Ritmennt - 01.01.1996, Page 126
LÖG UM LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS - HÁSKÓLABÓKASAFN
RITMENNT
□ Enn fremur getur bókasafnið með sam-
þykki menntamálaráðuneytis gert sam-
komulag við aðrar stofnanir um að litið sé á
ritakost þeirra sem hluta af íslenskum þjóð-
bókakosti.
10. grein
□ Bókasafninu er heimilt að taka gjald fyrir
ákveðna þætti þjónustunnar, svo sem milli-
safnalán, tölvuleitir, sérfræðilega heimilda-
þjónustu, fjölföldun hvers konar og úttak
tölvugagna. Gjaldslcrá vegna þessarar þjón-
ustu skal háð samþykki stjórnar bókasafns-
ins.
IV. lcafli. Ýmis ákvæði
11. grein
□ Heimilt er að grisja efniskost bókasafns-
ins og farga eða ráðstafa til annarra aðila því
efni sem hókasafnið telur sig ekki lengur
þurfa á að halda. Landsbókavörður setur
reglur um slíka grisjun að fengnu samþyklci
stjórnar bókasafnsins.
12. grein
□ Menntamálaráðherra skal með reglugerð
setja nánari ákvæði um framkvæmd þessara
laga. I reglugerð skal m.a. mælt fyrir um
starfshætti bókasafnsins, starfssvið stjórn-
enda þess og stjórnarfundi og boðun þeirra.
Þá skal nánar kveðið á um form og efnistök
umsagna sem mælt er fyrir um í 1. máls-
grein 3. greinar og 1. málsgrein 4. greinar
laganna.
Um ákvæði 3. málsgreinar má vísa til nýlegs sam-
komulags bankastjórnar Seðlabanka Islands annars
vegar og Landsbókasafns íslands og Háskólabókasafns
hins vegar, með samþykki menntamálaráðuneytis, um
að litið sé á varðveisludeild hins vandaða bókasafns
Seðlabankans sem hluta af íslenskum þjóðbókakosti.
Slíkt samkomulag dregur þó í engu úr þeim skyldum
sem lagðar eru á þjóðbókasafnið samkvæmt II. kafla
þessa frumvarps.
Um 10. grein
Bókasafninu er veitt heimild til þess að taka þjónustu-
gjöld fyrir ákveðna þætti þeirrar þjónustu sem veitt er,
svo sem millisafnalán, tölvuleitir, sérfræðilega heim-
ildaþjónustu, fjölföldun, úttak tölvugagna o.fl. Með
gjaldskrá sem háð er samþykki stjórnar safnsins er
kveðið á um fjárhæð þeirra þjónustugjalda sem greiða
skal fyrir þessa þjónustu. Þar sem hér er aðeins um að
ræða lagaheimild til töku þjónustugjalda skal þess
gætt við ákvörðun gjaldanna að þau séu ekki hærri en
sá kostnaður sem almennt hlýst af því að veita um-
rædda þjónustu.
Um 11. grein
í 11. grein er ákvæði um grisjun efniskosts bókasafns-
ins, en ætlunin er að landsbókavörður setji reglur um
hana og þær hljóti samþykki stjórnar safnsins. Ákvæði
þessa efnis er nauðsynlegt vegna þess meðal annars, að
ýmis rit bókasafnsins úreldast með tímanum.
Um 12. grein
í 12. grein er fjallað um heimild menntamálaráðherra
til þess að setja nánari ákvæði um framkvæmd laganna
í reglugerð. Hér að framan hefur verið getið nokkurra
atriða sem mælt skal fyrir um í reglugerð samkvæmt
öðrum greinum laganna.
Um IV. kafla
222