Ritmennt - 01.01.1996, Side 65
RITMENNT
Franskir sjómenn stunduðu veiðar við ísland og
þeim var óhjákvæmilegt að hafa sjókort af
ströndinni og hafinu umhverfis það.
Cassini, Giovanni Maria (um 1745-
1824/30). L'Isola d'Islanda. 1796. (34x47,2
sm)
Eftirmynd íslandskorts Antonios Zattas. Kortið
birtist í öðru bindi Nuovo atlante geografico
universale sem kom út á árunum 1792-1801.
Cloppenburg, Johannes (1592-1652). Is-
landia. 1630. (18,3x25,2 sm)
Ur útgáfu Cloppenburgs á smákortaatlas
Mercators, L'Atlas de Gerard Mercator.
Coronelli, Vincenzo (1650-1718). Frislanda.
1692-94. (22,5X30 sm)
Fríslandi bregður fyrir á mörgum gömlum kort-
um sem sýna Norður-Atlantshaf og löndin þar í
kring. Á Zeno-kortinu skipar það stóran sess.
Fræðimenn hafa löngum deilt um hvað eyjan
eigi að tákna. Flestir töldu fyrst að hún væri
Færeyjar en aðrir sögðu hana tvífara Islands. En
nú telja menn líklegast að hún sé sambland úr
báðum löndum. Kortið er úr Corso geografico
universale eftir Vincenzo Coronelli og er eftir-
gerð hluta Zeno-kortsins.
Coronelli, Vincenzo (1650-1718). Isola
d'Islanda. 1692-94. (22,6x30 sm)
Kort úr Corso geografico universale. ísland er
minnkuð eftirmynd af korti Jorisar Carolusar.
Coronelli, Vincenzo (1650-1718). Terre art-
iche/Oceano Scitico, settentrionale, e
glaciale. 1692-94. (37x35,7 sm)
Pólkort eftir Vincenzo Coronelli úr Corso
geografico universale. Kortið nær aðeins yfir
allra nyrstu svæðin svo Island er ekki á því.
Duval, Pierre (um 1619-1683). L'Islande.
1731. (10,7X13,2 sm)
SKRÁ UM ÍSLANDSKORT KJARTANS GUNNARSSONAR
Kom fyrst út í París 1663 og fylgdi þá bók Isaacs
de la Peyréres, Relation de l'Islande. íslandslýs-
ing la Peyréres varð síðan hluti ferðasögusafns
úr Norðurvegi, Recueil de voyages au Nord.
Kortið er úr útgáfu á því safni árið 1731.
Fer, Nicolas de (1646-1720). Pais qui
Dependent de la Norvege. Urn 1720?
(18X29,8 sm)
De Fer var bókaútgefandi, eirstungu- og korta-
gerðarmaður í París. Island er aðeins lítill hluti
af kortinu.
Gemeine Beschreibung aller Mitnáclrtigen
Lánder/alszSchweden/Gothen/Norwegien/
Dennmarck/rc. 1588 og seinna. (31 X 36 sm)
Kosmógrafía Sebastians Munsters var gefin út af
stjúpsyni hans, Henri Petri. Þegar hann lést árið
1579 tók Sebastian, sonur hans, við útgáfunni.
Hann lét endurnýja kort bókarinnar áður en
hún var gefin út að nýju en ekki er vitað hver
tók verkið að sér. Norðurlandakort Munsters
birtist nú í gjörbreyttri mynd og líkist mjög
korti Abrahams Orteliusar af Norðurvegum
enda var það kort fyrirmyndin.
Gliemann, Theodor (1793-1828). Charte
von Island. 1824. (21,5 X29,3 sm)
Gliemann var einn af þeim fyrstu sem tóku upp
hina nýju íslandsgerð sem varð afrakstur strand-
mælinganna hcr við land í byrjun 19. aldar. Úr
Geographische Beschreibung von Island.
Goos, Pieter (um 1616-1675). De Custen
van Noorwegen, Finmarcken, Laplandt,
Spitshergen, Ian Mayen Eylandt, Yslandt,
als rnede Hitlandt, en een gedeelte van
Schotlandt. 1663 og seinna. (44,5 X 54,3 srn)
Sjókort af Norðurhöfum og löndunum þar í kring
úr De Lichtende Columne ofte Zee-Spiegel. Það
er eitt af fjölmörgum slíkum af þessum slóðum
sem gerð voru í Hollandi á 17. og 18. öld. ísland
er með svipuðu sniði á flestum kortunum.
61