Íslenskt mál og almenn málfræði


Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1981, Blaðsíða 190

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1981, Blaðsíða 190
188 Ritdómar (38) a I expected a specialist to examine John b I persuaded a specialist to examine John Hér, líkt og var um nafnháttarsetningarnar sem frá sagði í 5. kafla, hefur því verið haldið fram (t. a. m. af Bresnan 1978) að nafnhættina í setningum eins og (35) eða (38)a beri í ensku einfaldlega að líta á sem sagnliði, og að hlutir eins og það að yfirborðsandlagið er skilið sem merkingarlegt frumlag með nafnháttar- sögninni verði best greindir með einhverjum „merkingarreglum" eða lýsingu á merkingarlegu eða röklegu „hlutverki“ eða venslun (logical function — sbr. HÞ bls. 350). HÞ tínir til fjölda atriða sem hann telur að sýni að frá setningafræðilegu sjónarmiði sé eðlilegt að lita svo á sem forcldrana í (35) sé í djúpgerðinni frumlag með fara, sem hefur verið „flutt upp í“ aðalsetninguna og gert þar að yfirborðs- andlagi. Meðal merkingarlegra atriða sem HÞ nefnir eru hegðun atviksliða sem merk- ingarlega virðast eiga við heilar setningar, svo sem augíjóslega, sennilega. Það er óeðlilegt að tveir atviksliðir af þessum flokki standi í einni einfaldri setningu: (39) ?Augljóslega hefur Jón sennilega farið (bls. 342) Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu í setningum sem hafa þolfall með andlagi: (40) Augljóslega telur Jón Maríu hafa sennilega farið (bls. 342) Þetta segir HÞ að sé eðlilegt miðað við það að í (40) séu tvær baklægar setningar, en hins vegar þurfi sérstakar tilfæringar til að gera grein fyrir þessu ef hún er talin ein einföld setning. Auk þess sem HÞ heldur því fram að setningar eins og (35) beri að skoða svo sem þær hafi aukasetningu í djúpgerð, leggur hann mikið upp úr því að sýna fram á að grundvallarmunur sé á formgerð setninga eins og (35) og (37). Það er að sjálf- sögðu hægt að neita að trúa því að (35) sé leidd af samsettri djúpgerð (og hið sama væri hægt að segja um (37)), en viðurkenna þó að munur sé á formgerð setning- anna. En greiningu Bresnans virðist vera þannig varið að ekki yrði neinn setninga- fræðilegur munur á þessum tveimur gerðum í ensku a. m. k. (hún fjallar ekki um íslensku). Munurinn á gerðunum tveimur yrði hjá Bresnan, að því er mér skilst, byggður á ólíkum „logical functions", eins konar „röklegum venslum", sem leiðir af ólíkri flokkun sagnanna sem taka þátt í setningunum. Þetta yrði væntanlega greint þannig að sögnin álíta hafi tengdan sér (í táknforðanum, lexíkoninu) ramma sem segir að í samböndum eins og (35) verði hið „lógíska" andlag hennar ekki skilið sem foreldrana, heldur líkt og í (36) öll „yrðingin" foreldrarnir hafa farið. Sögninni biðfa yrði aftur tengdur annars konar rammi sem gerir það að verkum að sambandið verður skilið þannig að sögnin biðja hafi tvö (,,lógísk“) andlög, Stebbi og (Stebbi) fara heitn. Það sem HÞ leggur megináherslu á er það að með hinni hefðbundnu greiningu sé samband setningakerfis og merkingarkerfis ein- faldara en í greiningu eins og þeirri sem Bresnan o. fl. aðhyllast. Hér myndu hinir þó e. t. v. geta spurt hvort ekki sé verið að teygja setningafræðina of mikið í áttina að merkingarkerfinu og tjá hluti með „setningagerðartrjám" sem í rauninni séu merkingarlegs eða einhvers annars eðlis. Hér er greinilega komið að almennu vandamáli sem er undirrót mikils af þeim skoðanaágreiningi, svo ekki sé sagt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.