Birtingur - 01.01.1961, Qupperneq 80
að sjálfsögðu meiri vöruframleiðslu í för
með sér. Nú er því svo farið í Sovétríkj-
unum, að Flokkurinn ræður öllu, einnig
ríkisvaldinu. Einn af mikilvægustu þáttum
í starfsemi flokksins, er að kenna mönn-
um hugmyndafræði, ídeológíu sína. Listir
snerta allmjög hugmyndafræðileg efni.
Þessvegna er þeim sett það verkefni að
kenna mönnum kommúnistíska hugmynda-
fræði. Af þessu leiðir tvö eðlislæg ein-
kenni á öllum listum í Sovétríkjunum: 1.
Þær eru dídaktískar: eiga að kenna mönn-
um réttan hugsunarhátt (þ. e. hugsunar-
hátt Flokksins), ala menn upp í anda
kommúnismans og fá menn til að þjóna
honum, 2. Þær eru tæki í höndum Flokks-
ins og ríkisvaldsins til þess að reka áróð-
ur. öll list í Sovétríkjunum er áróðurs-
list.
Það er því ekki að undra, að það er eitt
af verkefnum forsætisráðherrans í ríkinu,
eða annars þar til kjörins ríkisforingja,
að segja listamönnum, hvernig þeir eigi
að starfa. Á fyrstu árunum eftir stríðið
var það Zdanoff hershöfðingi, sem hafði
þetta verkefni með höndum, og gætir enn
áhrifa af ofstæki hans og þröngsýni, þótt
Krússof-stjórnin hafi numið úr gildi
nokkrar af tilskipunum hans um listir.
Núna er það Krússof forsætisráðherra,
sem hefur tekið að sér að gefa listamönn-
um línuna. Hann hefur oft tekið til máls
um afstöðu flokksins til lista og bók-
mennta, enda þótt hann hafi að vísu ekk-
ert vit á listum og lýsi því yfir í hverri
ræðu, að hann hafi engan tíma til að
lesa skáldverk, noti þau reyndar aðallega
sem svefnmeðal. I prédikun til rithöfunda,
skömmu eftir að hann tók við forsætisráð-