Birtingur - 01.06.1966, Blaðsíða 14
Skáli, tciknað cftir úttektarlýsingum
frá 19. öld. Þó er allt með stærra og myndarlegra sniði. Rekkjur eru hér á
báðar hendur. Innst eru lokrekkjur, stundum prýddar skurði. Þar fyrir
framan eru stafnrekkjur. Þær eru þiljaðar á þrjá vegu, en opnar framúr,
síðan sjáum við vanalegar rekkjur. Þil er fyrir ofan þær. Rúmstæðin eru
greypt föst í grind hússins með stokkum og bríkum. Moldargólf er hér
sem í stofu, en láréttri fjöl er komið fyrir neðst við rúmstokkinn með
styttum undir, það er skörin um það bil 50—60 cm frá gólfi. Þannig var
þægilegra að stíga framúr.
Ég sagði áðan, að skilrúmsþiljur andar deildu langhúsinu í þrennt. Ekki
var það alltaf svo, oft var búr inn af skála undir sama formi, þ.e.a.s. búr
og skáli var eitt hús með þili á milli. Á stærstu bæjum var meira að segja
önd milli búrs og skála og dyr fram af, kvendyr. Hét þá aðalinngangur
12
MRTINGUR