Birtingur - 01.06.1966, Blaðsíða 13
um, er með líkum hætti og bæjardyraþilsins, en innansmíð Stofunnar er
með stafverkssniði; húsgrindin er sýnileg, stoðir, syllur, bitar, sperrur, lang-
bönd, reisifjöl og j^iljur eru strikuð: grunn skreytigróp eru skorin við
brúnir þeirra. Þiljur eru þykk borð, sem ganga í heilu lagi frá syllu í
8 aurstokk, eða eins og Oddur Einarsson segir: „hið innra eru þau víða
þiljuð tilskornum fjölum, borðum eða plönkum allt frá gólfstétt upp til
þakhvelfingar“. Moldargólf er í húsinu. í innsta stafgólfi við stafn er
timburgólf upphækkað: hápallurinn, fyrir framan hann eru nokkur j:>rep
upp að ganga. í pallstæðinu með veggjum eru fastir bekkir á þrjá vegu,
enda þeir við pallbrúnina í bríkum, sniðnum eftir rómanskri stíltízku.
Langt borð er fyrir framan stafnbekkinn, hápallsborðið með StÓlum, þ.e.a.S
sterklegum borðfótum, sem staðið geta einir sér, borðplatan er lögð laus
ofan á. Fyrir framan pallinn eru bekkir með báðum hliðum stofunnar
og borð fyrir framan þá með sams konar umbúnaði og hápallsborðið.
Fótaskör er við bekki. Þessi skipan stofunnar mun eiga rót sína að rekja
9 til Ólafs kyrra. Snorri segir: „Þat var siðr forn í Noregi, at konungs hásæti
var á miðjum langpalli; var öl um eld borit. En Ólafr konungr lét fyrst
gera sitt hásæti á hápaiii um j^vera stofu.“ Þessi tízka kemur sunnan að. í
l'æfurkverk er vindauga eitt eða fleiri, ef til vill skjágluggar neðarlega á
þekju, eftir miðja 17. öld má búast við einum glerglugga á stafni. Sums
staðar voru forstofur, eitt stafgólf var þá þiljað af í milli andar og stofu,
auk þess hafa oft verið Iokrekkjustæði eða svefnklefar fremst við skil-
rúmsþilið. Stundum voru stofur þessar tjaldaðar, en það mun einkum
hafa verið fyrr á öldum. Þó er getið tjalda og refla í stóru stofu á Hólum
allt fram yfir miðja 17. öld.
NÚ skulum við ganga fram til andar að nýju og halda beint af augum um
dyr á skilrúmsþili, sern þá blasir við, til skála. Skálinn er svefnhús stað-
arins, þar sofa allir nerna húsráðendur, sem halda tii í litiu baðstofu. f
skálanum er grindarsmíð með sama sniði og í stórustofu. í skála munum
við frekar kannast við okkur, hann líkist að mörgu leyti stórum baðstofum
BIRTINGUR
11