Birtingur - 01.01.1955, Qupperneq 2
Greinargerð frá ritstjóra Birtings
Þegar ég réðst í útgáfu Birtings, vakti það eitt fyrir mér að skapa vettvang er tæki með fögn-
uði öllu því, sem framsæknir ungir rithöfundar og listamenn hefðu til ísl. menningarmála að leggja.
Mér varð brátt ljóst, að til þess að ritið yrði nægilega vandað að innri og ytri gerð þyrfti fjöl-
mennara áhugalið en að Birtingi stóð í fyrstu. Þegar tekið skyldi til við útgáfuna í haust að loknu
sumarleyfi, hófust viðræður milli mín, þeirra sem staðið höfðu að Vaka og nokkurra annarra áhuga-
manna um að sameinast um útgáfu rits, og tókst þegar með okkur hið ágætasta samstarf.
Þótt nafnið sé óbreytt, er hér á ferð nýtt rit með nýju sniði. Útgefendur þess og ritstjórnar-
menn erum við sex sem undirritað höfum ávarpið fremst í ritinu. Til þess að breikka grundvöll Birt-
ings enn frekar höfum við leitað liðsinnis fjölmargra skálda, rithöfunda, lista- og menntamanna, og
hafa m. a. eftirtaldir menn heitið ritinu velvild og stuðningi: Björn Th. Björnsson, listfræðingur,
dr. Gunnlaugur Þórðarson, fulltrúi, Hjörleifur Sigurðsson, listmálari, Hermann Pálsson, lektor, Björn
Þorsteinsson, sagnfræðingur, Skúli H. Norðdahl, arkitekt, Þorvaldur Skúlason, listmálari, Sigurður
Blöndal, skógfræðingur, Svavar Guðnason, listmálari, Magnús Torfi Ólafsson, blaðam., Stefán Hörð-
ur Grímsson, skáld, Hilmar Jónsson, nemi o. fl.
Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka öllum sem á einn eða annan hátt hafa létt Birtingi róður-
inn fyrsta og erfiðasta spölinn. Ég treysti því, að þeir taki nú enn fastar á, og heiti á aðra að liggja
ekki lengur á liði sínu. Öll skilyrði eru nú sköpuð til að Birtingur geti gegnt hlutverki sínu með
sæmd. Eftir er aðeins að afla nokkur hundruð nýrra kaupenda til þess að tryggja fjárhagsafkomu
ritsins. Með sameiginlegu átaki allra velunnara þess verður það auðunnið verk.
Einar Bragi.