Vera - 01.01.1984, Blaðsíða 6
KVENNAHUS gfc
Raunar má segja, aö Hótel Vík hafi ver-
iö vísir aö kvennahúsi en þó hefur þaö ef-
laust háö starfseminni, að hér var ein-
göngu um pólitísk samtök aö ræöa,
Kvennaframboðið og Kvennalista og kann
þaö að hafa fælt einhverjar konur frá.
Breytingin átti sér formlega stað 31. jan-
úar s.l. en þá var haldinn blaðamanna-
fundur í Kvennahúsinu og breytingin
kynnt.
Auk Kvennaframboösins, Kvenna-
listans og Veru hafa Samtök kvenna á
vinnumarkaðinum og Menningar- og frið-
arsamtök íslenskra kvenna nú fast aðsetur
hér í húsinu. 7. feb. s.l. var opnuð kvenna-
ráðgjöf í Kvennahúsinu, sem er félagsleg
°g lagaleg ráðgjöf fyrir konur, þeim að
kostnaðarlausu. Ráðgjöfin er opin á
þriðjudögum frá 20-22 og síminn er 21500.
Ýmsar hugmyndir og vangaveltur hafa
komið upp um starfsemi í Kvennahúsinu.
Gaman væri t.d. að hafa alvöru kaffisölu
hérna þar sem jafnframt væri hægt að líta
í kvennablöð og bækur. Talandi um bæk-
ur, finnst ykkur ekki tími til kominn að
stofna kvennabókaútgáfu? Hugsið ykkur
allar þær óþýddu og óprentuðu bækur eftir
konur víða um heim. En eins og áður er
það fjármagnið sem allt strandar á hvort
sem um er að ræða huggulega kaffistofu
eða bókaútgáfu. Þannig að ef svo ólíklega
viH til að einhver ykkar lúri á fjármagni til
þessara hluta, þá hafið endilega sam-
band. Eins ef þið vitið hvernig á að afla
þess. Að lokum væri gaman að heyra frá
ykkur um þær hugmyndir sem þiö hafið
um kvennahús og starfsemi þeirra.
bgf