Vera - 01.01.1984, Side 20
Viöafgreiðslufjárhagsáætlunarársins 1984, sam-
þykktuallirborgarfulltrúarað undanskyldum fulltrú-
um Kvennaframboðsins, að leggja 9 milj. kr. á
næstu þrem árum i byggingu, sem Knattspyrnu-
félag Reykjavíkur, K.R. ætlar að reisa í tengslum við
íþróttahús sitt við Kaplaskjólsveg. Gengið hefur
verið frá samningi við K.R. um að félagið byggi og
eigi húsið, en að borgin greiði félaginu þrjár miljónir
á ári upp í byggingakostnaðinn. Þessar greiðslur
skoðast sem fyrirfram greidd leiga til næstu 27 ára,
fyrir hluta hússins, en þar ætlar borgin að reka fé-
lagsmiðstöð fyrir unglinga.
Samningurinn felur í sér meira en aö borgin ætli að
fjármagna bygginguna. í honum eru ákvæði um að í
stjórn félagsmiðstöðvarinnar sitji tveir fulltrúar frá K.R.
en engir fulltrúar starfsfólks né unglinga. Þessi stjórn á
að hafa umsjón með starfseminni og gera tillögur um
ráðningu forstöðumanns. Það verða sem sagt fulltrúar
leigusala, sem fá tryggö áhrif á starfsemina, ekki þeir
sem hana eiga að nota eða vinna við hana.
P
I I I
Auðvitað fögnum við því að meirihluti borgarstjórnar
skuli viðurkenna að það þurfi að leggja fjármuni til
æskulýðsmála, en við gagnrýnum hvernig þessum 9
miljónum er varið.
í fyrsta lagi teljum við að félagsmiðstöðvar eigi að
vera fremur litlar en því fleiri. Við teljum að uppbygg-
ingu þeirra og rekstri eigi að haga þannig að ungling-
arnir geti sjálfir haft áhrif á mótun og rekstur þeirra.
Minnkandi aðsókn að félagsmiðstöðvum æskulýðsráðs
sýnir að nauðsynlegt er að leita nýrra leiða í uppbygg-
ingu og rekstri þeirra. Félagsmiðstöðin fyrirhugaða í
K.R. húsinu uppfyllirekkert af þessu. Enn eigaungling-
arnir að verða áhrifalausir bæði um fyrirkomulag og
rekstur síns félagsheimilis.
í öðru lagi teljum við aö samningurinn sé óeðlilegur,
hanntryggifyrst og fremsthagsmuni K.R. enekki hags-
muni unglingannaog borgarinnar. í honum felst í raun
að borgin skaffar fjármagnið en á engan eignarhlut í
húsinu. Það er K.R. sem á húsið og tryggir sér jafnframt
að geta haft hönd í bagga um allan rekstur og mótun
hans. Það má því með sanni segja að stjórn K.R. hafi
komið ár sinni vel fyrir borð í þessu máli.
Við lögðum til að borgin keypti hús í Vesturbænum
fyrir þessar 9 miljónir. Þar með ynnist tvennt fram yfir
það sem næst með samningum við K.R. Borgin eignað-
ist sjálf það húsnæði sem hún borgaði fyrir og hægt
væri aðtryggja að unglingarnir, notendurnir, yrðu með
í skipulagningu, breytingum á húsnæðinu og uppbygg-
ingu starfseminnar. Þessi tillaga var felld. Sömuleiðis
tillögur okkar um breytingar á samningnum i þá veru að
tryggja bæði starfsfólki og unglingum fulltrúa í stjórn
félagsmiðstöðvarinnar.
Það fór sem sé með þessar tillögur okkar eins og svo
margar aðrar, sem miða að því að tryggja að þeir, sem
eiga að nota þjónustuna, hafi tök á að móta hana, þær
fá ekki stuðning í borgarstjórn.
Snjólaug Stefánsdóttir
*