Vera - 01.07.1988, Blaðsíða 15

Vera - 01.07.1988, Blaðsíða 15
Togstreitan milli kerfisins og hugmyndafræðinnar Kvennalistinn eru ekki einu samtök kvenna sem hafa þróast fró því að vera uppvakningarhreyfing t það að vera hluti af kerfinu. Kvennahreyfingar er- lendis hafa farið í gegnum svipaða þróun (Freeman 1975). Gould (242—243) bendir ó að með þessari þróun hafi komið upp togstreita milli hugmyndafræðinnar sem segir að allar séu jafnar og síðan þarfarinnar fyrir sérþekkingu til að geta starfað innan kerfisins. Kröfurnar sem gerðar voru til hreyfinganna komu ekki lengur innan fró heldur einnig utan fró. Ætlast vartil aðþærstæðu sig ó sama hótt og aðrirí kerfinu og fullnægðu ókveðnum kröfum sem kerfið gerir um sérþekkingu. Togstreitan og órekstrarnir stöfuðu einnig af því að kvennahreyfingin og þjóðfélagið eru byggð upp ó óltkan hótt. Úti í þjóðfélaginu er hlut- verk og vald hvers og eins vel skilgreint, og valdið framselt þeim sem eru ó toppnum. Hver og einn veit hvertsitthlutverkog öll uppbygging er ósveigjanleg. hað er allt annað upp ó teningnum í kvennahreyfing- unni. Allt skipulag erfljótandi, hlutverk þótttakenda °9 vald óafmarkað og óskilgreint. í skrifum Gould kemur fram að í kringum 1970 hafi skipulagsleysið verið farið að hó hreyfingunum. Skipulagsleysið sem óður hafði stuðlað að virkni og vexti hreyfinganna fór nú að vinna ó móti starfssemi þeirra. Þörfin fyrir breytt skipulag ó grasrótarhreyfingunni kom í kjölfar þessarar þróunar, segir Gould, en þær konur í hreyf- ingunni sem stóðu fastaró hugmyndafræðinni stóðu í vegi fyrir að breytt yrði í formlega skipulagsheild. í þeim tilfellum þegar skipulaginu var breytt þannig að lótið var af valddreifingarhugmyndinni röskuðust hópar mikið eða jafnvel dóu allveg. Völdin í Kvennalistanum ,,Hver er reynsla Kvennalistans af grasrótarfyrir- komulaginu?" og ,,hver hefur þróunin orðið innan Kvennalistans?" eru tvær spurningar sem ætlunin er að reyna að svara. í þeim tilgangi talaði ég við nokkrar konur í Kvennalistanum um skipulagið og völd innan Kvennalistans. Af svörum þeirra mótti heyra að Kvennalistinn hefur reynslu af togstreitunni sem Gould fjallar um. ,,Áður en ég fóráþing skynjaði ég betur grasrót- inu. Að vera á Alþingi ereins og að vera íeinangrun- arklefa, það eru fá tækifæri til að stunda grasrótar- vinnubrögð á Alþingi, þar viðgangast ólýðræðisleg vinnubrögð. Mál eru keyrð í gegn með stuttum fyrir- vara og lítill tími til að ráðfæra sig við grasrótina." í dag er Kvennalistinn stórt stjórnmólaafl með öll þau völd og óhrif sem því fylgir. Konur eru óvanar því að hafa völd og ekki laust við að þær séu hólf feimn- ar við það. Þær forðast að minnast ó þau völd sem fylgja Kvennalistanum, enda er hugtakið vald nei- kvætt hugtak flestum konum, því flestar tengja það drottnunarvaldi. Stundum er eins og þær konur sem hafa völd innan Kvennalistans skammist sín fyrir þau og þurfi að réttlæta aðgerðir tengdar valdinu og að þær sem ekki hafi völd innan Kvennalistans ósaki hin- ar um að hafa þau. Innan Kvennalistans hefur engin ókvörðun verið tekin um hvar völdin eigi að vera. Eina sem hefur ver- ið ókveðið erað það eigi að dreifa þeim og að vald- dreifingin komi fram í því að skipst er ó að gegna stöðum innan Kvennalistans og fyrir Kvennalistann. Valddreifingin kemur líka fram í því að allar meirihótt- ar ókvarðanir ó að taka ó félags- og landsfundum þegar margar konur eru viðstaddar. Milli þessa funda er verið að henda völdunum ó milli, fram og aftur, eins og lífeggi. ,,Kvennalistinn er flókið fyrirbæri sem ég skynja eins og öldur. Hann er alltaf á iði. Sumstaðar eru toppar og það eru topparnir sem ráða ferðinni. Stundum er maður á toppnum og stundum er maður í öldudalnum það fer eftir því hvaða málefni er verið að ræða." ,,Við erum öðruvísi. Það er t.d. engin ein eða tvær sem taka ákvarðanir. Auðvitað eru stundum teknar snarrótarákvarðanir og þá eru hinar ekki ánægðar, en það eru ekki alltaf þær sömu sem taka snarrótar- ákvarðanir." Konur í Kvennalistanum eru ekki allar jafn valda- miklar. Þær sem eru ó Alþingi taka stundum ókvarð- anir sem þær segja að betur væri að fleiri tækju. Ef ókvarðanir eru erfiðar kalla þær ó fleiri konur og ef þær ,,fara útfyrir" lóta konur heyra í sér. En þær sem eru ó Alþingi hafa völd til að vega og meta hvað eru erfiðar ókvarðanir og hvað eru mikilvæg mól fyrir Samtökin. Sama gildir um þær konur sem eru í borg- ar- og bæjarmdlahópum Kvennalistans. Þær hafa þessi völd því þær verða að hafa þau stöðu sinnar vegna og vegna þess að t.d. d Alþingi eru viðhöfð ólýðræðisleg vinnubrögð sem felast m.a. í því að þingmenn fó lítinn tíma til að vega og meta þingmdl. Það eru fleiri hópar sem hafa völd í Kvennalistan- um. Þær konursem eru búnar að vera lengi í Samtök- unum hafa dkveðin völd sem felast í því að þær hafa ,,Vestræna karlasam- félagið gerir ráð fyrir því að ef einhver hefur t.d. 20 einingar valds og gefi 12 þeirra, hafi hann (eða hún) að- eins 8 einingar eftir. Því meira sem valdi er dreift eða því skipt á fleiri hendur, því minna kemur í hlut hvers og eins. Það sé aðeins ákveðið magn valds til skiptanna og því er barist um það og því nurlað sam- / / an. — Anne Wilson Schaef 15

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.