Vera - 01.12.1983, Blaðsíða 47

Vera - 01.12.1983, Blaðsíða 47
borgum og til sveita reyndust vera til að hafa kvennabækurnar á boðstólum. (Stærsta bókabúðakeðja Bretlands, W. H. Smith, neit- aði að selja bækurnar þangað til á þessu ári.) ( gegnum bóka- klúbbinn geta konur á einangruðum stöðum fengið upplýsingar um það, sem er á boðstólum eftir kynsystur sínar og látið senda sér heim eftir vild. Verslunarstjórar eru auðvitað farnir að sjá sig um hönd í þessum efnum núna, þeir hafa uppgötvað að það var gat á markaðnum, sem þeir vilja nú ekki missa af sjálfir. Bækurnar sem „týndust“ Gömlu karlaforlögin eru að gera einmitt þá uppgötvun líka. Nýj- asta sönnun þess er stofnun sérstakrar kvennadeildar hjá gamal- gróna fyrirtækinu Routledge & Kegan Paul undir vöruheitinu Pan- dora. Sú ráðstöfun að fá konu öll völdin í þeirri deild þótti sönnun þess að kvennabókmenntir hafa komið, séð og sigrað. Ritstjóri Pandoru, hún heitir Philippa Brewster, lét ekki þar við sitja heldur byrjaði ferilinn með djarflegri grimmd og gaf út bókina „Intruders on the Rights of Men: Women’s Unpublished Heritage” eftir Lynne Spender. Lauslega þýtt gæti bókin heitið á íslensku: Árás á réttindi karlanna: Óprentuð arfleifð kvenna. (Sú bók er raunar ágæt lesning þeim, sem fást við útgáfu, hvort sem það er bóka, blaða eða tímarita.) Lynne er þeirrar skoðunar (eins og svo margar okkar) að þar eð kvenrithöfundar hafi svo iöulega ,,týnst“ í gegnum tíðina, geti þeir auðveldlega ,,týnst“ aftur, nema því aðeins að konurséu sjálfar í aðstöðu til að stýra því hvort verk kvenna séu gefin út eða ekki. Sem er auðvitað mergurinn í málinu og megin ástæða þess krafts, sem ensku stelpurnar hafa lagt í útgáfumálin: Það er eins gott að við sjáum til þess að rödd okkar heyrist, annars verður hún þögguð niður á einhvern lúmskan hátt enn einu sinni. Á bókalistum kvennaforlaganna eru enda titlar bóka, sem skrifaðar voru aftur í öldum en bóka, sem þeir, sem hingað til hafa haldið í taumana, hafa af einhverjum orsökum (sic!) ekki séð ástæðu til að halda sérstak- lega á lofti. Og eftir því er tekið í bók Lynne, að hún varar við endurtekningunni: „Ráðning fleiri kvenna í valdastöður hjá útgáfu- fyrirtækjunum og í útgáfuiðnaðinum yfirleitt og aukinn hlutur kvennabókmennta á markaðnum hefur að vísu stórkostlegt gildi fyrir konur og alla kvennahreyfinguna en þetta kann að vera aðferð karlanna til að hægja á fremur en hraða grundvallarbreytingum í dreifingu valdsins.” Þannig að á það er síður en svo treystandi, að yfirmenn til að mynda Philippu Brewster muni til lengdar láta henni eftir að velja til útgáfu þær bækur, sem henni er mest í mun að koma á framfæri. Þeim kann að þykja nóg um áður en yfir lýkur! Svo konurnar verða að halda ótrauðar áfram, ætli þær ekki að láta þagga niður í sér eina ferðina enn. Svona er nú málum sem sagt háttað hjá breskum. Þið vitið hvað gera skal ef þið vinnið stóra vinninginn! Við höfum heyrt á skot- spónum að hér heima sé nú unnið að þýðingu á skáldsögu eftir Doris Lessing og sjálfsævisögu Simone de Beauvoir, hvorugt á- hlaupaverk og enn nokkur bið að árangurinn birtist á búðarborðinu. Hvað um það, glæta í fjarska er betri en engin glæta. Þess skal getið aö lokum aö það er mögulegt að gerast félagi í áðurnefndum bókaklúbbi hér heima, munaður sem enskulesandi konur ættu að leyfa sér. Upplýsingar er að fá á Hótel Vík. Ársgjaldið nemur um 200 krónum og skilyrði er að kaupa fjórar bækur á ári. Ms SKVNDmeTTuR fPylsur ttXLPoOré,,,.^ SKVNOIBÉTTUB . Hantborgari Títlkr, í hádeginu, á kvoldin - heima, í vinnunni, á ferðalögum, og hvar sem er. Lykkjulok - enginn dósahnáfur. Fæst í næstu verslun! Niðursuðuverksmiðjan ORA hf. ,áfio dósina standa 1 5 min.i heitu vatn í potti eða vaski, áður en hún er opnuð og rétturinn er tilbuinn. Hótel Hekla eða Hof? Nýtt nafn? Já, en nafniö er ekki aöai- atriöiö, heldur umhverfiö og móttökurnar. Veit- ingasalurinn hefur veriö endurnýjaöur og viö bíö- um eftir þér meö mat eöa rjúkandi kaffi og heima- bakaðar kökur. Líttu inn. Viö erum i alfaraleiö. +lóteL-Uoj) Raudarárstíg 18 -Sími 28866 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.