Vera - 01.07.1988, Blaðsíða 34

Vera - 01.07.1988, Blaðsíða 34
Bæjarmál á Selfossi Þegar við kvennalistakonur á Selfossi setjumst niður til að skrifa fréttir af bæjar- málum hér finnst okkur að við verðum að kynna stuttlega fyrir lesendum Veru að- draganda þess að við störfum hér í bæjar- stjórn. Kvennalisti á Suðurlandi var stofnaður í Tryggvaskála á Selfossi 10. nóvember 1984. Þá var haldinn allfjölsótt- ur kynningarfundur, sem snerist upp í stofnfund þegar það kom í Ijós að flestar konurnar sem fundinn sóttu voru hrifnar af stefnu og störfum Kvennalistans. Þegar líða tók að sveitarstjórnarkosningum vorið 1986 var hóp- urinn hér á Selfossi orðinn vel kunnugur og búinn að ræða málin talsvert vel og lengi. Líklega vorum við þá einmitt tilbúnar til að fara í framboð. Það var þó ekki sjálfgefið, við höfðum yfirleitt ekki komið nálægt pólitík fyrr og það er auðvitað meira en að segja það að fara að starfa i bæjarstjórn. Erindi sem erfiði En nú vorum við búnar að sjá leið til að hafa áhrif á þetta samfélag sem við búum í og að vandlega athug- uðu máli ákváðum við að láta okkur hafa það. Við feng- um óformleg tilboð frá öðrum flokkum um sameiginlegt framboð en höfnuðum því, þetta urðum við að gera sjálf- ar á eigin forsendum. Við snerum okkur að því að kynna okkur málefni bæj- Hvað veistu Selfoss var heiti landnámsjarðar Þóris Ásasonar, eigi geta heimildir mínar um nafn konu hans, þetta telst alia vega ekki vera hennar landnám. Tví- eða þríbýli hefur verið á Selfossbænum gegn um aldirnar. Þegar ekið er inn í bæinn af brúnni er býlið Selfoss til hægri vestan kirkjunnar. En það var einmitt með tilkomu brúarinnar sem grunnur var lagður að þéttbýli á þessum stað. Árið 1891 var lokið við brúarsmíði yfir Ölfusá, sem þá var mesta mannvirki á landinu. Hér urðu þáttaskil í verslun- ar- og samgöngumálum héraðsins. Eyrarbakki sem áð- ur hafði verið miðstöð verslunar og samgangna (sigl- inga) á Suðurlandi missti smám saman hlutverk sitt. Sunnlendingar tóku að sækja til Reykjavíkur um Ölfus- árbrú. Að vísu var byggðaþróun mjög hæg fyrstu ára- tugina, hið fyrsta var greiðasala í Tryggvaskála því hér varð strax áningarstaður ferðamanna. Lengi var talað um staðinn sem Skálann eða við Ölfusárbrú eða bara Brú. Húsið Tryggvaskáli sem enn stendur við brúna er að stofi til sá sami skáli, sem í upphafi var reistur sem vinnuskúr fyrir brúarvinnumenn. Áriö 1920 var byggð efri hæðin og innréttuð gistiherbergi og fundarsalur. Verslunarrekstur hófst hér árið 1907 í Sigtúnum. Þró- unin hélt hægt áfram, örfá hús kúrðu hér á árbakkanum og það var fyrst um og eftir 1930 sem hin raunverulega uppbygging hófst. Árið 1929 tók Mjólkurbú Flóamanna til starfa og 1930 var Kaupfélag Árnesinga stofnað og sama ár var reist hús Pósts og síma, en þangað til haföi símstöð verið í Tryggvaskála. Hér meö var Selfoss orð- inn miðstöð þjónustu fyrir héraðið. Uppbygging atvinnu og byggðar hófst fyrir alvöru, sú byggð var staðsett í þremur hreppsfélögum, Sandvíkurhr., Hraungerðishr. ogÖlfushr. Selfosshreppurvarstofnaðurformlega 1946 og fyrstu hreppskosningar haldnar 26. janúar 1947. Það ár voru íbúar 714 en áriö 1986 3.714. Kaupstaðarréttindi hefur Selfoss haft síðan árið 1978. Selfoss varð til sem þjónustumiðstöð fyrir Suðurland og því hlutverki hefur hann haldið vegna legu sinnar um þjóðbraut þvera í orðsins fyllstu merkingu því þjóðvegur nr. 1, Suðurlandsvegur, liggur í gegn um bæinn. í upp- hafi var atvinna Selfossbúa að mestu tengd þjónustu ýmiss konar við landbúnaðinn í sveitunum í kring. Nokk- uð hefur þrengt að þessum greinum á s.l. árum um leið og þrengt hefur að landbúnaði í sveitunum. Þá hefur einnig haft mikil áhrif sú staðreynd að mest öll vinnsla landbúnaðarafurðanna úr héraðinu fer nú fram í Reykja- vík, og vitanlega fluttust atvinnutækifærin með. Hins vegar hefur hlutverk Selfoss í menningar- og menntun- armálum svæðisins vaxið og getum við bæjarbúar fagn- að því. Með tilkomu Fjölbrautaskóla Suðurlands má telja Selfoss skólabæ meö nokkrum rökum. Að vísu 34

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.