Vera - 01.12.1983, Qupperneq 29

Vera - 01.12.1983, Qupperneq 29
Þessar upplýsingar fékk VERA hjá ,,Langbrókum“ sjálfum þegar hún fór að forvitnast eitthvað um þetta ágæta Gallerí sem eingöngu er rekið af konum. VERU þótti forvitnilegt að vita hvort og ef þá hvern- ig konur túlka sinn margfræga ,,reynslu- heim“ í verkum sínum. Jafnframt hvort Langbrækur væru kannski líka að heyja sína kvennabaráttu - á þessu sviði - en fyrst og fremst langaði VERU til að segja lesendum sínum frá þessum svo ágætu konum og hvernig það væri að vera lista- kona í dag. Á ákaflega kvenlegan hátt, hittumst við heima hjá einni yfir góðum kaffibolla og meðlæti eftirfarandi Langbrækur: Ásrún Kristjánsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir, Elísabet Haraldsdóttir, Guðrún Gunnars- dóttir, Sigrún Eldjárn, Rúna (Sigrún Guð- jónsdóttir), Sigrún Guðmundsdóttir og út- sendari VERU. Hvers vegna stofnuðuð þið Gallerí Langbrók? (spyrég gáfulega) Það voru fyrst og fremst tauþrykk- og textílkonur sem þurftu samanstað til að koma verkum sínum á framfæri sem stofn- uðu Gallerí Langbrók. Ásrún (vinkona min sem er kvenskörungur góður og kaus Kvennaframboðið) bætir við: í kjölfar kvennabaráttunnar fara konur að hasla t -3 þessari nýju listgrein sinni völl (þ.e. textíl). Konur leita að miðli til að tjá sig í, miðli sem er þeirra og þær þekkja og þeim líður vel í að nota. Konur eiga sér hefð í að fara með band, þráð, vefa og þær eiga sér forsögu í aðvinnaúrullinni. Eru konur í meirihluta í textíl? (hlutlaus spurning) Já og ekki bara í textíl heldur lika í grafík og keramík. En sem myndlistarform þá á textíllinn minnstu hefðina. Afhverju eingöngu konur? (spyr ég einsog ég skilji það ekki!) Svörin voru á þessa leið: Það var alveg meðvitað að hafa bara konur með. Þær treystu hver annarri. Þekktust fyrir. Voru skólasystur. Það var öruggara, þægilegra og auðveldara. Milli þeirra ríkir ekki þessi samkeppnisandi heldur mikil samkennd og metnaður fyrir hver aðra. Jafnframt skiln- ingur á persónulegum vandamálum, svo sem eins og barneignum og þeim fjarvist- um sem þeim fylgir. Það er engin ein sem ræður eða stjórnar heldur er ákveðin verkaskipting. Ef ein heldur sýningu hjálpa hinar. Hvernig hefur reksturinn gengið? Þetta hefur verið gífurleg vinna, sérstak- lega við að koma upp húsnæðinu (í Bern- höftstorfunni) en jafnframt mikill spenning- ur sérstaklega í upphafi. Það var mikið fjör þegar fyrsti púðinn seldist! (og nú fá allar hláturskast) Það hafði ekki verið neitt reikn- að með því og þótti þeim eiginlega hálf- sorglegt að selja vöruna. En það var draumurinn (sem enn hefur ekki ræst) að | geta unnið sín verk, selt þau og komið á | framfæri í Galleríinu og lifað af því. 29

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.