Vera - 01.12.1983, Síða 49

Vera - 01.12.1983, Síða 49
ELLI eftir Eddu Björgvinsdóttur og Helgu Thorberg. Vaka, 1983. Það er, held ég ekki, ofsögum sagt, að við í Kvennaframboðinu hlustuðum á þær Eddu og Helgu á tali í útvarpinu með sömu ákefð og verðandi mamma á hjartslátt barns í móðurkviði! Og mikið askolli vorum við montnar af þeim, þegar það fékkst stað- fest, að 60% þjóðarinnar hlustar líka. Og brosa að Ella. Þennan íslenska karlmann, sem kúgar konuna sína sem lætur kúga sig. Því sé hann dæmigerður ellisti, þá er hún það ekki síöur, gætið að því! Og þótt ég efist ekki um, að kaldhæðið grín Eddu og Helgu eigi sinn þátt í að draga meira en helming íslendinga að útvarpinu vikulega, þá grunar mig að viðtölin við fólkið í bænum eigi sinn hlut í fáheyrðum vinsældum þáttanna. Þar hafa birst myndir af raunverulegum konum (einkum), stöðu þeirraog draumum, myndir sem eru sjaldséðar í íslenskum fjölmiðlum. En líklega er það hvoru tveggja, skopið og alvaran, sem saman hafa gert Á tali að því eftirlæti allra sem raunin ber vitni. Og nú er Elli kominn í bók. Svartur á hvítu, broslegur og raunalegur í senn. Ég ímynda mér að það sé skeikult að gefa útvarpsefni út á prenti ef það er á annað borð jafnvel úr garði gert fyrir útvarp og efni Eddu og Helgu. (Sumt útvarpsefni er auð- vitað alls ekki eins og gert fyrir útvarp og mætti jafnvel lesa af blöðum heima hjá sér líkt og sumt sjónvarpsefni á fullt eins heima í útvarpinu o.s.frv.) Við lestur bókarinnar komst ég þó að þeirri niðurstöðu, að ef eitthvað, þá væri ekki síðurgaman að horfa á það sem þær stelpurnar segja en hlusta. Satt best að segja fylltist ég yfirmáta að- dáun á afreki þeirra og henni meiri en áður og er þá nokkuð mikið sagt! Talsmátinn, orðfarið og innihaldið gerir sig sjálfstætt af leiknum í röddunum - þó ég verði auðvitað að viðurkenna að þær skutu oftar en ekki upp kollinum við lesturinn. Elli sjálfur stekkur fullmótaður út úr bók- stöfunum þegar á fyrstu síðu bókarinnar, konurnar í símanum líka. Svo útpældir eru þessir karakterar strax í fyrsta þætti og geri aðrir rithöfundar betur. Og hver er svo Elli? Ólíkt því sem aðrir höfundar telja sig þurfa til að draga skýra mynd af persónu, segja þær Edda og Helga ekkert um aldur, útlit, atvinnu, menntun eða rúmmál. Viðhorfin ein lýsa manninum; það sem hann er inn við beinið en ekki hitt, sem hann kann að bera utan á sér. Þetta þykir mér dásamlega kvennapólitísk mannlýsing! Kosturinn hinn er svo vitaskuld sá, að einmitt með því að gera útlit Ella og stöðu ósýnilega, getur hann verið hver sem er. Maðurinn minn eða maðurinn í næsta húsi eða einhver enn annar. Við þekkjum hann allar og konurnar í símanum raunar líka og af sömu ástæð- um. Ekki síst verða þau svona óskaplega raunveruleg, og til aö hlæja að og býsnast yfir. Og hvernig er svo Elli og frúin og vin- konan? Jú, Elli segir konunni sinni brjósta- brandara, sem hún hlær að, Elli hefur víst ekki vaknað á nóttunni þegar börnin hans grétu og henni finnst það kostur og telur vinkonu sína stálheppna að eiga svoleiðis mann líka en vinkonan gerir góðlátlegt grín að henni fyrir vikið. Vinkonan á eftir að gera góðlátlegt grín að henni út alla bókina og reyna á eins hlýlegan hátt og henni er fram- ast unnt að vekja hana til einhverrar vitund- ar um þá kúgun sem ríkir á heimili Ella og hennar. Árangurslaust með öllu. Ellakona vinnur jafnlangan vinnudag úti og Elli en telur þó sjálfsagt að gera öll heimilisverkin ein. Ellakonakann hitt og þetta beturen Elli, svo sem að skipta um viftureim og sprauta bíla (fyrir utan auðvitað matargerð, þrif, barnagæslu og skipulag heimilis) en gætir þess vel að sýna ekki þá ,,karlmannlegu“ hæfileika öðrum til að særa ekki stolt mannsins síns. Ellakona er gjörsamlega ábyrg fyrir útliti Ella og heilsu og fer með hann eins og örvita ungabarn, sem ekki kann fótum sínum forráð, fæðir hann og klæðir (,,guð, lét ég þig fara í þessar buxur!“) og gerir út með nesti í sólar- landaferð. (Óborganleg lýsing þar!) Ella- kona kann vel að hafa einhver áhugamál utan Ella, en tími hennar og hugsanir snúast þó alveg um áhugamál hans. Vilji Ellakona úttala sig við vinkonuna í símann, notar hún tækifærið þegar Elli er hvergi nærri: hann er sofandi, í baði, á fundi, í bridge, horfandi á fótboltann í sjónvarpinu. Eða í útlandinu að hvíla sig með öðru fólki. Umönnun hennar á Ella hefur sem sagt kafsiglt alla tilveru Ellakonu og fyrir löngu blindað hana á eigin veru og langanir án þess hún hafi svo mikið sem tekið eftir því sjálf. Og allt er þetta þó há-alvarlega ástand sett fram af einskærri brosmildi og kæti! Ég sá fyrir nokkru setningu í minningargrein um konu, sem hljóðaði svona: ,,Hún var manni sínum dásamleg eiginkona og auk þess (auk þess!) góður félagi og vinur.“ Ég sver þetta er satt! Ellakona fengi þann dóm að vera manni sínum dásamleg eiginkona, punktur, og þætti hól á sumum bæjum. Þetta, geri ég ráð fyrir, er ellismi, sá ellismi sem ég vona að bókin um Ella geti togað svo sundur og saman að ekkert verði eftir annað en slitrin ein. Sem sagt, bók sem ætti að vera til á hverju heimili (upplögð brúðargjöf!) fyrir margra hluta sakir. Ragnheiður Kristjáns- dóttir hefur myndskreytt hana mjög lipur- lega, allar myndirnar eru skemmtilegar og margar alveg afbragð. Bókin er í hand- hægu broti, og utan á henni Ijósmynd af höfundunum, sem ég veit ekki nema sé ,,grín“ líka því hún gæti verið skopstæling á tannkremsauglýsingu en það er kannski bara vegna þess hvað þær Edda og Helga eru sætar sem er alveg makalaust af svo hörðum kvenréttindakonum að vera! Til hamingju elskurnar! Ms.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.