Vera - 01.07.1984, Blaðsíða 41
Nýjasta nýtt í
dagvistarmálum
Munið þið ekki eftir litla appelsínugula
bárujárnshúsinu í Skerjafirðinum þar sem
Ananda Marga rak dagvistarheimili?
Nema hvað, nú hafa þessi samtök fengið
úthlutað lóð undir dagvistarheimili við
Reykjavíkurveg í Skerjafirði og ætla að
reisa þar einingahús undir starfsemina,
sem þá hefst að nýju. Hérlendis býr s.k.
..dídí” þ.e. jógakennari og nunna í
Ananda Marga og mun hún sjá um rekst-
Urinn. Á dagvistarheimilinu „Sælukoti”
verða 30 leikskólapláss og 14 dagheimilis-
Pláss og eru öllum opin. Enn eru laus
Pláss og má hafa samband í s. 27638.
Börnin fá jurtafæði á heimilinu og mikil
úhersla er lögð á gott og innilegt samband
milli fóstru og barns og barnanna innbyrð-
's. Starfsemin byggist á uppeldiskenning-
um Maríu Montessori sem snúa sérstak-
lega að vitsmunaþroska barna. Ennfrem-
Ur er stuðst við kenningar Rudolfs Steiner
um þroskun sköpunargáfu barna í leikjum
með náttúruleg efni.
Miðað er við að starfsemi þessa nýja
úagvistarheimilis geti hafist nú í haust. En
framkvæmdirnar eru fjárfrekar. Félagar i
Ananda Marga, Kornmarkaðurinn og
úgóði af framleiðslu Morgungulls hefur
Þegar lagt til helming fjárins sem til þarf en
sjóðir þessara aðila eru nú þurrausnir. Því
efndi foreldrafélag það sem myndað var
utanum „Sælukot” til merkjasölu dagana
7—9. júní s.l. Auk þess mun ætlunin vera
aö leita til fyrirtækja um frekari fjárstuðn-
'ng.
Aðspurð um fordóma gegn Ananda
^erga sögðu forsvarsmenn „Sælukots”
að það stafaði af rangri mynd sem dregin
hefði veriö upp af samtökunum í fjölmiðl-
um. Ananda Marga væri ekki trúarflokkur
heldur samtök sem legðu áherslu á hug-
•eiöslu og hjálparstarfsemi. Ananda
^erga starfaöi í 80 löndum og ræki skóla
°9 dagvistarheimili fyrir bágstödd börn.
°9 Þar hafiði það.
mr.
HÚSEICEnORTRVGGinG
Með því að sameina í einavátryggingu
ýmsar fasteignatryggingar sem seldar
hafa verið einar sér, hefur tekist að
lækka iðgjaldið verulega.
Iðgjaldið miðast við brunabótamat
húseignar eða eignarhluta tryggingar-
taka í henni á hverjum tíma.
41