Vera - 01.12.1983, Page 4

Vera - 01.12.1983, Page 4
Persónuleiki kvenna og sjálfsmynd er mótuð allt frá barnæsku í takt við hugmyndir og kröfur samfélagsins. Hinir sérstöku kvenlegu eigin- leikar eru þroskaðir með stelpum svo þær megi verða færar um að takast á við hið félagslega áskipaða hlutverk, kven-hlutverkið. í okkar þjóöfélagi felst í því hlutverki umönnun barna, aldraöra og sjúkra, búsýsla, þjónusta viö karla og margt fleira. En þrátt fyrir vinnuframlag kvenna og þá miklu ábyrgö sem þær bera á líðan og velferö einstaklinganna þá hafa þær að sama skapi ekki aðgang aö þeim þjóöfélagslegu valdatækjum er ákvaröa félagslegar forsend- ur þess. Valdaleysi kvenna hefur í gegnum tíðina verið viöhaldiö af hugmyndafræöi ríkjandi yfirstétta, um konuna sem óæöri karlinum. En það velta vissulega margir því fyrir sér hvers vegna konur noti ekki tækifæriö betur, nú þegar búiö er að afnema nær allar fyrri lagalegar hindranir gagnvart félagslegri og pólitískri þátttöku þeirra.og jafnréttislög í gildi. Hvað mótar persónuleikann Nú er ekki lengur leitað svara í líffræðilegum né trúarlegum kennisetningum um konuna, heldur í félagslegri mótun einstakl- ingsins, uppeldi og væntingum þjóðfélagsinstil hans. Þettaerflókiö ferli og leiðir hugann vissulega aö því aö breytingar á manneskjunni fara ekki fram í einu vetfangi. En óneitanlega er það mikilvægt aö gera sér sem besta grein fyrir því hvernig félagsmótun á sér staö og hvaöa þættir það eru sem móta persónuleika fólks á þann hátt aö sumir tileinka sér kvenleika en aörir karlleika. Einnig má velta fyrir sér þessari miklu áherslu sem lögö er á mismunandi hegðun fólks eftir kyni. Hvaöa eiginleikar eru það sem stúlkur þroska meö sér sem gerir þær að uppalendum, eða þá karla að fyrirvinnum og síðast en ekki síst hvaða þættir eru það sem ráða mestu um það að konur sækja ekki meir til þjóðfélagslegra áhrifa og valda en raun ber vitni? Öllu þessu er bæöi gaman og gagnlegt aö velta fyrir sér í tengsl- um viö kvennaumræðuna. Uppreisn kvenna er einmitt tengd þess- um álögum svo sem þeim aö það aö fæöast kvenkyns skuli marka þér hinn þrönga bás kvenleikans, kvennastarfa og kven,,eölis“. Konur berjast fyrir því í samtökum um allan heim aö afnema hina einstrengingslegu hlutverkaskipan og þá um leið misréttið sem henni er samofin. DeBeauvoir og Dowling Simone DeBeauvoirfjallaði m.a. um það íbóksinni ,,The second sex“ á hvern hátt stúlkur voru tamdar og hreinlega markvisst mót- aöar eftir hugmynd um hina fullkomnu konu, eiginkonu og móöur þess tímabils. Þá var ríkjandi ímynd hinnar hlédrægu, uppburðar-

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.