Vera - 01.12.1983, Blaðsíða 51
Ljósmyndir: Þjóóviljinn
Ömmusögur og friðarmál
í febrúarblaði Veru á þessu ári sendi
Hansína Skúladóttir ykkur pistil um
stofnun Kvennahreyfingarinnar á Hér-
aði haustið áður og um það sem þá var á
döfinni.
Nú viljum við endilega halda þræðinum
og segja ykkur frá því sem við höfum
gert síðan og frá því sem við hugsum
okkur að gera í vetur.
var á fjölmennum fundi sem við héldum í
Gistihúsinu Egilsstöðum. Helga flutti erindi
um kvennamenningu, sem var bæði fróð-
legt og skemmtilegt. Erindi Helgu varð
kveikjan aö námskeiði í kvennasögu sem
haldið var á Eiðum dagana 10.-12. júní í
sumar. Þar voru saman komnar 27 konur
víða að af Austurlandi, ásamt tveimur að
sunnan fyrir utan þær Önnur Sigurðardótt-
ur forstöðukonu Kvennasögusafnsins og
Helgu Sigurjónsdóttur kennara, en þær
fluttu okkur dýrmætan fróðleik um kvenna-
sögu.
Ömmusögurnar voru einstakar. Þá var
unnið í litlum hópum og átti hver þátttakandi
að segja frá lífi ömmu sinnar. Margar okkar
höfðu jafnvel í fyrsta skipti aflað sér ná-
kvæmrar vitneskju um líf ömmu og orðið
áskynja um ýmislegt athyglisvert varðandi
áhugamál þeirra og lífsbaráttu. Þessi þáttur
sannfærði okkur betur en nokkuð annað
um gildi þess að þekkja sögu okkartil þess
að geta fetað veginn fram á við.
Ymislegt var svo til gamans gert, mikið
sungið og leikið, og kvöddumst við með
8 mars sl. tókst stórkostlega vel. Við fór-
um með frumsamin lög og Ijóð um baráttu-
mál okkar kvenna. Fluttum pistila um líf
kvenna fyrr á öldum, s.s. nornasögur,
lækningastörf kvenna og svo bæði Ijóð og
smásögur um nútímakonur. Friðarmálin
voru líka snar þáttur I dagskránni. Þetta var
feykilega skemmtilegt kvöld og ekki var
fundarsóknin til þess að skemma það, þar
sem fundinn sóttu um tvö hundruð manns.
En þrátt fyrir mikla vinnu við undirbúning
fyrir 8. mars, vorum við aftur komnar á fullt
12. mars, því þá voru hjá okkur þær stöllur
Helga Sigurjónsdóttir úr Kópavogi og
Gerður Óskarsdóttir frá Neskaupstað. Það
söknuði eftiryndislega helgi, en staðráðnar
í að hittast eina helgi á ári framvegis.
Nú er kominn vetur og eftir langt sumar-
frí erum við að tínast saman aftur. Við mun-
um einbeita okkur að kvennasögu sem
aðalefni og starfa í 6-8 kvenna umræðu-
hópum. Síðan er gert ráð fyrir að allir hópar
sameinist á 6 vikna fresti og geri grein fyrir
því starfi sem fram hefur farið í millitíðinni.
Þetta form gerir þeim konum kleift að fylgj-
ast með starfinu sem ekki geta mætt reglu-
lega í umræðuhópa en vilja vera með. Síð-
an verður að sjálfsögðu staðið fyrir fundi 8.
mars og fleiri skemmtilegum uppákomum.
Þegar við skildum í sumar voru 40 konur
starfandi í Kvennahreyfingunni á Héraði og
vonum að við verðum enn fleiri nú, þar sem
svo vel tókst til í fyrra.
Við sendum ykkur öllum baráttukveðjur
hvar sem er á landinu ásamt sérstakri
hvatningu til landsbyggðarkvenna um að
hefja kvennastarf sem fyrst. Því að það þarf
ekki nema lítinn snjóbolta uppi á fjalli og
hann getur fyrr en varir orðið að skriðu.
Kvennahreyfingin á Héraði
51