Birtingur - 01.01.1955, Page 25
neska saðningu en gerir sálirnar himneskar
og göfugar.
Eða er það ekki það sem stendur til?
Ja ef maður vissi .......
Kjarval
Nú stendur hátíð inspírasjónarinnar yfir.
Kjarvalssýning. Ætlar hann bara alveg að
sprengja okkur, maðurinn? Hann er svo
dæmalaust snjall að þegar við höfum staðið
frammi fyrir sumum myndunum góða stund
spilar svo sterkt inn í okkur að við þorum
ekki að snúa okkur við og láta sjá framan í
okkur gegnum upprúlluð prógröm þeirra sem
eru alltaf að athuga hver annan og kíkja
á náungann. Og okkur finnst við þyrftum
kannski að stæla trúðleika meistarans til að
komast klakklaust út með þær sýnir sem
okkur hafa vakizt. Núna er þetta mesta
náttúruséní íslenzkra myndlistarmanna 69
ára. Það sér hver maður að nær ekki
nokkurri átt, lítið bara á myndirnar: Þetta
gerir aðeins maður sem er ungur. En það
eru nú samt níu ár síðan hann varð sextugur.
Þá var verið að tala um að byggja hús
þar sem við gætum gengið að myndum meist-
arans vísum og vitað af honum sjálfum í vist-
legum húsakynnum. Síðan var ekki minnst
á þetta í níu ár en nú virðast allir vera af-
skaplega hneykslaðir yfir því að húsið skuli
ekki hafa verið byggt.
En húsið herrar mínir: Hvenær á að byrja ?
(Skrifað A sýningunni).
Svarað auqlýsingu eítir útvarpssögu
Heldur er daufleg dagskráin í útvarpinu
og ekki margt til yndis en þó vil ég þakka
nokkra ágæta þætti á fyrra vetri og þá fyrst
og fremst upplestur Laxness á Sölku Völku
og Njálulestra Einars Ólafs Sveinssonar. Þá
var lofsvert efni um íslenzkt mál hjá Halldóri
Halldórssyni, náttúrlegir hlutir og síðast en
ekki sízt myndlistarþættir Björns Th. Björns-
sonar og það var notalegt að heyra Andrés
Björnsson lesa Don Camillo í sumar.
En því minnist ég á útvarpið að ég vil bera
fram ósk mína sem ég hef heyrt geysimarga
aðra orða þess efnis að útvarpsráð fari á
fjörur við Halldór Kiljan Laxness að hann
lesi enn í vetur fyrir okkur úr verkum sín-
um og mættum við þá kannski biðja um að
fá að heyra Sjálfstætt fólk. Er það kannski
til of mikils mælzt af útvarpsráði að það gefi
okkur kost á því að heyra meira til þess nú-
tímahöfundar okkar sem einn hefur skapað
heimsbókmenntir og flytur auk þess með svo
sérstæðum og hrífandi hætti að nýir skoð-
unarmátar vekjast á verkum hans sem við
höfum lesið fram og aftur.
Mál og menning og Kristinn Andrésson
Varla verður of mikil áherzla lögð á nauð-
syn þess að styðja öfluglega Kristin Andrés-
son í menningarstarfi hans með því að afla
Máli og menningu nýrra félagsmanna og í
hvaða fyrirtæki á alþýðan í þessu landi að
kaupa hlutabréf með samskotum og sam-
tökum ef ekki í sínu eigin: bókaútgáfu Máls
og menningar.
Mál og menning hefur fagnað því láni að
hlíta forystu mikilhæfs hugsjónamanns sem
lætur enga farartálma hindra sig né buga.
Nú veit ég verið er að gera átak sem krefur
allan þann stuðning sem félagsmenn mega
frekastan veita svo Mál og menning eigi ör-
ugglega sitt hús sjálft og sé tryggt aðsetur
við umferðaræð. Margur hefði látið við sitja
21