Vera - 01.07.1984, Blaðsíða 23
Systumar Steinunn og Sigrún Hjartardætur taka lagiö.
hún tryggöi aö meðallaun kvenna sem starfa hjá
borginni, nái meöallaunum karla. Sjálfstæðismenn
hnýttu viö tillöguna fáránlegri bókun og vísuðu henni
síöan til launamálanefndar. Ekkert hefur gerst.
Heilbrigðismál
~~ Tillaga um aö auknu fé yrði varið til kynfræðslu-
deildar Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi
hennar aukin. Fékk ekki stuðning.
~~ Tillaga um að hætt yrði við að leggja niður þá starf-
semi kynfræðsludeildar sem lítur að kynlífsfræðslu
°9 meðferð kynlífsvandamála. Vísað til heilbrigöis-
ráðs en fékk ekki stuðning þar.
^kipulagsmál
~~~ Tillaga um að kannaðir yrðu möguleikarnir á flutn-
■egi flugvallarins úr Vatnsmýrinni. Með þessum til-
•öguflutningi vildum við undirstrika andstöðu okkar
við útþenslu borgarinnar til austurs meðan til væru
svaeði miðsvæðis. Tillögunni var vísað til skipulags-
nefndar sem samþykkti að afla gagna um svæðið
sem enn hafa ekki litið dagsins Ijós.
~~ Tiliaga um að skipulagstillaga að Skuggahverfi yrði
kynnt fyrir íbúum áður en hún yrði afgreidd frá borg-
arstjórn. Tillögunni var vísað frá. Ýmsar aðrar tillög-
ur sem við fluttum varðandi þetta mál fengu svipuð
endalok.
~~ Tillaga um að dregið yrði úr verslunarrými í Nýjum
miðbæ og íbúðabyggð aukin að sama skapi. Fékk
ekki stuðning. Mótmæltum stórmarkaði Hagkaupa á
Þessum stað og töldum og teljum enn að þarna væri
um skipulagsmistök aö ræðá.
Mótmæltum hvernig staðiö var að málum gagnvart
Guðrúnu Jónsdóttur fyrrverandi forstöðumanni
Borgarskipulags. (Sjá VERU 2. tbl. ’84).
~~ Gerðum athugasemdir við skipulag Grafarvogsins
^ a. hversu stór hluti húsa væri sérbýli, hversu lítil
Þjónusta væri í hverfinu og langar gönguvegalengd-
lr' hana. Þessar athugasemdir höfðu lítil áhrif.
~~ Tillaga um að Hamarshúsinu yrði ekki breytt í íbúðir
'ym en afstaða lægi fyrir um fyrirhugaða legu Geirs-
9ötu.
^mhverfis- og umferöarmál
~~ Við höfum barist fyrir varðveislu húsa sem hafa um-
hverfislegt og/eða menningarsögulegt gildi (Fjala-
kötturinn, Skúlaskáli, Völundarhúsin).
— Við höfum lagt áherslu á örugg og góð leiksvæði fyr-
ir börn tengd íbúðabyggð.
— Við höfum stutt og endurflutt ýmsar tillögur okkar
fulltrúa (og Katrínar Fjelsteð) í umferðarnefnd varð-
andi hraðatakmarkanir og lækkaðan hámarks-
hraða í íbúðahverfum.
— Við höfum mótað stefnu gegn mengandi þungaiðn-
aði innan borgarmarka.
Fyrirtæki borgarinnar
— Viö höfum lagst gegn öllum hækkunum sem eru
umfram launahækkanir.
— Tillaga um að gerð yrði tilraun með næturakstur
strætó um helgar. Tillagan var flutt í framhaldi af
umræðu í félagsmálaráði um unglingsstúlkur sem
húkka sér far heim og lenda í kynferðisafbrotamönn-
um. Fékk ekki stuðning.
— Höfum mótmælt ýmsum hótunum um uppsagnir
starfsfólks BÚR sem venjulegast er liður í þrýstiað-
gerðum útgerðarmanna.
— Tillaga um að skipulagsbreytingar hjá BÚR yrðu
kynntar starfsfólki áður en þær yrðu samþykktar frá
borgarstjórn. Fékk ekki stuðning.
— ítrekaðar tillögur um að Hitaveitan og Rafmagns-
veitan kynntu fyrir neytendum hvernig megi spara
orku. Er þetta sérlega brýnt hvað varðar Hitaveituna
þar sem heitavatnsskortur gerir vart viö sig. Tillög-
urnar ávallt samþykktar en lítið sem ekkert gerist.
Tengsl við íbúa
og íbúasamtök
—■ ítrekaðar tillögur um að mál séu kynnt íbúum áður
en þau eru afgreidd frá borgarstjórn. Sjaldnast náð
fram að ganga.
— Tillagaum endurskoðun á stjórnkerfi borgarinnar.
Tillagan samþykkt og nú er nefnd að störfum sem
hefur þetta verkefni með höndum. Kvennaframboð-
ið mun flytja þar tillögur fyrir haustið um gerbreyt-
ingu á stjórnkerfinu, aukna valddreifingu og aukið
vald íbúasamtaka.
— Tillögur við gerð fjárhagsáætlana um að borgar-
stjóri snúi sér bréfleiðis til foreldrafélaga og íbúa-
samtaka og fari fram á ábendingar frá þeim um for-
gangsverkefni í hverfunum. Náði ekki fram að
ganga 1982 en var samþykkt 1983. í þessu felst viss
viðurkenning á þessum samtökum.
— Höfum tekið upp mörg baráttumál íbúa og vakið
máls á þeim í borgarkerfinu t.d. baráttu íbúa á Selja-
vegi gegn Eim og Kolsýruhleöslunni, baráttu íbúa
gegn umferðarskapandi mannvirkjum í hverfunum
o.fl.
Asta Ragnarsdóttlr fulltrúi I stjórn Gerðubergs, Brynhildur G.
Flóvenz fyrrverandi starfsmaður Kvennaframboðsins og Guð-
rún halda heim á leiö.
23