Birtingur - 01.01.1955, Qupperneq 11

Birtingur - 01.01.1955, Qupperneq 11
Hvað er bygg- ingarlist? Tvö andstæð dæmi: skynsemi í skipulagi, taka ofurlítið tillit til mannsins og um leið til þess klassiska fyrirbæris sem gerir hús: hrynjandi stærða og samræmis ein- inga. Þá er viðkvæðið: þetta eru bara kassar. En þarna koma menn einmitt upp um sig. Hvað er hús annað en kassi með porportion, kassi, sem þægilegt er að ganga um ? Hins vegar er viðbúið að menn haldi að byggingarlist sé skraut og birtist í húsum með fjölda útskofum eins og Heilsuverndar- stöðinni eða ógurlega stórum eins og Hallgrímskirkju eða húsum með af- skaplega flottu pírumpári, stöllum og stiklum helzt í ætt við stuðlaberg ,eins og er utan og innan á Þjóðleikhúsinu. Við hljótum að telja þá, sem á einhvern hátt stuðla að því að hús rísi af grunni, sérstaklega ábyrga aðila í menningarlífi þjóðarinnar. Við skulum samt ekki láta okkur detta í hug, að við getum skellt allri skuldinni á þá, því við erum öll ábyrg. Sú listgrein, sem á vestrænum menningartungum hefur verið kölluð arkitektúr, nefnist á íslenzku byggingarlist. „Listin að reisa hús og fegra eftir ákveðnum reglum“ eins og stendur í orðabókinni. Orðið er dregið af gríska orðinu arkitekt, sem þýðir eiginlega yfirsmiður eða sá sem hefur menn í vinnu, af ,,arkos“ sem þýðir yfirmaður og „tekon“ sem þýðir verkamaður. Það virðist vera einfalt mál að skilgreina á þennan hátt byggingar- list og líklega erum við öll sammála skilgreiningu þessari, en málið vand- ast fyrst þegar við snúum baki við henni og stöndum andspænis veru- leikanum sjálfum, húsum af ýmsri gerð. Áður en við vitum af erum við komin í hár saman. Ég ætla að byrja að skýra mitt sjónarmið með því að taka tvö hús héðan úr Reykjavík, sem við höfum daglega fyrir augunum og allir Reykvíkingar hafa greiðan aðgang að, rannsaka þau, bera þau saman ef ske kynni að við gætum orðið einhvers vísari um hvað sé í rauninni sönn byggingarlist. Þessi hús eru gamlir kunningjar: Hið virðulega fyrra að- setur Hæstaréttar við Skólavörðustíg og Katólska kirkjan í Landakoti. En áður vildi ég taka þetta fram: Allir vitrir menn hafa mælt á móti alræðisvaldi smekksins, þessari algengu fullyrðingu að list verði ekki kennd eða skilin. List hefur hvortveggja í vef sínum vit og tilfinn- ingu. Það má komast langt í því að skýra ýmsa þá hluti er torskildir virðast vera fyrst í stað, enda þótt hinu megi aldrei gleyma að hin ferska og upprunalega tilfinning, hið fíngerða næmi taugakerfisins að svara á- hrifum umhverfis ræður ávallt úrslitum í list. En það er ekki smekkur. Sem sagt það er Tugthúsið og Landakostkirkja sem við ætlum að bera saman. Það er bezt að draga engan á því: Ég tek það fyrrnefnda langt fram yfir hitt. 1 mínum augum er það ef til vill merkasta hús á Islandi frá byggingarlistar sjónarmiði. 7

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.