Vera - 01.05.1983, Qupperneq 17

Vera - 01.05.1983, Qupperneq 17
Unglingar í Reykjavík Ööru hvoru verða málefni unglinga fréttaefni fjölmiðla. Oftast er ástæðan sú að fréttamenn hafa orðið varir við tiltekin mál sern vekja athygli þeirra. Venjulega eru þær fréttir sem berast af unglingum „sölufréttir", hneykslun- arfréttir, sem skjóta upp kollinum í pressunni og svo er ekkert talið fréttnæmt af þessum hópi þar til næsta „sölu- frétt“ rekur upp á borð fréttamanna. Þetta er ekki æskilegur máti að fjalla um málefni ungl- inga. Hann er til þess fallinn að stimpla þennan hóp, hann verður jafnvel hættulegur í augum sumra fullorðinna og hann eykur á þetta margumrædda kynslóðabil. Við sem stöndum að þessari borgarmálaopnu Veru viljum reyna að fjalla unt málefni unglinga frá öðru sjón- arhorni. Við munum freista þess að gefa lesendum nokk- urt yfirlit yfir það, sem unglingum stendur til boða að frumkvæði borgarinnar. Við munum gera grein fyrir til- lögum Kvennaframboðs til úrbóta og loks viljum við vekja athygli á tveim málum, sem við teljum að borgar- yfirvöldum beri skylda til að bregðast við. Þessi mál eru sívaxandi fjöldi leiktækjasala, sem ciga tilvist sína fyrst og fremst undir peningaplokki af börnunt og unglingum og fíkniefnaneyslu vaxandi hóps unglinga. 17

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.