Vera - 01.07.1984, Page 37

Vera - 01.07.1984, Page 37
The Economist birtir einnig fréttir um aö sérfræðinganefnd á vegum Heilbrigðis- stofnunarinnar í USA vari nú við að beita sónar-skoðunum í eins ríku mæli og gert hefur veriö þar í landi við eftirlit með barns- hafandi konum. Sónartæki byggja á því að nota hljóð- hylgjur til að framkalla mynd af fóstrinu. þessi aðferð hefur verið talin algjörlega hættulaus fyrir fóstrið. Enn hefur heldur ekkert komið fram óyggjandi um að að- feröinni fylgi hætta, en heldur ekkert sem staðfestir að hún sé hættulaus. Áðurnefnd sérfræðinganefnd leggur þó til að fyllstu aögæslu sé gætt við notkun þessarar fækni og að henni skuli ekki beitt, nema búast megi viö fósturgöllum. Sem sagt hvorki til þess að sérfræðingar geti farið í tæknileiki né til að svala forvitni foreldra Urn kyn fóstursins eða af því að aðstand- endur langi til að eiga mynd af fóstrinu, en slíkt mun ekki óalgengt í þvísa landi. Guðrún Jónsdóttir þýddi og endursagði Ur The Economist. england Germaine Greer, höfundur bókarinnar -.Kvengeldingurinn”, sem margar ykkar ^unu kannast við, hefur nú sent frá sér nýja bók, sem vakiö hefur mikla athygli og urnræðu í Englandi. Bókin heitir „Sex and Destiny” eða kynferði og örlög og kom út í mars. Breska blaðið The Times hóf birt- ingu úrdrátta úr bókinni í janúar og hélt því áfram fram í miðjan febrúar, en með síð- asta útdrættinum voru einnig birt bréf frá lesendum og var sýnt að þeir voru ekki á eitt sáttir við bókina. Germaine ræðst í þessari nýju bók sinni gegn frjálsum ást- um að sögn The Times, en í inngangi að útdráttunum úr bókinni segir m.a.: „Germaine Greer var ein af spámönnum kynlífsbyltingarinnar og í bók sinni, Kven- geldingurinn, benti hún á baráttu kvenna fyrir frelsi í rúminu og jafnrétti fyrir lögum. Úm sömu mundir komu til sögunnar nýjar getnaðarvarnir og aukinn réttur til fóstur- eyðinga, en hvoru tveggja frelsaði konur frá ótímabærum þungunum og gerði þeim kleift að njóta kynlífsins. En hefur byltingin staðið við loforð sín? Ekki að mati Germa- ine Greer. í sinni nýjustu bók heldur hún því fram að hagur kvenna hafi versnað á tímum „frelsisins”. Hún er jafn hrifin af kynlífinu en vill að konur séu kresnari, sjái sjálfar sig í öðru Ijósi og virði líkama sinn meira en svo, að hann megi eyðileggja með getnaðarvamartólum og apparötum.” Með öörum orðum, það virðist sem Germaine álíti konur hafa gerst þræla bylt- ingarinnar. Meira verður ekki sagt að sinni, en þess má geta að nokkrar konur, sem af er vitað, hafa pantað sér bókina og Vera gerir ráð fyrir að geta skýrt frá mati íslenskra kvenna á henni áður en yfir lýk- ur. USA Dorchen Leidholdt, meðlimur í samtökun- um „Konur gegn klámi” og blaðamaður við þýska kvennatímaritið Emmu, var handtekin í New York nýlega fyrir að hafa sprautað svofelldum orðum á auglýsinga- plakat frá Penthouse: „Penthouse niöur- lægir konurog er meðmælt nauðgunum”. í frétt Emmu kemur ekki nákvæmlega fram hver kæran var, en að öllum líkindum mun hún hafa verið fyrir skemmdir á annarra eigum eða jafnvel óspektir á almannafæri. Fyrir réttinum lýsti Dorchen sig sak- lausa, lagði eintak af Penthouse fyrir dóm- arann og sagði m.a. máli sínu til stuðn- ings: „í þessu eintaki er varpað dýrðar- Ijóma á fjöldanauðgun á skólastúlku. Einnig er því lýst í Ijósmyndaröð þegar kona er fjötruð, henni nauðgað og að síð- ustu komið fyrir kattarnef og í teikni- myndasögu blaðsins er skopast að nauðg- un og morði á konu. . . Þegar svofellt of- beldi gagnvart konum er auglýst og það á almannafæri, er verið að ógna öryggi allra kvenna. Sem konu og neytanda þjónustu járnbrautarkerfisins, sé ég mér ekki annað fært en búast til varnar slíkum áróðri.” Dorchen var dæmd saklaus og gekk því frjáls frá réttinum. Það makalausa við þessa frétt er líklega það, að það skuli telj- ast fréttnæmt yfirhöfuð að Dorchen var ekki dæmd sek! Síríus I<bnsum suöusúkkulaói Gamla góða Síríus Konsum súkkulaðið er í senn úrvals suðusúkkulaði og gott til átu. Það er framleitt úr bestu hráefnum, er sérlega nærandi og drjúgt til suðu og í bakstur, enda jafnuinsælt í nestispökkum ferðamanna og sparíuppskriftum húsmæðra. Siríus Konsum er uinsælast hjá þeim sem uelja bara það besta. mqu s lÉas 37

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.