Vera - 01.12.1983, Side 35

Vera - 01.12.1983, Side 35
Stefnan í dagvistarmálum 1984 Nú þegar er hægt að gera sér allgóða grein fyrir stefnu ríkisstjórnar og meirihluta borgarstjórnar í dagvistarmálum. Skv. lögum ber ríkinu að greiða helming kostnaðar við byggingu dagvistarheimila á landinu öllu. Greiðsla ríkisins skiptist jafnt niður á fjögur ár. í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1984 er upphæðin sem verja á til þessa verkefnis 30 milljónir. Hún er 3 milljónum kr. hærri en í fjárlögum ársins í ár. Um er að ræða 11% hækkun milli ára á metári verðbólgu í landinu! Skv. upplýsingum menntamálaráðuneytisins þýðir þetta, að ríkið mun hvergi nærri standa við þegar gerðar skuldbindingar sínar, hvað þá heldur leggja nokk- uð fram til nýbygginga á næsta ári. Bygging dagvistar- heimila á greinilega ekki upp á pallborðið hjá ríkis- stjórninni, fremur en annað sem miðar að sameiginlegri þjónustu. En hvernig er þá stefna íhaldsmeirihlutans í borgar- stjórn? I byrjun október sl. lögðum við fram í félagsmálaráði tillögu um að 4% af tekjum borgarinnar næsta ár og út kjörtímabilið yrði varið til uppbyggingar dagheimila og skóladagheimila í borginni, eri þar með yrði hægt að gera verulegt átak í þessum mikilsverða málaflokki. Ihalds- meirihlutinn greiddi atkvæði gegn þessari tillögu. Það er fremur óvenjulegt að meirihlutinn hafi fyrir að greiða til- lögum mótatkvæði, venjulega láta þeir nægja að sitja hjá og tryggja þannig að tillaga fái ekki framgang. En við þessa afgreiðslu lá greinilega mikið við svo þeir höfðu fyrir því að rétta upp hendina gegn henni. Klár stefna þar. í borgarstjórn fyrir skömmu fluttum viö tillögu um að borgarstjórn skoraði á fjárveitingarnefnd og þingmenn Reykjavíkur að hækka ríkisframlagið frá því sem er í fjárlagafrumvarpinu. Þessi tillaga fékk ekki stuðning meirihlutans. Borgarstjóri lagði til að henni yrði vísað til borgarráðs og gerðar fjárhagsáætlunar borgarinnar. Við mótmæltum þessari afgreiðslu, sem í raun þýðirað málið er svæft. Þessi afgreiðsla er því enn eitt dæmið um hug meirihlutans til þessa málaflokks, því með henni er hann í raun að lýsa yfir velþóknun á niðurskurðaráformum ríkis- stjórnarinnar. Meirihlutinn virðist nefnilega hugsa sem svo: - því minna framlag sem kemur frá ríkinu - því minna þurfum við að leggja fram. Þá höfum við meiri peninga í plastgras, mannlausa byggð í Grafarvogi, und- irgöng og slaufur undir og yfir Miklubrautina svo allir bílarnir komist í 30 þúsund fermetra verslanahöllina í Nýja miðbænum. Enn eitt dæmið um stefnuna í dagvistarmálunum. Á þessu ári lagði borgin fram 9 milljónir í dagvistarbygg- ingar. í raun verður einungis 6,1 milljón notuð af upp- hæðinni. Meirihlutinn hefur nefnilega ákveðið að í ár verði ekki byrjað á heimili upp í Seljahverfi sem var þó búið að samþykkja að hefja byggingu á í haust. Þegar þetta er ritað þann 19. nóvember hefur áætlun um byggingarframkvæmdir borgarinnar næsta ár enn ekki verið lögð fram. Miðað við stefnu ríkisstjórnar og meirihlutans í borgarstjórn það sem af er árinu er því miður einskis góðs að vænta í þessum málaflokki frá meirihlutans hálfu á komandi ári. En er ekki þessi stefna í dagvistarmálum eðlileg miðað við efnahagsástandið kann einhver að spyrja. - Að mínu mati er hér um stærra mál að ræða en svo. Það er ekki fjárskortur, sem ræður ferðinni, um það höfum við ótal dæmi. Skortur á öryggi og góðri daggæslu fyrir börn er nefnilega ein af aðferðum karlveldisins til þess að halda okkur konum áfram áhrifalausum og undirokuðum í þjóð- félaginu. Þeir láta aðeins meira af hendi rakna í góðæri, en þegar þrengir að og atvinna minnkar eru seglin rifuð í þessum málaflokki og þar með er auðveldara að halda konum áfram sem varavinnuafli. Baráttan fyrir nægum og góðum dagvistarheimilum fyrir börn er því eitt af brýn- ustu hagsmunamálum okkar allra. Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi Kvennaframboðs. 35 Ljósmynd: Anna GyOa Gunnlaugsdóttir

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.