Vera - 01.12.1983, Blaðsíða 46
Akrar
friórra hugmynda
Engar sérstaklega spennandi fregnir höfum við haft af
nýjum bókum á jólavertíðinni í ár. Svo sem eins og
bókum eftir konur — (nema bókinni þeirra Eddu og
Helgu auðvitað!) En viljum við ekki meira? Ah, þæreiga
gott þessar sem lesa erlendar tungur og geta velt sér
upp úr skáldsögum, Ijóðum eða fræðiritum, þar sem
konur standa sjálfar á sjónarhólnum en eru ekki einhver
óljós bjarmi úti á sjóndeildarhringnum. íslenskir bóka-
útgefendur virðast seint ætla að átta sig á þeirri þörf
okkar að glugga í bækur kynsystranna úti í heimi. Lík-
legast finnast þeim þetta bara einhverjar kerlinga-
bækur, sem engu máli skipta og ekki munu seljast.
Það héldu þeir líka, forstjórar útgáfufyrirtækjanna í Englandi,
Þýskalandi og Hollandi og þó víðar væri leitað. En konurnar þar létu
engan segja sér fyrir lesefni heldur fóru sjálfar á stúfana og stofn-
uðu bara eigin forlög. Og samkvæmt enskum heimildum eru það
þau fyrirtæki, sem dafna best þessa dagana og það á tímum
kreppu í bókaheiminum. Sömu heimildir geta þess, að velgengni
kvennaforlaganna sé mest þar sem gömlu (karl-)útgefendurnir
voru síðastir að taka við sér og gera sér grein fyrir markaðsþörfinni
og svo öfugt. Til að mynda í Bandaríkjunum, þar sem karlarnir voru
sneggri til, hafa konurnar átt erfitt uppdráttar.
„Akur frjórra hugmynda“
Nú, en það er sem sagt í Englandi þar sem þeim gengur best.
London er sú borg í heiminum, sem hýsirflestu og stærstu kvenna-
forlögin. Þau eru Virago, Women’s Press, Sheba, Onlywomen og
Pandora. í Edinborg er Stramullion. Virago er þeirra stærst og elst,
sex ára gömul. (Bækurnar frá þeim eru dökkgrænar og vörumerkið
íbitið epli). Þar vinna tíu konur í fullu starfi en dreifinguna annast
samdreifingarfyrirtæki nokkurra almennra forlaga. Women’s Press
(þeirra kjölur er svarthvítröndóttur, vörumerkið rjúkandi straubolti)
er ári yngra og smærra í sniðum, en Virago gefur út um 60 titla á ári.
Margir munu ætla, að útgáfufyrirtæki af þessu tagi gefi einkum og
aðallega út kvennavandamálabækur! Því fer auðvitað fjarri. Ein
þeirra sem vinnur hjá Women’s Press lýsir slíkum viðhorfum í
viðtali við The Guardian, þegar hún segir frá ferð sinni til Banda-
ríkjanna. Þar var henni sagt að kvennaforlög myndu tæplega
plumma sig svo vel þar vestra, þar ,,í því pólitíska andrúmslofti sem
hér ríkir, hefur fólk ekki lengur áhuga á vandamálum kvenna.” ,,En
þá sagði ég þeim að feministisk útgáfa væri alls ekki um vandamál.
Hún snerist um nýjan sjónarhól, um ný viðhorf sem eiga erindi við
alla og ekki um einhver sérhæfð svið, sem gætu dottið í eða úr
tískunni. Kvennabækur eru akur fullur af frjósömum hugmyndum,
sem eiga erindi á öllum sviðum samfélagsins.”
Hugsjónastarf í fjársvelti
En hver er ástæðan fyrir hinum stórkostlega árangri, sem
kvennaútgáfufyrirtækin hafa náð. Hvernig stendur á því að þeirra
bækur seljast og eru gróðavænlegar? Spyr sá sem ekkert sér!
„Þegar við byrjuðum” segir ein af stofnfélögum Women’s Press,
„var okkur (allra náðugsamlegast!) bent á, að við myndum verða
að gefa út mikið af léttmeti, seljanlegu léttmeti til að borga kostn-
aðinn af þyngri, óseljanlegu hugsjónabókunum. Þetta hefur sýnt
sig að vera rangt. „Þungar” bækur, ég nefni sem dæmi bók Mary
Daily um kvenlíkamann og bók Andreu Dworkin um klám, hafa selst
gífurlega vel. Hvort sem þú ert þessum bókum sammála eða ekki,
þá verðurðu einfaldlega að lesa þær til að fylgjast með kvenna-
hreyfingunni, vera með í umræðunni.” Og kvenútgefendurnir vita
hve allar konur þyrstir í bækur, sem skoða heiminn með þeirra
augum, lýsa veröld, sem þær þekkja. Þarna er e.t.v. helsta skýr-
ingin á velgengninni: Kvennafyrirtækin spretta af þörf og innsæi,
ritstjórar þeirra gjörþekkja markaðinn, lesendur bókanna. Það er
verið að bjóða upp á bækur, sem beðið hefur verið eftir.
Fjárskortur og hugsjónastarf einkenna þessi fyrirtæki. Eða gerðu,
því fjárhagsvandinn er leystur af sí-aukinni eftirspurn. Samt sem
áður stóla smærri fyrirtækin enn mjög á sjálfboðastarf og bankalán
framsýnna bankastjóra. Hugsjónin, sem liggur að baki vinnunni
hefur gert annað að verkum: engum útgefanda er eins mikið í mun
að stilla verði vörunnar í hóf. Konur eru láglaunahópur (já, ekki bara
á íslandi!) og sú staðreynd ertil greinatekin í verölagi. Það varm.a.
þess vegna sem bókaklúbbur Women’s Press var settur á lagg-
irnar, en félagsmönnum standa til boða bækur flestra kvenna-
forlaganna á sérstökum kjörum. Önnur ástæða fyrir stofnun
klúbbsins var hversu tregir verslunarstjórar bókabúða í smærri
46