Ritmennt - 01.01.1996, Side 85
RITMENNT
EIMREIÐIN
Eimreiðar ! hjálpi oss sá sem vanur er. Þyrilinn
þykist eg þekkja, en ekki man eg eftir að eg hafi
séð argari leirburð um nokkuð fjall, heldur en
lcvæði Jakobs Smára um Þyril og hin kvæðin eru
lítið betri.21
Vegna áhrifa nýrómantísku stefnunnar
fara menn að gefa þjóðlegum fróðleik gaum
og sjást þess glögg merki í Eimreiðinni.
Greinar í fyrstu árgöngum hennar eru m.a.
urn þjóðtrú og fornar íslenskar hefðir.
Greinar, oftast með myndum, um listir
og listamenn fá einnig rúm. Vildi Eimreiðin
styðja fagrar íslenskar listir og efla smekk
manna og tilfinningu fyrir þeim.
í sex fyrstu árgöngunum er skipting efnis
eftirfarandi:
íslensk ljóð 51
Erlend ljóð 20
íslenskar smásögur 11
Erlendar smásögur 13
Greinar um bókmenntir 15
Þjóðfræði 3
Ritdómar urn bókmenntir 38
Greinar um þjóðfélagslegt efni 18
Fræðandi efni 32
Tími breytinga
Ekki er ljóst hvort áðurnefnt stríð við Boga
Melsteð varð til þess að Valtýr vildi losa sig
við Eimreióina, en svo mikið er víst að
hann reyndi að kaupa alla hluthafa hennar
út og sendir bréf til þeirra þann 5. október
1905. í því segir hann svo:
Með því að ég er orðinn þreyttur á að vinna að
útgáfu Eimreiðarinnar og óska því að liafa full
eignarráð yfir henni til að geta selt hana öðrum,
ef svo vill verkast, hefi ég ákvarðað að nota mér
rétt þann, sem mér er áskilinn í aths. 3 á hluta-
Atalier Moderne. - Tjóðminjasafn íslands.
Sigfús Blöndal (1874-1950) var bókavörður við Kon-
unglega bókasafnið í Kaupmannahöfn. Hann þótti
mikill lærdómsmaður og er þekktur fyrir íslensk-
dönsku orðabókina. Hann þótti líklegur eftirmaður
Valtýs við háskólann, en það varð þó ekki.
bréfum hennar til að kaupa eða innleysa hvert
hlutabréf við fullu ákvæðisverði (25 kr.) hvenær
sem ég óska þess.
Þó að enginn ágóði hafi orðið af útgáfunni
hingað til beinlínis, býst ég samt við, að svo mik-
ið mundi nást inn af útistandandi skuldum eða
koma inn fyrir ritið, væri það selt með þessum
skuldum og bókaleifum, að nema mundi nokkru
meira en hlutafénu. Ég álít mér þvf óhætt að
bjóðast til að innleysa hvert 25 kr. hlutabréf með
30 kr., svo að hluthafar fái 20% eða sem svarar
21 Bréfasafn Valtýs Guðmundssonar.
6
81