Vera - 01.12.1983, Síða 43

Vera - 01.12.1983, Síða 43
Eins og flestar ykkar hafa eflaust orðið varar við, var haldin ráðstefna um kjör kvenna á vinnumarkaðnum í Gerðubergi undir iok október sl. Þetta var hin myndar- legasta ráðstefna, um 200 konur mættu (tveir karlar) og eftir inngangserindin var setið og málin rædd í 16 hópum. Erindin sem flutt voru fjölluðu í fyrsta lagi um orsakir misréttisins og töluðu þær Helga Sigurjóns- dóttir og Bjarnfríður Leósdóttir undir þeirri fyrirsögn. Lilja Ólafsdóttir og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir fluttu því næst erindi um leiðir til úrbóta. í hádegishléi söng Stella Hauksdóttir frumsamdar vísur og Kvennaleik- húsið flutti Ijóð eftir Nínu Björk Árnadóttur. Að sögn hópsins, sem stóð að þessari ráðstefnu, þótti engin ástæða til aö ræða það, hvort kjör kvenna á vinnumarkaðnum | væru verri en karla, heldur var gengið út frá því sem vísu. Þær bentu tilaðmynda á ráð- stefnu Alþýðuflokkskvenna, sem haldin var fyrr í haust, þar sem nægar upplýsingar komu fram til að staðfesta slaka stöðu kvenna í þessum efnum. ,,Sú ráðstefna lagði staðreyndirnar fram og það má segja að við séum nú að grípa boltann á lofti, umræða um orsakir og úrbætur kemur í rökréttu framhaldi", sagði ein úr undirbún- ingshópnum fyrir Gerðubergsráðstefnuna. Og hverjar voru þá taldar orsakirnar? Niðurstöður umræðuhópanna voru þessar: „Allt þjóðfélagið er mótað af því viðhorfi, að sjálfsagt sé að karlar hafi forystu og forræði í öllum málum. Við konur göngumst undir þessar karlveldishugmyndir og treystum körlum betur en okkur sjálfum til að tryggja hag okkar. Afleiðingar þessa eru m.a. að körlum reynist auðvelt að sundra konum í sameiginlegri hagsmunabaráttu. Við van- metum eigin getu og dómgreind." j niður- stöðunum kemur einnig fram að fyrirvinnu- hugtakið sé tengt körlum og ,,að þrátt fyrir þá staðreynd að viðurkennt er, að tvo þurfi til að vinna fyrir heimili, eru hugmyndir um karla sem fyrirvinnur ráðandi“ en öll ábyrgð á umönnun barna sett á herðar kvenna og ekkert tillit tekið til sívaxandi hóps kvenna, sem einar sjá fyrir heimili. Leiðir til úrbóta beindust einkum að tvennu. í fyrsta lagi að koma á „kvótakerfi" sem tryggði konum 51 % sæta í stjórnum og nefndum launþegasamtaka og í annan stað að konur bindust samtökum þvert á stéttarfélögin. Um það var rætt hvort konur ættu jafnvel að ganga úr sínum núverandi félögum og stofna ný og var þeim hug- myndum vísað til samtaka kvenna á vinnu- markaði, en á ráðstefnunni var 7 konum falið að annast undirbúning stofnfundar slíkra samtaka. Þegar þetta er skrifað, hefur sá stofnfundur verið dagsettur (3. desember) og kann því að vera umliðinn þá er Vera kemst á búðarborðin. Hvað um það, við fórum á stúfana og inntum nokkrar þeirra kvenna, sem voru í Gerðubergi eftir áliti þeirra á ráðstefnunni og þeim niðu- stöðum sem hún komst að. |

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.