Ritmennt - 01.01.1996, Blaðsíða 37
RITMENNT
CARL CHRISTIAN RAFN
af félagsgjöldum nemi 600 dölum á síðasta
reikningsári. Þetta vor sendi Fornfræða-
félagið fyrsta hluta Ólafs sögu til íslands og
Þorgeir vonaðist til þess að hún væri svo úr
garði gerð að landsmönnum litist vel á.24
Fornfræðafélagið lét eklci deigan síga eftir
að útgáfu Ólafs sögu Tryggvasonar var lok-
ið. Árið 1829 kom út fyrra bindið af Sögu
Ólafs konungs hins helga. Það síðara kom
út árið eftir. í því voru Þættir er viðkoma
sögu Ólafs konungs helga.
Tilhögun útgáfunnar var með sama sniði
og áður. í lok formálans var gerð grein fyrir
því hverjir lögðu þar hönd að verki:
I’orgeir Guðmundsson hefir afskrifað alla söguna
lílca viðuraukana og þættina, að því undanteknu,
að prófessor dr. Rafn ... hefir skrifað Eymundar-
þáttinn, en sá fyrrnefndi og Þorsteinn Helgason
hafa samanborið öll handritin; hefir þá og pró-
fessor Rafn leiðrétt hvörja aðra próförk af sög-
unni, en cand. Guömundsson, hvörja fyrstu og
þriðju próförk, hefir hann og búið til registrin við
söguna.25
Sjötta bindi Fornmanna sagna kom út
árið 1831 og hafði að geyma Sögur Magnús-
ar konungs góða, Haralds konungs harð-
ráða og sona hans. í formála kemur fram að
Þorgeir Guðmundsson „hefir útskrifað allan
textann" og borið hann saman við handrit
ásamt Rask og lesið fyrstu próförk. Rask las
aðra og þriðju próförk.26
Sjöunda bindið kom út 1832. í því voru
Sögur Noregs konunga frá Magnúsi ber-
fætta til Magnúss Erlingssonar. Þegar hér
var komið sögu hafði Raskdeilan svonefnda
geisað. í lok formála var gerð grein fyrir
þeim sem séð höfðu um útgáfuna með þess-
um orðum:
Textinn allur í þessu bindi er útskrifaður úr
skinnbólcunum af menntuðum Islendingi, en þar
næst nálcvæmliga samanborinn við skinnbæk-
urnar sjálfar og leiðréttur þar eftir af ... R. Rask
... Registrið er tilbúið af ungurn íslenskum stú-
denti.27
Áttunda bindi Fornmanna sagna kom út
1834 og hafði að geyrna Sögu Sverris kon-
ungs. Útgáfan var að því leyti frábrugðin
fyrri útgáfum Fornmanna sagna að þar er
gerð grein fyrir handritum sögunnar í löngu
máli. Finnur Magnússon vann að útgáfunni
ásamt Rafni og segir svo um verkaskiptingu
þeirra í formála:
Sjálfur texti þessa hindis er útskrifaður, eftir
aðalritinu (A), af prófessori C.C. Rafn er einnig
hefir hann aftur við það samanlesið, en prófessor
og leyndarskjalavörður konungsins, Finnur
Magnússon, hefir borið hann saman við hinar
skinnbækurnar og viðbætt mismunargreinun-
um; líka hefir hann útskrifað þau blöð, er vant-
aði í aðalritið, eftir Eirspennli (G); báðir hafa þeir
lesið prófarkirnar, svo og yfirvegað og ákvarðað
hvör orð eður atriði röng virtist í A, og hvör aft-
ur ætti, í þeirra stað, úr hinum bókunum að
setja.28
Sverris saga var fyrsta sagan sem Finnur
Magnússon lagði hönd að í útgáfu Forn-
manna sagna svo að um sé getið. Sú breyt-
ing varð á útgáfu á Sögum Hákonar Sverris-
sonar, Guttorms Sigurðarsonar, Inga Bárð-
arsonar og Hákonar Hákonarsonar til falls
Skúla hertoga, sem eru í níunda bindi Forn-
manna sagna, að þar var hvergi tilgreint í
24 Lbs 339 b fol.
25 Fornmanna sögur IV, bls. 26.
26 Sama rit VI, bls. 4.
27 Sama rit VII, bls. 8.
28 Sama rit VIII, bls. xxxvii-xxxviii.
3
33