Morgunblaðið - 03.09.2011, Side 20

Morgunblaðið - 03.09.2011, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011 Bertrand Lauth hefur varið dokt- orsritgerð við læknadeild HÍ. Meginmark- mið verkefnisins voru að vinna að þvermenningarlegri aðlögun á Íslandi á greiningarviðtali. Það er þannig orðið eðlilegur hluti af venjubundnu matsferli sem notað er fyrir sjúklinga á barna- og unglingageðdeild Landspítala-Háskólasjúkra- húss (BUGL) en einnig á mörgum öðrum greiningar- eða rannsóknarstöðvum, í skólasálfræðiþjónustu og hjá sjálfstætt starfandi fagaðila.  Bertrand Lauth er fæddur árið 1961 í Frakklandi. Hann útskrif- aðist sem sérfræðingur í geð- lækningum og barna- og ung- lingageðlækningum árið 1989 og hefur starfað á BUGL frá 1998. Eiginkona hans er Hanna Guð- laug Guðmundsdóttir, listfræð- ingur. Dætur þeirra eru Jóhanna Clara, Mathilda Evelyne og Magdalena. » FÓLK Nýr doktor í læknisfræði Magnús Árni Magnússon hefur varið doktors- ritgerð sína: „Evrópusamrun- inn á Íslandi og Möltu: Efna- hagshvatar og pólitískar hindr- anir“ við Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallar um mis- munandi leiðir sem Ísland og Malta hafa farið í þátttöku sinni í Evrópusamrunanum á tímabilinu 1989-2009. Megintil- gangur ritgerðarinnar er að skýra þátttöku í Evrópusam- runanum í löndum þar sem virk andstaða er við hann.  Magnús Árni Magnússon fædd- ist í Reykjavík 1968. Hann hefur m.a. lokið MPhil-prófi í Evrópu- fræði frá Cambridge-háskóla 2001. Hann er nú dósent í stjórn- málafræði við Háskólann á Bif- röst. Magnús er kvæntur Sigríði Björk Jónsdóttur, framkvæmda- stjóra Vistbyggðaráðs, og saman eiga þau fjögur börn. Ritgerð um Evrópusamruna Bryndís Björns- dóttir hefur var- ið doktors- ritgerð sína: „Sýkingar- máttur Mori- tella viscosa - seyti og samspil hýsils og sýkils“ við læknadeild HÍ. Meginmarkmið verkefn- isins var að rannsaka sýking- armátt bakteríunnar mori- tella viscosa sem veldur vetrarsáraveiki í laxfiskum og þorski. Sjúkdómurinn herjar á eldisfisk í norð- anverðu Atlantshafi og veldur miklu tjóni. Skilningur á sýk- ingarmætti bakteríunnar er forsenda öflugra sjúkdóms- varna.  Bryndís Björnsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1978. Hún lauk MS-prófi í heilbrigðisvísindum frá HÍ 2004. Bryndís er dóttir hjónanna Björns Björnssonar heitins og Guðnýjar I. Að- alsteinsdóttur. Eiginmaður Bryn- dísar er Magni S. Sigmarsson og eiga þau synina Björn Huga og Hjalta Örn. Ritgerð um sýkingarmátt Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS og Hraunavinir vinna nú að því að skipu- leggja hreinsunardag í hrauninu vestur af Kapelluhrauni í Hafnarfirði, þessu frábæra útivistarsvæði hefur verið spillt með ótrúlegum sóðaskap. Stefnt er að því hreinsunardagurinn verði þann 16. september, á degi ís- lenskrar náttúru. Verið er að kynna verkefnið fyrir skólum og fyr- irtækjum og er vonast til að skóla- stjórnendur geti séð af nemendum sínum og bæjarfélagið og fyrirtæki leggi fram mannskap og tæki. Ekki veitir af stórvirkum vinnuvélum því á svæðinu eru nokkur bílflök sem þarf að hífa með krana, m.a. af vatnsbotni. Hafnarfjarðarbær var byrjaður að huga að hreinsunarstarfi í sam- starfi við landeigendur og þar hafði verið slegið á að kostnaður gæti num- ið einni milljón króna. Ekki var þó búið að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkefnið. Allir leggist á eitt „Við ætlum að koma með flokk af sjálfboðaliðum frá SEEDS, Hraunavinir með sína meðlimi og vonandi að fyrirtæki komi með starfsfólk og skólarnir með nem- endur og kennara. Allir leggist á eitt og geri svæðið fínt eins og það á skilið að vera,“ segir Anna Lúðvíksdóttir, verkefnisstjóri hjá SEEDS. SEEDS tekur á móti um 1.000 sjálfboðaliðum frá útlöndum á þessu ári. Þeir vinna að ýmiss konar umhverfis- og menn- ingartengdum verkefnum með heimamönnum. Reynir Ingibjartsson, stjórn- armaður í Hraunavinum, segir svæð- ið vera frábært til útivistar en slæm umgengni hafi sett á það ljótan svip. Umfjöllun Morgunblaðsins um um- gengni hafi ýtt við félagsmönnum og nú verði hendur látnar standa fram úr ermum. Hraunavinir er félag fólks í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi og líklega segir nafnið á því allt sem segja þarf um tilgang þess. Reynir segir að miklar minjar séu í hrauninu um búskap til lands og sjávar. „Þarna eru gömlu göturnar á Suðurnesin, grónar götur, mjög fal- legar. Þarna er frábært útivist- arsvæði en umgengnin er mikið lýti og fer mjög í taugarnar á fólki sem vill njóta útivistar.“ Fylkja liði og skipuleggja hreinsunardag í hrauninu  SEEDS og Hraunavinir ætla að taka til í hrauni vestan við Hafnarfjörð  Leita liðsstyrks skóla og fyrirtækja  Stefna á dag íslenskrar náttúru Morgunblaðið/Sigurgeir S. Stoppa Loka á einhverjum vegum sem liggja inn í hraunið til að gera sóðum erfiðara að henda þar rusli. Áfram verði þó hægt að aka af Reykjanesbraut og leggja bílum við hraunið. Svæðið verður því aðgengilegt sem fyrr. BAKSVIÐ Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is „Það er fullt af fólki héðan og þaðan búið að hafa samband með hinar og þessar hugmyndir,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, vinur kaupsýslu- mannsins Huang Nubo sem vill kaupa Grímsstaði á Fjöllum en margir virð- ist vilja eiga í viðskiptum við hann. Hjörleifur segist aðallega hafa heyrt í fólki sem sé að kynna möguleika vegna hótelbyggingar í Reykjavík og Hafnarfirði. Hann segist hafa tekið vel í allar ábendingar en jafnframt sagt fólki að í þessari umferð a.m.k. þá sé hann fyrst og fremst að horfa á þetta tvennt, þ.e. uppbyggingu á Gríms- stöðum og í Reykjavík og bendir á að sú uppbygging sé með því fororði að tilskilin leyfi fáist til kaupanna. Hjörleifur segir fólk á Norðaustur- landi mjög áhugasamt og margir í ná- lægri starfsemi hafi nefnt möguleika á einhvers konar samstarfi. Huang er ekki sá eini frá Kína sem hefur sýnt Norðurlandi áhuga. Í lok síðasta mánaðar greindu íslenskir fjölmiðlar frá því að forsvarsmenn kínverska fyrirtækisins Haichang Group hefðu heimsótt Langanes- byggð, með vatnsútflutning í huga. Fagna áformum Huang Markaðsstofa ferðamála á Norður- landi sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem lýst var yfir fögnuði yfir þeim áformum Huang Nubo að standa fyr- ir nýrri og stórhuga uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Gengju áform hans eftir sköpuðust fjölmörg tækifæri með jákvæðum áhrifum á búsetuskilyrði og samgöngur. Ný fjárfesting í ferðaþjónustu, sem fylgi lögum og reglum og markmiðum um sjálfbæra nýtingu og umhverfisvæna ferðaþjónustu sé í samræmi við ferða- málaáætlun og ferðaþjónustustefnu. Landkynning fyrir Ísland Huang hélt blaðamannafund í Pek- ing í gær þar sem hann kynnti áform sín á Íslandi. Fundinn sóttu fulltrúar um fimmtíu alþjóðlegra og kín- verskra fjölmiðla. Kristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Kína, segir að þessi umfjöll- un um Ísland sem vænlegan fjárfest- ingarkost og sem vænlegt land til uppbyggingar ferðaþjón- ustu í norðri sé ígildi mik- illar landkynningar. Margir vilja vera með  Fjöldi fólks vill selja land eða vera í samstarfi með Huang Nubo  Markaðs- stofa ferðamála á Norðurlandi fagnar fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu Morgunblaðið/RAX Stórbrotið Aflmesti foss landsins, hinn breiði og magnaði Dettifoss, er í Jökulsá á Fjöllum. Mörgum hefur brugðið við að heyra af stærð jarðarinnar sem Huang Nubo vill kaupa en jörðin er 30 þúsund hektarar. Í því sam- bandi er áhugavert að ekki þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til inn- anríkisráðherra fyrir aðila innan EES vegna Tilefni til endurskoðunar á lögum JARÐAKAUP ÚTLENDINGA Ögmundur Jónasson landakaupa. Ögmundur Jónsson innanríkisráðherra segir ærið til- efni að taka alla löggjöf vegna landeignarstefnu til endurskoð- unar. „Ég tel að við eigum að taka alla auðlindalöggjöf og landeign- arstefnu til endurskoðunar með tilliti til náttúruauðlinda og nátt- úruverndar.“ Þjóðlendulögin voru gagnrýnd við setningu og má því búast við heitum umræðum um endurskoðun á lögum um land- areign.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.