Birtingur - 01.01.1955, Síða 20

Birtingur - 01.01.1955, Síða 20
GEIR KRISTJÁNSSON: Dvergurinn, snáðinn, fallega nafnið og rotturnar Snáðinn er farinn að brjóta heilann um margt. Hann hefur t. d. vissan grun um til hvers kvenfólk sé, og hvernig börn verði til. I þessu sambandi hefur hann í seinni tíð lært mikið af nýjum orðum. Að vísu er honum ekki full Ijóst um merkingu þeirra allra, en þeim mun sterkara orka þau á ímyndunarafl hans. Hann veit nokkurn veginn, hvað orðið mella þýðir og þekkir eina í sjón. Hún á heima skammt í burtu, og hann hefur oft séð fulla karla fara þangað inn á kvöldin. Hann hefur vissan grun um, hvað þau séu að gera, þótt hann sé ekki alveg viss um á hvern hátt slíkt fer fram. Þrátt fyrir allt þetta á hún þó ekki nema eitt tveggja ára gamalt barn, og sú staðreynd hefur einnig fengið honum mikilla heilabrota. Um þennan kvenmann hefur sífellt leikið ginning hins forboðna, þótt hún geti hvorki talizt fríð né fönguleg, og hann hefur oft tal- að um hana við stráka — stundum hafa þeir sezt margir saman undir gamlan nótabát til að tala um hana, og það hefur alltaf verkað þægilega kitlandi og æsandi. Hann hefur breyzt töluvert upp á síðkastið, en þó ekki mikið. Að sumu leyti er hann orðinn vandari að virðingu sinni. Vissar götur eru banngötur, og hann tekur oft stóran krók á sig til að forðast þær. Það eru götur þar sem hann á á hættu að mæta góðum frænkum sem stanza til að klappa honum á kollinn með blíðmæl- um sem koma honum til að roðna. Hann er nýfarinn að greiða sér og veit um stelpu á líku reki sem heitir þetta og þetta 16 sem hann aldrei segir, en honum finnst það fallegasta nafn í heimi. Hún hefur einu sinni séð hann ganga á höndunum, og hann hefur búið til handa sér töluverða sögu um, að það hafi haft áhrif á hana. Hann fer oft með þá sögu í huganum, og líka það verkar lokkandi eins og fyrirboði mikillar hamingju — ham- ingju sem ekki veitist öðrum en þeim full- orðnu, en aðeins börn kunna að meta rétti- lega. Það stælir hann í hnjáliðunum og örvar hugarflugið, en er þó með öllu óskylt þeirri tilfinningu sem fylgir því að sitja undir nóta- bátnum og hlusta á strákana. Sem stendur er hann að bíða eftir ofurlitlu sem hann langar til að sjá. Hann gáir oft fyrir húshornið milli þess sem hann stendur í höm, því hann er ber- leggjaður og það er enn hálf kalt, þótt komið sé fram í júní. Öðru hverju þeytast hagl- korn með vindinum og fara skoppandi yfir steinana eins og grjón, en þau bráðna fljótt, þegar þau koma í mold. Hann veit, að það er von á dvergnum uppúr hádeginu, því mamm- an hefur fengið grun um rottubú í gamalli kistu niðri í kjallara. Hann man að það hefur einu sinni áður verið sent eftir dvergnum. Þá komst rotta inn í stofuna, og dvergurinn skreið undir sófann í horninu til að ná í hana. Hann hafði vafið strigapoka um hendurnar, og það ískraði svo skrítilega í honum um leið og hann náði henni — eða var það í rott- unni? Snáðinn man það ekki greinilega, en hann man að dvergurinn hló mikið, þegar hann drap hana. Þá var hann svo lítill, að eng-

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.