Vera - 01.07.1984, Qupperneq 6
Hvað gerist í líkamanum?
Tíðahvörf er það tímabil í lífi hverrar konu þegar tíðir
fara að verða óreglulegar og hætta að lokum alveg. Mis-
jafnt er hvenær þau hefjast og hve lengi þau vara. Al-
gengast er að þau hefjist um fimmtugt en þau geta eðli-
lega hafist fljótlega eftir fertugt eða um miðjan sextugs-
aldur. Ekki hefur verið sýnt fram á að fjöldi barna eða
tíðabyrjun hafi áhrif á tíðalok en lélegt fæði eða járn-
skortur geta orðið þess valdandi að þau verði fyrr en
ella. Það hefur sýnt sig að mynstrið er svipað hjá mæðr-
um og dætrum. Rannsóknir hafa sýnt að konur sem eru
virkar og þær sem eru vel upplýstar um þetta tímabil,
komast yfirleitt farsællegar í gegnum það. Því viljum við
hvetja konur til að kanna hvernig mæður og systur hafa
upplifað þennan tíma og búa sig undir svipaðar líkams-
breytingar, þó alls ekki sé algilt að þær verði eins. Afl-
aðu þér þekkingar um líkama þinn og spurðu vinkonur
þínar um þeirra reynslu, upplifun og viðbrögð.
fá sumar þau aðeins einu sinni, aðrar öðru hvoru yfir smátimabil,
og enn aðrar geta fengið þau oft á dag. Hitakóf eru hættulaus og
ganga yfir, þetta er ekki varanlegt ástand. Hitakófið er einkenni
frá ósjálfráða taugakerfinu, frá því vöðvakerfi sem dregur saman
og víkkar út æðar. Hvað það er í breyttu hormónasamspili sem
hefur þessi áhrif á ósjálfráða taugakerfið er ekki vitað til fulls. En
við vitum að líkaminn aðlagast þessari breytingu, þó aðlögunin
taki mislangan tíma.
Hitakófið varir venjulegast frá 15 sek. upp í 4 mín. og lýsir sér í
því að það er eins og blóðið þjóti upp í höfuðið, og stundum dökk-
roðnar konan á efri hluta líkamans og í andliti. Þessu fylgir mikil
hitatilfinning og sviti. Á eftir getur fylgt kuldahrollur og/eða nála-
dofi í fingrum og tám. Það besta sem þú getur gert meðan kófið
varir er að hægja á þér. Ef mögulegt er sestu þá niður, vertu róleg
og reyndu að látafaravel um þig. Andaðu djúpt og rólega. Mundu
að þetta gengur fljótt yfir.
Helstu aðstæður sem hvetja til hitakófa eru þær sem draga úr
hitatapi líkamans eða þær sem auka hitaframleiðslu. Svo sem í
heitu veðri, eftir heitan drykk, undir sæng og við tilfinningalegt
Áhrif á líkamsstarfsemina
Við fæðingu stúlkubarna eru til staðar í eggjastokkunum u.þ.b.
400.000 eggfrumur. Á lífsskeiðinu myndast aldrei nýjar frumur,
þær sem eru til staðar þroskast og taka breytingum. Þessu er öf-
ugt farið hjá körlum, því þeir mynda stöðugt sáðfrumur frá kyn-
þroskaaldri. Á æxlunarskeiði konu eru það u.þ.b. 400 eggbú sem
þroskast og leiða til eggloss. Afgangurinn eyðileggst, þannig að
á aldrinum 40—50 ára eru eggbúin (og eggfrumurnar) að mestu
leyti uppurin. Á æxlunarskeiðinu sjá eggbúin að mestu um fram-
leiðslu á hormóninu estrogeni. Estrogen er það hormón sem ræð-
ur kyneinkennum konunnar. Fyrir tilstilli þess verða breytingar
kynþroskaaldursins. Þá hefst undirbúningur líkamans undir það
að geta orðið barnshafandi og alið barn. Það er svo samfara
fækkandi eggbúum sem við finnum sumar fyrir breyttri og minnk-
andi framleiðslu estrogens. Samspil estrogens við önnur hormón
breytist og veldur óreglulegum blæðingum á þessum tíma. Það
lýsir sér í því að blæðingar geta verið miklar eða litlar, stopular
eða oft.
Venja er að telja að tíðahvörf séu orðin ef eitt ár er liðið frá síð-
ustu tíðum. Geri blæðing vart við sig að þessu ári liðnu, eiga kon-
ur að leita læknis.
Hitakóf
— Ekki fá allar konur hitakóf, en líklega finnur meira en helm-
ingur kvenna fyrir þeim í einhverri mynd. Af þeim sem fá hitakóf
6
álag. Því skaltu vera vakandi fyrir þeim aðstæðum sem auka líkur
á hitakófi eða koma þeim af stað hjá þér. En umfram allt einangr-
aðu þig ekki. Ræddu þennan vanda við vini þína, líttu á kófið sem
eðlilegan hlut og forðastu að verða vandræðaleg og afsaka kófið.
Ekki hræðast komu þeirra því þá koma þau frekar. Mundu að til-
finningalegt álag eykur líkurnar á hitakófi. Þetta er eðlilegur hluti
af sjálfri þér og taktu á honum sem slíkum.
Bent hefur verið á að nægileg neysla á E-vítamíni, B-vítamíni
og kalki geti dregið úr hitakófum. Fæða auðug af E-vítamlnum er
jurtaolíur, fræ s.s. sólblómafræ, kornfæði, egg og broccolikál. B-
vítamín rík fæða er ger, kornblöndur, hýðishrísgrjón og heilhveiti.
Mjólk og mjólkurvörur eru kalkríkar.
[ stöku tilfellum geta hitakófin komið oft að nóttu til. Raski þau
svefni geta þau eðlilega haft áhrif á líðan þína. Langvarandi svefn-
leysi fylgir almennt skert einbeiting, sljóleiki, eirðarleysi og jafn-
vel þunglyndi. Ástæða getur verið til að leita læknisaðstoðar ef
hitakófin eru farin að hafa alvarleg áhrif á þitt daglega lífsmynstur.
Beinþynning
— Samfara minnkaðri framleiðslu á estrogeni verður bein-
þynning sem felur í sér að beinmassi er minnkaður, en beinið
heldur þrátt fyrir það eðlilegri efnasamsetningu og þar með kalk-
innihaldi. Afleiðing þessa er að beinbrot eru algengari hjá konum
en körlum eftir miðjan aldur. Konur sem verða fyrir því að eggja-
stokkar eru fjarlægðir meðan þær eru á æxlunarskeiði fá fyrr
beinþynningu en hinar.