Vera - 01.01.1984, Síða 2
Leiðari.
VERA
1/1984 FEBRÚAR
Útgefandi:
Kvennaframboðið í Reykjavík
Hótel Vík
Sími 22188 og 21500
LAND53CKASAFM
378206
Flestar búum við í húsum sem karlmenn hafa
hannað og í bæjum eða borgum sem þeir hafa skipu-
lagt. Húsin eru virki einkalífsins og borgin athafna-
lífsins. Konur hafa litlu ráðið um gerð þeirra. Ástæð-
an er einfaldlega sú, að konur eru ekki þar sem völd-
in eru.
Á síðustu 10-20 árum hafa orðið miklar breytingar
á stöðu kvenna og þær breytingar hafa óhjákvæmi-
lega í för með sér breyttar aðstæður fyrir fjölskyld-
una alla. Það hefur hins vegar staðið á því að þjóð-
félagið tæki mið af þessum breyttu aðstæðum.
Reykjavíkurborg ber þess t.d. glöggt vitni. Skipulag
hennar er ekki til þess fallið að létta undir með fjöl-
skyldunni, þvert á móti, það er henni oft á tíðum fjöt-
r um fót.
íbúðahverfi borgarinnar koma ekki til móts við
þarfir fjölskyldunnar. Þar er litla sem enga atvinnu
ð fá, dagvistarstofnanir eru af skornum skammti og
ðstaða til félagslífs eða samveru fyrirfinnst varla.
Hið daglega líf fólks, og þá sérstaklega útivinnandi
kvenna, einkennist af sífelldum þeytingi bæjarenda
á milli. Þær búa í einu hverfi, hafa börnin í gæslu í
öðru og vinna í því þriðja. Hinar sem heima vinna
eiga fárra kosta völ í sínu hverfi. Þar verður hver að
vera sjálfri sér næg. Varla myndu konur hafa þennan
' áttinn á ef þær mættu ráða!
ipulag borgarinnar verður að taka meira mið af
car daglega lífi. íbúðahverfin verða að bjóða upp
á fjölbreyttari möguleika, rúma fjölskúrðugra mann-
líf og ný sambýlisform. Við þurfum að gera borgina
lífvænlegri og endurheimta hana úr klóm einka-
bílsins. Munum að borgin er til fyrir okkur en við ekki
fyrir hana.
ísiAwns
Ritnefnd:
Guörún Jónsdóttir
Helga Thorberg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Magdalena Schram
Steinunn Hjartardóttir
Útllt:
Guörún Erla Geirsdóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ábyrgöarmaöur:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Forsíöumynd:
Magnús Ólafsson
Ljósmyndasafniö
Auglýsingar og dreifing:
Guörún Alfreösdóttir
Setning og filmuvinnu:
Prentþjónustan hf.
Prentun:
Solnaprent
Ath. Greinar í Veru eru birtar á ábyrgö höf-
unda og eru ekki endilega stefna Kvenna-
framboösins Reykjavík.
Áskriftarsímar:
22188 og 21500