Vera - 01.10.1989, Blaðsíða 11

Vera - 01.10.1989, Blaðsíða 11
ER SEKTARKENNDIN Guöfinna Eydai er sálfrœöingur og sér- frœöingur í klínískri sálarfrœöi. Frá árinu 1983 hefur hún rekiö Sál- frœöistööina ásamt Álfheiði Steinþórs- dóttur en þar vinna þœr mesf með ein- staklingsmál og hjóna- og skiln- aöarmál, auk þess sem þœr sinna margháttaöri frœðslustarfsemi og námskeiöahaldi. VERA talaöi viö Guöfinnu til aö fá sýn sáifrœöingsins á sektarkennd kvenna. I samrœöum kvenna um lífiö og tilveruna kemur mjög oft f ram aö þœr eru haldnar sektarkennd eöa samviskubiti vegna barna sinna. Þœr upplifa togstreitu milli vinnu og heimilis og finnst þœr á hvorugum staönum standa sig nógu vel. Þegar fariö er aö kryfja þessi hugtök nánar geng- ur konum engu aö síöur oft illa aö skilgreina þau. Hvaö er létt- vœgt og hvaö er djúpstœtt? Hvaö er eölilegt og hvaö á ekki rétt á sér? Hvernig skilgreinir þú þessi hugtök? Samviskubit og sektarkennd eru í raun tvær hliðar á sama máli, en það eru oftast smámunir sem valda okkur samviskubiti, t.d. þegar við gleymum að gera eitthvað sem við höfum tekið að okkur, á meðan sektarkenndin ásækir okkur af mun rneiri hörku. Samviskubit og sektarkennd eru ekki vísindaleg hugtök og þess vegna getur verið erfitt að ræða um þau og skil- greina þau til hlítar. Hér er alltaf um að ræða ákveðið hugarástand sem verður til vegna þess að við lifum ekki samkvæmt ákveðnum reglum eða boðuni sem okkur er ætlað að lifa eftir. Sérhvert samfélag, menning og hver fjölskylda hefur einhverjar sameiginlegar reglur sem á að fara eftir, boð og bönn skrifuð eða óskrif- uð. Þegar talað er um sektarkennd og hvernig hún ásækir fólk, þá má lýsa henni á þann veg að hún sé eins og kviksandur sem dregur okkur lengra og lengra niður. Það er mjög erfitt að losna við hana ef hún hefur náð tök- um á okkur. Viö hvaöa aöstœöur er sekfar- kenndin likleg til aö hrella okkur? Sektarkennd verður ævinlega til vegna innri sálrænna átaka — innri togstreitu. Maður finnur að maður vill eitt en gerir eitthvað annað. Þá getur sektarkenndin blómstrað. Það er hins vegar nauðsynlegt að greina milli raunverulegrar sektarkenndar og óraunverulegrar eða „neurotískrar" sektarkenndar. Við getum tekið dæmi: Við vitum oft að sambandið við börnin okkar er ekki eins og við vildum hafa það, það er ekki eins og við álítum að samband móður og barns eigi að vera. í þessu tilfelli þarf fyrst að gera sér grein fyrir því hvað það er sem ekki er nógu gott, hvaða lífsgildi það eru sem börnin fá ekki uppfyllt o.s.frv. Ef þetta liggur ljóst fyrir höfum við allar forsendur til að finna fyrir raunverulegri sektarkennd t.d. ef við komumst að því að barnið vantar stöðugleika, djúp og varanleg tengsl við þá fullorðnu og getur ekki treyst sínum nánustu tengslum nógu vel. Raunveruleg sektarkennd örvar jákvæða þróun og hefur gjarnan í för með sér ákveðnar ráðstafanir og framkvæmdir. Ef unnið er úr sektar- kennd getur jákvæð þróun átt sér stað, ef ekki virkar hún lamandi. Oft festumst við hins vegar í tilfinninga- legri óreiðu. Við höfum ekki skýrt fyrir okkur hvað er rangt og hvað er að. Við festumst í togstreitu sem er ómeðvituð — hálf „neurotísk" — og reynurn oft að kaupa okkur frið fyrir sektarkenndinni með því t.d. að setja börnunum okkar ekki mörk og kunnum ekki að aga þau til og örva á réttan hátt. Börn borga oftar en ekki óraunhæfa sektarkennd foreldra fullu verði. Hvorl heldur þú aö sé algengara hjá konum, raunhœf eöa óraun- hœf sektarkennd? Það má kannski segja að margir for- eldrar og þá ekki síst konur — gjarn- an velmenntaðar — séu meistarar í 11

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.