Ritmennt - 01.01.1996, Blaðsíða 25
RITMENNT
VEITUSTOFNUN ÞEKKINGAR
verið tölvuvæddar. Spjaldskrár eru horfnar. Tölvukerfi safnanna,
Gegnir, sem tekinn var í notkun 1991, hefur leyst þær af hólmi.
Starfshópar og nefndir hafa unnið að margvíslegum viðfangsefn-
um varðandi bygginguna, sameiningu safnanna og rekstur, og
sjálfir flutningar ritakostsins hafa staðið allt þetta ár. Ég færi öllu
starfsfólki safnanna þakkir fyrir ötult starf og ósérhlífið. Einnig
ber að þalcka langt samstarf við hönnuði hússins, byggingar-
nefnd, eftirlitsmenn með framkvæmdum, og aðra þá sem að hafa
unnið.
Þess skal einnig minnst að þrátt fyrir hægagang við byggingar-
framkvæmdir lengst af hafa einstakir stjórnmálamenn og ríkis-
stjórnir unnið ötullega að framgangi málsins, nú síðast Olafur G.
Einarsson menntamálaráðherra og ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
sem setti sér það mark að ljúka byggingunni á kjörtímabilinu.
Þetta nýja safn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Islands.
Það starfar á landsvísu og er því veigamikill hlelckur í bólcasafns-
kerfi landsins.
Safninu er samkvæmt lögum ætlað milcið hlutverk. Það þaul-
safnar íslensku prentmáli, heldur uppi safni handrita og annars
fágætis. Það sinnir rannsóknum á sviði bókfræði, bókaútgáfu og
bókasafnsmála. Það greiðir safngestum leið að upplýsingum,
hvort heldur þær er að finna innan veggja safnsins eða þeirra er
leitað annars staðar á heimsbyggðinni. Það stuðlar með gögnum
sínum og gæðum að sjálfstæði og frumlcvæði háskólanema við
þekkingaröflunina og eylcur með því færni þeirra og þroska.
Safnið er veitustofnun þekkingar í þágu atvinnuvega, stjórnsýslu
og rannsóknarstarfsemi og stuðlar þannig að hagsæld og sam-
keppnishæfi þjóðarinnar. Það styður listir og menningarlíf og
heldur dyrum sínum opnum fyrir þeim sem viðhalda vilja þekk-
ingu sinni og sækja sér nýja hvenær sem er á lífsleiðinni.
Hér hef ég talað í fullyrðingum og í krafti rílcra fyrirheita, of
ríkra gæti margur sagt. Eigi að síður er þó þeirra kosta völ sem
hér hafa verið nefndir ef sarnan fer atorka, hagkvæmni í rekstri
og dyggur stuðningur þings og samfélags. Þjóðin hefur beðið
þessarar stundar lengi og ég er þess fullviss að hið nýja þjóðbóka-
safn sem við opnum hér í dag á stuðning hennar vísan.
21