Vera - 01.07.1984, Blaðsíða 22
Hér sjást þær Guðrún Jónsdóttir, Guöný Gerður Gunnarsdótt-
ir og Sigrún Pálsdóttir. Tvær síðastnefndu eru aðal- og vara-
maður í bygginganefnd.
Tillögur viö gerö fjárhagsáætlunar fyrir árið 1983 um
að bæta þjónustuna við aldraða í leiguíbúðum
borgarinnar í Norðurbrún og Furugerði. Náðu ekki
fram að ganga í það sinn en Sjálfstæðismenn gerðu
þessar tillögur að sínum ári síðar.
Fluttum tvisvar sinnum tillögu um að banna rekstur
leiktækja og spilakassa gegn gjaldi til að sporna
við þeirri fíkn sem af þessu myndast. Til vara fluttum
við tillögu um að fjöldi spilakassa miðaðist við fjölda
gesta og yrði þá eitt tæki per 50 gesti en þó aldrei
fleiri en 5 á hverjum stað. Fluttum við þessa tillögu
með borgarfulltrúum Alþýðubandalagsins. Þessar
tillögur fengu ekki stuöning.
Tillögur við gerð fjárhagsáætlana um stóraukið
framlag tii bygginga dagvistarstofnana. Gerðum
við ráð fyrir að á árinu 1983 yrði f ramlagið 25 milljón-
ir í stað 9 en á árinu 1984 46.5 milljónir í stað 23.
Þessar tillögur fengu ekki stuðning.
— Tillaga um aö komið verði upp hreinlætisaðstöðu í
miðbænum fyrir fólk með smábörn. Tillagan var
samþykkt einróma en ekkert hefur gerst ennþá okk-
ur vitanlega.
— Tillaga um að komið yrði upp bakvaktaþjónustu á
vegum Félagsmálaþjónustu Reykjavíkurborgar
þannig að hægt væri að leita til hennar í neyðartilvik-
um fyrir utan venjulegan skrifstofutíma. Fékk ekki
stuðning.
— Tillaga um að verulegt fjármagn yrði sett í baráttuna
gegn vímuefnum en á fjárhagsáætlun fyrir þetta ár
eru ætlaðar 300 þúsund kr. til þessa verkefnis. Þótti
okkur ekki nóg að gert þar sem ástandið er að verða
alvarlegt. Tillagan fékk ekki stuðning.
— Tillaga um að hækka lánaþak Félagsmálastofnunar
til fyrirframgreiðslu húsaleigu þannig að lánið
nægði til 6 mánaða greiðslu miðað við 2ja herbergja
íbúð. Tillögunni var vísað til félagsmálaráðs og hafn-
aði þar.
Æskulýðsmál
— Tillögur við gerð fjárhagsáætlana um að komið yrði
á fót æskulýðsheimili og unglingaathvarfi í Selja-
hverfi. Tillögurnar fengu ekki stuðning.
—■ Tillögur við gerð fjárhagsáætlana um að útideild
unglinga og unglingaathvarf í Tryggvagötu yrðu
efld verulega. Tillögurnar fengu ekki stuðning en
I
Sjálfstæðismenn gerðu tillögu okkar frá árinu 1982
að sinni ári síðar.
— Tillaga um að festa kaup á notuðu húsnæði í Vestur-
bænum sem hentað gæti sem félagsmiðstöð fyrir
hverfið. Þannig kæmist félagsmiðstöðin strax upp
og unglingarnir gætu tekið þátt í að innrétta hana og
móta frá upphafi. Tillagan fékk aðeins 2 atkvæði og
því ekki stuðning. Borgarstjórn samþykkti hins veg-
ar að greiða K.R. 15 ára húsaleigu fyrirfram þannig
að K.R. gæti byggt og eignast félagsheimili á kostn-
að borgarinnar.
— Tillaga um að laun unglinga í vinnuskólanum yrðu
ákveðið hlutfall af lágmarkstekjutryggingu þannig
að 14 árafengju 55% af henni og 15 ára 60%. Þetta
hefði þýtt nokkra hækkun á launatöxtum. Fékk ekki
stuðning.
Atvinnumál kvenna
— Tillaga í þremur liðum um að 1) konur sem eru að
koma út á vinnumarkað eftir að hafa sinnt húsmóð-
urstörfum verði látnar sitja fyrir um ráöningar í
störf á vegum borgarinnar; 2) námskeiö verði á veg-
um Námsflokka Reykjavíkur fyrir konur sem eru að
íhuga að fara út á vinnumarkaðinn eftir að hafa sinnt
húsmóðurstörfum; 3) starfsreynsla við húsmóður-
störf verði metin til jafns við önnur störf við röðun
í launaflokka hjá borginni. Þessari tillögu var vísað
til borgarráðs og jafnréttisnefndar en ekkert hefur
gerst þrátt fyrir ítrekanir.
— Geröum að umræðuefni utan dagskrár borgar-
stjórnarfundar fyrirkomulag ræstinga við Borgar-
spítalann. Gerðum við þetta í kjölfar frétta í fjölmiðl-
um um að ræstingakonum væri sagt upp störfum.
— Tillaga með borgarfulltrúa Alþýðuflokksins um að
beina því til launamálanefndar að hún legði áherslu
á að koma til móts við kröfur láglaunafólks í kom-
andi samningum (þetta var 2. febr.), og jafnframt að
Kristin Jónsdóttir fulltrúi f áfengisvarnanefnd, Sigrfður Einars-
dóttir og Kristín Einarsdóttir.
22