Birtingur - 01.06.1966, Blaðsíða 42

Birtingur - 01.06.1966, Blaðsíða 42
eða heyrir eru ekki jafnmikilvæg og þær sögu- aðstæður sem stóðu að baki þeim. Um tíu ára skeið vann ég í umhverfi, þar sem fortíðin og framtíðin voru engu látin skipta. Við unnum og vissum ekki, hverju það heyrði til sem við gerðum eða hvort það heyrði nokkru sérstöku til. Það sem við gerðum var ekki í andófi við fortíðina. Uppreisn gegn sög- unni er hið sama og hlutdeild í henni. Við höfðum bara alls ekki áhuga á rás sögunnar. Við fengumst við hljóðið sjálft. Og hljóðið veit ekkert um sögu sína. Byltingin sem við vorum að gera var hvorki þá né nú metin að verðleikum. En öll banda- ríska byltingin var ekki metin að verðleikum heidur. Ekki fyililega. Hún hefur aldrei verið talin jafnmikilvæg og franska byltingin eða sú rússneska. Hvers vegna ætti svo að vera? Ekkert blóðbað átti sér stað, engin ógnar- stjórn. Við höldum ekki hátíðlegt neitt of- beldisverk — við höfum engan Bastilludag. Við sögðum aðeins: „Gefið mér frlesi eða dauða.“ Verk okkar höfðu ekki það áhrifavald, mér liggur við að segja þá ógn sem svo mjög loðir við kenningar Boulez, Schönbergs og nú Stockhausens. Þessa stóra sannleiks, þessarar þvingunar er krafizt af listaverki. Af þeim sökum hefur hinni raunverulegu hefð 20. aldar í Banda- ríkjunum, hefð sem þróazt hefur frá raun- hyggju Ives, Vereses og Cage, verið hafnað sem „eyðileggingarstefnu" og það er orðið sem notað er um fúskara. Þegar þú gerir í tónlist eitthvað nýtt, eitthvað frumlegt, þá ertu ama- tör. Þeir sem eftir þér herma eru atvinnu- mennirnir. Það eru eftirapendurnir sem ekki hafa áhuga á því sem listamaðurinn skapar, heldur aðferð- inni sem hann notaði. Hér gerist það, að handverkið kemur til sögunnar og verður hin algjöra afstaða hermikrákunnar, sem slítur öll tengsl við sköpunarmátt frumkvöðulsins. Eftirhermarinn er erkióvinur frumleikans. Honum þykir „frelsi“ listamannsins leiði- gjarnt, því að í frelsi getur hann ekki tekizt á hendur „hlutverk" listamannsins. Til er hins vegar annað hlutverk sem hann getur leikið og leikur. Einmitt þessi eftirhermari, þessi „atvinnumaður“ gerir listina að menningu. Þetta er sá maður sem leggur áherzlu á sögu- leg áhrif listaverks. Maðurinn sem tekur úr því og nýtir allt sem notað verður, frá sjón- armiði heildarhyggju. Maðurinn sem gæðir það eigindum eins og dyggð, siðgæði og „al- menningsheill“. Maðurinn sem treður heim- inum inn í það. Proust hefur sagt, að það sé mikill misskiln- ingur að leita fremur að reynslu í hlutveru- leikanum en í okkur sjálfum. Hann kallar 40 BIRTINGUR

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.