Vera - 01.12.1983, Qupperneq 44

Vera - 01.12.1983, Qupperneq 44
Jónína K. Jónsdóttir, starfsstúlka á spítalanum á Sauðárkróki: ,,Mér fannst ráðstefnan fróðleg og skemmtileg. Nei, ég hefi ekki starfað mikið að félagsmálum en svona ráðstefna verður manni hvatning. Síðan ég kom norðurhefur mappan með upplýsingunum, sem dreift var, verið hér í gangi, ég hefi lítið fengið af viðbrögðum ennþá en alla vega var fólk áhugasamt um að fá að sjá hana. Ég veit ekki alveg með kvótakerfi svei mér þá. Satt best að segja er ég ekki viss um að ástand- iö sé alveg eins alvarlegt og eldri konurnar láta í veðri vaka, það hefur mikið breyst í þeim efnum held ég og yngri konurnar vilj- ugri til að taka þátt. Þetta með að segja sig úr verkalýðsfélögunum og stofna ný, um það veit ég heldur ekki hvað segja skal. Ég er t.d. í verkakvennafélagi og það er nokk- uð um að þær fari yfir í verkamannafélagið, nei varla er það vegna þess að þær haldi körlunum sé beturtreystandi til að semja en kannski halda þær að þar sé betri þjónustu að fá, ég veit það ekki. En Samtök kvenna á vinnumarkaði eru alveg bráðnauðsynleg. Vonandi verður hægt að mynda einhvern anga af þeim hér, ég hefi a.m.k. mikinn áhuga á því að vinna að slíku. En það er erfitt að ná saman fólki, dálítil sundrung, maður þarf alltaf að vera að!“ Ingibjörg Vagnsdóttir starfar á skrifstofu Einars Guðfinnssonar á Bolungarvík: ,,Ég kom suður sérstaklega til að vera á ráðstefnunni. Verslunarmannafélagið hér fékk boö og sendi mig sem sinn fulltrúa. Ég hef ekki setið svona ráðstefnu áður en tekið þó nokkurn þátt í félagsstörfum, m.a. í sam- bandi við bæjarstjórnarkosningar hér. Ég var mjög hrifin af ráðstefnunni, þar kom fram ótal margt, sem maður hefur ekki hugsað út í áður eða a.m.k. ekki frá þessu sjónarhorni og þá á ég sérstaklega við það sem rætt var um í sambandi við orsakirnar. Ég var því alveg sammála. Hvað varðar leiðir til úrbóta þá er ég hlynnt kvótakerfi en líst ekki eins vel á aö konur kljúfi sig út úr verkalýðsfélögunum. Hins vegar er ég ánægð með stofnun Samtaka kvenna á vinnumarkaðnum, þannig samtök gætu stutt mjög við bakið á þeim konum, sem nú eru í baráttunni og þau ættu að sjá til þess að halda umræðunni gangandi. Síðan ráð- stef nan var hef ég töluvert verið að segja frá henni hér og því sem fram kom og mér finnst fólk bregðast við á mjög jákvæðan hátt, og sýna þessu áhuga. Ég mun gera grein fyrir ferðinni suður á næsta fundi hjá mínu félagi og kynna niðurstöðurnar þar líka.“ Þuríður Magnúsdóttir vinnur sem skrifta á fréttastofu Sjónvarpsins og er í Starfs- P mannafélagi sjónvarpsins. - ,,Ég hef ekki áður setið ráðstefnu eins og þessa, sem var í Gerðubergi og aldrei tekið þátt í kjara- málastarfi þó svo ég hafi auðvitað sótt fundi Starfsmannafélagsins. En ég tek alveg undir niðurstöðurnar varðandi orsakirnar. Nú, það var talað um að við slitum okkur alveg úr sambandi við karlana, en mér líst ekki á það, ég held við fengjum ekki konur til að starfa í slíku. En mér líst vel á Samtök kvenna á vinnumarkaði, þau gætu orðið til að ýta undir kröfugerð, styðja við bakið á þeim konum, sem nú þegar eru í baráttunni og líklega fjölgað þeim.“

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.