Birtingur - 01.06.1966, Page 50
Næstu tíu mínútur — viS eygjum ekki lengra
en svo, og við þurfum ekki að fara lengra.
Ef listin á sitt himnaríki, er það þessi stund.
Ef nokkur tengsl verða gerð við söguna, verða
þau samkvæm þeim sannindum sem dregin
eru saman í þessum orðum de Koonings:
„Sagan hefur ekki áhrif á mig. Ég hef áhrif
á hana.“
Þórir Ragnarsson og
Atli Heimir Sveinsson þýddu
TIL LESENDA
Með þessu hefti lýkur 12. árgangi Birtings. Fyrsta hefti ársins 1967 er þegar
fullsett og búið til prentunar. Kemur það út fyrir áramót.
Árgjaldið 1966 féll í gjalddaga við útkomu seinasta heftis, en innheimta
þess hefur að yfirlögðu ráði verið látin bíða lokaheftis að þessu sinni. Mega
kaupendur nú eiga von á rukkun innan tíðar, og bið ég þá að greiða fljótt
og vel úr erindi innheimtumannsins. Áskriftargjaldið hefur verið óbreytt
fyrir þrjá seinustu árganga, en viðreisnin lætur ekki slíka verðstöðvunar-
stefnu viðgangast lengur en orðið er. Verðum við því efalaust að hækka
gjaldið eitthvað á næsta ári.
Birtingur þakkar lesendum liðna tíð og óskar þeim árs og friðar.
Einar Bragi
48
BIRTINGUR