Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 16

Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 16
við hinar rólegu útlínur þess. Einnig er boginn á gluggunum eðlileg afleiðig byggingaraðferðarinnar, þannig bera steinarir léttilegast þunga veggsins. Það er hlaðið úr íslenzku grágrýti ofan úr Skólavörðuholti. En það er ekki nóg að hús sé sprottið af innri nauðsyn hvers menningarskeiðs og í sam- ræmi við þau efni og þær tækniaðferðir er hæfa bezt í það skiptið, þar verður einnig að koma fram skynbragð á snið, stærðir og rúm, hæfileikar sem góður arkitekt er gæddur í ríkum mæli. Og hér er það sem mig brestur orð til að lýsa þeim áhrifum sem ég verð fyrir þegar ég virði fyrir mér þetta dásamlega hús, þessa frábæru til- finningu fyrir því að láta hús sitja vel á jörðinni, að meta hæð og lengd forhliðar og skipa gluggaröðunum hæfilega langt frá hverri annarri, að setja þakið á eins og virðulegan hatt við andlit hússins, forhliðina, og sjáið hversu reykháfurinn er gerður af mikilli natni og fínleik og hversu vel einnig hann fer við þakið. Hér erum við nefnilega komin að innsta kjarna lista, og þá brestur orðin flug og gildi, en því meir reynir á þroskaða formtilfinningu, sem einmitt fær hvað fullkomnasta svörun í fagurmótuðu húsi sem þessu. Svo segja menn: Tugthúsið? og yppa öxlum og rífa það ef til vill á morgun. En á sunnudaginn eru þeir vísir til að prédika hræsnisfullu and- liti eða skrifa alvöruþrungna leiðara í blöðin: Berið virðingu fyrir for- tíðinni, bræður góðir og varið ykkur á þessum ungu nýjungagjörnu fífl- um, atomskáldum, abstraktmálurum, funkishúúsagerðarmönnum. Það má með miklum rétti kalla húsagerðarlist móður allra mótunar- lista. Það er svo margt sem styður slíka fullyrðingu, einkum þetta tvennt: 1 fyrsta lagi hafa myndlist og listiðnaður nær aldrei birzt öðru vísi en sem liður í húsi, í öðru lagi felur húsið sjálft í sér höfuðeiginleika annarra listgreina. Húsagerðarlist er til dæmis málaralist að því leyti sem hún fæst við að raða á flöt og gefa honum líf með formi og litum, þar sem er sér- hver hlið hússins. Hún getur verið myndhöggvaralist að því leyti sem húsið er rúmform og hefur megin eiginleika höggverksins. Það er hægt að sjá það frá ýmsum sjónarhornum, ganga í kringum það. En húsagerðarlist er meira, einkenni hennar eru ekki eingöngu fólgin í því að vera summa þessara tveggja listgreina. Ég skildi eiginlega ekki fyllilega eðli húss sem rúmforms fyrr en ég stóð fyrir nokkrum árum á bökkum Arno og leit rústirnar kringum Ponte Veccio. Þá skildi ég, að hús er framar öllu poröst eða gegnumsmogið, afmarkað tóm, býkúpa, vikur- moli, þúsund smjúgandi leiðir fyrir menn. Málverk er líf í tvívíðum fleti og höggmyndalist líf í þrívíðu rúmi, en hér höfum við eins og allt í einu upp- götvað hina dulráðu fjórðu stærð: þetta að hafa líf innra með sér: Hús. Framhald. Eðli húsformsins 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.