.
Engum duldist þó að Jón leit
síður en svo á að baráttunni væri
lokið. Lokamarkmið baráttunnar
var enn langt undan og Jón áleit
nauðsynlegt að knýja fram bætur
á stjórnarskránni. Þrátt fyrir ýmsa
vankanta markaði stjórnarskráin
þáttaskil í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Með því að færa vald
til landsins rættust ýmsar af spám
Jóns um að kraftur landsmanna
myndi eflast. Ekki síst styrktist
staða Jóns og margir sannfærðust
um hversu öflugt starf hann hafði
unnið. Þrátt fyrir það var honum
ekki boðið að vera í forsvari þjóð-
arinnar á hátíðlegri athöfn sem
haldin var á Þingvöllum þegar
Kristján níundi Danakonungur af-
henti stjórnarskrána formlega um
sumarið 1874.
Stjórnarskráin 1874
Jón Sigurðsson 200 ára
Betty Stein er 92 ára, hún býr í Kaliforníu og lifði af
helför nasista gegn gyðingum í seinni heimsstyrjöld.
Hún leikur hér borðtennis í hjálparmiðstöð í Los Ang-
eles. Leikurinn er liður í áætlun fyrir Alzheimer-
sjúklinga og sagður hafa góð áhrif, bæði líkamlega og
andlega. Hann dragi m.a. úr þunglyndi.
Reuters
Borðtennis góður gegn einkennum heilabilunar
Aldurinn engin hindrun fyrir Betty
Næstráðandi
Osama bin Lad-
ens í hryðju-
verkasamtök-
unum al-Qaeda,
egypski lækn-
irinn Ayman al-
Zawahiri, hefur
verið kjörinn-
arftaki leiðtog-
ans, að því er
sagði á vefsíðu íslamista í gær.
Zawahiri er 59 ára, sagður
mjög greindur en hann er talinn
mjög umdeildur meðal félaga sam-
takanna. Bandaríkjamenn hafa ár-
um saman lagt 25 milljónir dollara
til höfuðs honum en ekki er vitað
hvar Zawahiri heldur sig. kjon-
@mbl.is
Zawahiri leiðtogi
hryðjuverkasam-
takanna al-Qaeda
Ayman al-Zawahiri
Stuðningsmenn
íshokkíliðsins
Canucks í Van-
couver á vest-
urströnd Kan-
ada gengu
berserksgang í
fyrrakvöld þeg-
ar liðið tapaði
úrslitaleik um
Stanley-bikarinn gegn Boston
Bruins 4-0. Um 100 þúsund
manns höfðu safnast saman í mið-
borginni til að fagna bikarnum.
En ósigrinum var illa tekið,
kveikt var í bílum, verslanir
rændar, einnig þurfti að með-
höndla allmarga á sjúkrahúsi eft-
ir hnífstungur. Einn mun vera
hættulega slasaður eftir að hafa
fallið eða verið hrint ofan af
hárri vegbrú. kjon@mbl.is
Logandi íshokkí-
leikur í Vancouver
Tihomir Petrov, stærðfræðipró-
fessor við Cal State Northridge-
háskóla í Kaliforníu, er nú eft-
irlýstur, að sögn L.A. Times. Eft-
irlitsmyndavél sýndi hann pissa á
dyrnar að skrifstofu kollega síns.
Petrov er einnig talinn eiga sök á
polli við dyr annars kollega en
vegna hans var myndavélin sett
upp á ganginum. Prófessorinn hef-
ur lýst sig saklausan en mætti ekki í
fyrstu yfirheyrslu hjá dómara.
„[Petrov] hefur auðvitað áhyggj-
ur af því að þetta muni hafa áhrif á
starfsmöguleika hans og frama,“
sagði einn af lögmönnum hans, Ar-
vand Naderi. „Við vonum að hann
falli ekki í áliti.“ kjon@mbl.is
Prófessor má ekki
kasta af sér vatni
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Sýrlenskir hermenn hafa beitt skotvopnum gegn óvopn-
uðum borgurum og drepið um 1100 manns í uppreisn-
inni síðustu þrjá mánuði, segir í bráðabirgðaskýrslu
mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Navi Pillays.
Byggt er á frásögnum sjónarvotta en stjórn Bashars al-
Assad forseta hefur hafnað ítrekuðum óskum Pillays um
að fá að senda eigið fólk til Sýrlands til að meta ástandið.
Ráðamenn í Damaskus hafa ekki brugðist við skýrsl-
unni en látið í ljós furðu sína á orðum Amr Moussa,
framkvæmdastjóra Arababandalagsins, sem segir
ástandið í landinu „hættulegt og það veldur áhyggjum“.
Um 9.000 manns hafa flúið frá Sýrlandi til Tyrklands
vegna árása stjórnarhermanna, þúsundir að auki til Líb-
anon. Utanríkisráðherra Tyrklands, Ahmet Davutoglu,
krafðist í fyrradag á fundi með sendimanni Assads að
hætt yrði að beita hervaldi til að berja niður uppreisn-
ina.
Tyrkir eru nú í miklum vanda. Þeir hafa á síðustu ár-
um lagt sig fram um að vingast við arabaríkin og þá ekki
síst Sýrland og Líbíu.
Þáttur í þeirri viðleitni hefur verið að draga úr tengsl-
unum við Ísrael sem hafa áratugum saman verið mikil,
m.a. í varnarmálum. Viðskipti Tyrkja við Sýrlendinga
hafa þrefaldast á einu ári en nú gæti brotist út borg-
arastyrjöld í grannlandinu með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Og upplausnin í Líbíu hefur orðið tyrkneskum
verktökum dýrkeypt.
Skotið á vopnlaust fólk
Tyrkir krefjast þess að
Assad hætti að beita hervaldi
Reuters
Þjóðlegir Stuðningsmenn Assads með 2,3 km langan
þjóðfána á fjölmennum útifundi í Damaskus í fyrradag.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO,
ákvað nýverið að flokka farsíma með
„hugsanlegum krabbameinsvöldum“
vegna geislunar frá þeim, þeir séu
jafn varasamir og kaffi og klóróf-
orm. En rannsóknir síðustu árin
hafa verið afar misvísandi, sumar
hafa sýknað farsímana. Vís-
indamenn við Tampere-háskóla í
Finnlandi hafa nú sýnt fram á að
þeir sem nota farsíma mikið séu ekki
líklegri en aðrir til að fá krabba-
meinsæxli á svæðum í innan við 5 cm
fjarlægð frá síma í notkun.
Um 90% af geisluninni frá gems-
um mælist nokkra cm frá símanum.
Niðurstaða rannsóknarinnar þykir
því benda til að gemsinn sé alls ekki
krabbameinsvaldur, segir í frétt
Reuters. En niðurstaðan er þó ekki
endanleg, að sögn dr. Suvi Larja-
vaara, sem stýrði rannsókninni.
Krabbamein geti verið lengi að
myndast og aðeins 5% af þátttak-
endum í rannsókninni hafi notað far-
síma í 10 ár eða lengur.
kjon@mbl.is
Farsímar
ekkert
hættulegir?
Valda sennilega
ekki krabbameini
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Flest bendir nú til þess að gríska ríkinu verði ekki
forðað frá greiðslufalli, álag á ríkisskuldabréfin á
mörkuðum hækkar stöðugt og evran hefur ekki
verið lægri á mörkuðum í þrjár vikur vegna ótta
manna við afleiðingarnar af vanda Grikkja fyrir
önnur evrulönd. Georg Papandreou forsætisráð-
herra reyndi á neyðarfundi í gærkvöldi að fá liðs-
menn sína á gríska þinginu til að styðja tillögur um
róttækan niðurskurð ríkisútgjalda.
Ekkert bendir til þess að stjórnarandstaðan
verði við bón ráðherrans um að mynduð verði þjóð-
stjórn. Grísk dagblöð töldu líklegt að fjármálaráð-
herrann, Georg Papakonstantinou, sem fékk Evr-
ópusambandið til að samþykkja lán upp á 110
milljarða evra í fyrra, yrði nú látinn víkja.
Stjórn Papandreous vill m.a. leysa vandann
með því að fá nýtt risalán frá Evrópusambandinu
og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem sagðist í gær
myndu axla hluta af byrðinni. Ekki er eining um
málið á evrusvæðinu en reynt verður til þrautar að
finna lausn á leiðtogafundi Evrópusambandsins í
næstu viku.
Verkföll lömuðu á fimmtudag hafnir, banka,
spítala og ýmsar ríkisstofnanir. Reiði almennings í
Grikklandi vex með hverjum degi og um 20 þúsund
manns efndu til mótmæla gegn launalækkunum og
skattahækkunum í Aþenu í fyrradag. Til harðra
slagsmála kom milli mótmælenda og lögreglu sem
beitti táragasi til að hindra mannfjöldann í að leggja
undir sig ráðuneytisbyggingar. Heimildarmenn
sögðu andrúmsloftið „eitrað“, allt gæti gerst.
Á barmi ríkisgjaldþrots
Papandreou reynir í örvæntingu að fá stuðning við niðurskurðaráformin
Stjórnarandstaðan hafnar boði ráðherrans um að mynduð verði þjóðstjórn
Reuters
Átök Ferðamenn við brotna rúðu í Aþenu.
Þungur skuldabaggi
» Skuldir Grikkja eru nú um 150% af
landsframleiðslu og Papandreou vill taka
nýtt risalán upp á 78 milljarða evra.
» Færi svo að Grikkir neyddust til að
hætta að borga af skuldum sínum yrðu
franskir og þýskir bankar fyrir miklu áfalli.
» Bandarískir bankar eru sagðir hafa
gripið til varna þegar fyrir ári og þeir muni
því sleppa mun betur.