Vera - 01.01.1984, Page 7

Vera - 01.01.1984, Page 7
9 9 OPINFRÁ KL. 8—10 $ Á ÞRIÐJUDA GSKVÖLD UM 9 9 9 Kvennaráðgjöf í Kvennahúsinu, Hótei Vík er búiö aö opna kvennaráðgjöf. Vera náði tali af einni úr ráðgjafarhópnum og spurði hana hverjar stæðu að Kvennaráðgjöf- inni. — Það eru 20 kvenna hópur, félagsráð- gjafar, lögfræðingar, hjúkrunarfr. og nem- ar í félagsráðgjöf og lögfræði, sem skipta þessu verki með sér. — Hverskonar ráðgjöf er um að ræða? — Þetta er ráðgjöf fyrir konur veitt af konum. Við ætlum að reyna að verða að liði með því að veita konum lagalega og félagslega ráðgjöf. Kvennaráðgjöf er að okkar mati einn liðurinn í kvenfrelsisbar- áttunni. Ráðgjöfin er opin öllum konum. Hún er ókeypis og nafnleyndar verður gætt. Konur geta hringt í okkur, komið hingað eða skrifað okkur. — Hvenær er ráðgjöfin opin? — Við höfum opið einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 8-10. Aðseturokkar er hér í Kvennahúsinu og síminn er 21500. Vera óskar ráðgjafahópnum góðs geng- is og hvetur konur til að leita til Kvennaráð- gjafarinnar með vandamál sín og láta frétt- ir af starfsemi hennar berast til annarra kvenna. Heimilisfangið er: Kvennaráðgjöfin, Kvennahúsinu, Hótel Vík, Vallarstr. 4, 101 Reykjavík. Síminn er: 21500.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.