Ritmennt - 01.01.1996, Blaðsíða 91
RITMENNT
HARALDUR SIGURÐSSON
Ríkulegastur ávöxtur þeirra er hið mikla ritverk Haralds,
Koitasaga íslands, sem kom út í tveimur stórum bindum 1971
og 1978. í tengslum við rannsóknir sínar hafði Haraldur safnað
miklu af ritum um kortafræði og sltyld efni. Þau hjónin höfðu
fyrir alllöngu tekið þá ákvörðun að færa Landsbókasafni þennan
hluta bóka sinna og var skýrt frá gjöfinni við opnun Landsbóka-
safns Islands - Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðu 1. desember
1994. Hefur ritunum nú verið komið fyrir í hinum nýju húsa-
kynnum þar sem þau mynda mikilsverðan stofn sérstakrar
kortadeildar sem verið er að koma upp í bókasafninu.
Störf Haralds og áhugamál voru nátengd því besta sem ísland
hefur upp á að bjóða. Menningarsagan, bókmenntirnar og ekki
síst náttúra landsins og óbyggðir þess voru yndi hans. Haraldur
var nátengdur starfi Ferðafélags íslands, ferðaðist mikið á vegum
þess, m.a. sem fararstjóri, og lagði Árbók þess lið um áratuga-
skeið, bæði sem höfundur og ritnefndarmaður. Milcið orð fór af
framgöngu Haralds, úrræðum og fyrirhyggju þegar hann gekk
urn landið með félögum sínum fyrr á árurn. Þegar aldur færðist
yfir tóku fætur hans að bila en eftir aðgerð á hnjám hélt hann þó
uppteknum hætti svo lengi sem hann gat. Og Haraldur naut þess
einnig að bregða sér í ferðir til útlanda. Minnist ég þess til að
rnynda að hafa hitt hann óvænt klífandi háan turn suður á Ital-
íu og var hann þá hátt á áttræðisaldri.
Haraldur var í stjórn Bókavarðafélags Islands frá stofnun þess
1960 og til ársins 1969, formaður þess 1965-69. Minnist stétt
bókavarða með þakklæti starfa hans fyrir félagið á þessum árum.
Haraldur varð margháttaðra viðurkenninga aðnjótandi vegna
fræðiiðkana sinna og starfa að félagsmálum. Hann var að verð-
ugu sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Islands árið
1980 fyrir hið rnikla ritverk Kortasögu Islands og önnur fræði-
störf. Vegna starfa sinna í þágu Ferðafélags Islands var Haraldur
kjörinn heiðursfélagi þess á áttræðisafmæli sínu 4. maí 1988 og
á sömu tímamótum tileinkaði félagið honum útgáfu á Ferðabók
Magnúsar Grímssonar fyrir sumarió 1848. Löngu áður, eða á
fimmtugsafmæli Haralds, stóðu vinir hans að afmælisriti hon-
um til heiðurs sem nefnist Vorlöng. Slcömmu fyrir andlát Har-
alds kjöri Sagnfræðingafélagið hann heiðursfélaga.
Áður er getið um þá ráðstöfun þeirra Haralds og Sigrúnar að
gefa Landsbókasafni þann hluta bókasafns síns sem lýtur að
Haraldur Sigurðsson. Myndin
var tekin árið sem hann lét af
störfum í Landsbókasafni.
87