Vera - 01.07.1984, Page 8
— Aukin storkutilhneiging blóðs. Þar með aukin hætta á blóð-
tappamyndun. Ef þú reykir er hættan enn meiri.
— Konur á hormónalyfjameðferð lenda oftar í gallsteinaaðgerð.
Algengt umkvörtunarefni og minni alvarlegar aukaverkanir eru
ógleði, spennutilfinning í brjóstum og þyngdaraukning vegna
vökvasöfnunar.
Svart er það: En það að taka P-pilluna er það líka. Skoðum
hversu aukin hættan er miðað við aðra áhættu sem við tökum
í lífinu. Til glöggvunar má nefna hættuna af reykingum og lélegu
mataræði sem stór hópur fólks velur þó að búa við.
Kostir hormónalyfjameöferðar fyrir sumar konur eru ótvíræðir.
Þær ykkar sem eru hættar að geta sinnt starfi eða notið daglegs
lífs, ættuð að athuga ykkar gang. Þær sem ákveða að leita lækn-
isaðstoðar ættu að hafa eftirfarandi í huga:
— Vertu viss um eftir hverju þú ert að leita.
— Þekktu einkenni þín og við hvaða aðstæður þau koma.
— Segðu lækninum hvaða sjálfshjálp þú hefur reynt og hvaða ár-
angur hún hefur borið.
— Verði lyfjameðferð sá valkostur sem læknirinn telur henta þér
best, mundu þá að það er þinn réttur að fá skýringar og leið-
beiningar.
— Skrifaðu hjá þér spurningar og hafðu minnispunktana með
þér.
— Þú átt að fá nákvæma læknisskoðun. Hormónameðferð og
vissir sjúkdómar fara ekki saman.
— Biddu lækninn að vega og meta með þér mögulegar auka-
verkanir í þínu tilviki.
— Þetta er þitt líf, þinn líkami, þiggðu einungis meðferð sem þú
ert sátt viö og skilur.
Vegna alvarlegra aukaverkana hormónalyfjameðferðar átt þú
að fara reglulega í læknisskoðun.
Dagbjört Bjarnadóttir
Herdís Sveinsdóttir
Þessi texti hékk til skamms tíma uppi á skrif-
stofu Æskulýðsráðs. Hvað finnst ykkur? Hver
skilgreinir hvern?
KONAN ER EINS OG HEIMURINN
Um 20 óra er hún lík Afríku — húlfkönnuð
Um 30 úro er hún lík Indlnndi — hlý, þroskuð og dulurfull
Um 40 úrn er hún lík Ameríku — tæknilegn fullkomin
Um 50 úrn líkist hún Evrópu — öll í rúst
Um 60 úrn líkist hún Síberíu — nllir vitn hvur hún er
en engon lungur þungnð
MADURINN ER EINS OG LEST
Um 20 úra líkist hann sveitalest — stoppar ú hverri stöð
Um 30 úra líkist hann sérlest — stoppar aðeins
í stærstu bæjum
Um 40 úra líkist hann hraðlest — stoppar
oðeins í stórborgum
Um 50 úra líkist hann eimvagni — stoppar oft
til að tuka vutn
Um 60 úra líkist hann lestinni sem einu sinni var —
en er nú ú snfninu
LAUSAR
STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKUR-
BORG.
Reykjavíkurborg vill ráða
starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Deildarstjóri viðskiptaþjónustu
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Háskólamenntun og starfs-
reynsla áskilin.
Upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur í síma 686222.
Skrifstofumann hjá skráninga-
deild fasteigna. Starfið felst í
skráningu á tölvu, afgreiðslu og
vélritun.
Upplýsingar veitir Kristinn Ó.
Guðmundsson í síma 18000.
Félagsráðgjafa hjá Félagsmála-
stofnun, Vonarstræti 4, fjöl-
skyldudeild. Félagsmálaráð-
gjafamenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 13. júlí
n.k.
Upplýsingar veitir yfirmaður fjöl-
skyldudeildar í síma 25500.
Starfsmann í þvottastöð SVR að
Borgartúni 35.
Upplýsingar veitir yfirverkstjóri í
síma 82533.
Umsóknum beraöskilatil starfs-
mannahalds Reykjavíkurborgar,
Pósthússtræti 9, 6. hæð á sér-
stökum umsóknareyðublöðum
sem þar fást fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 2. júlí 1984.
8