Vera - 01.11.1995, Qupperneq 6
frmkvööullinn
íþróttafélag kvenna var stofnaö í
Reykjavík árið 1934 og starfar það félag
enn af fullum krafti. Það var Unnur
Jónsdóttir íþróttakennari sem stofnaði
félagið eftir að hafa verið látin víkja fyrir
karlmanni við íþróttakennslu kvenna í KR.
Unnur Jónsdóttir fæddist sautjánda ágúst
1907 og stundaði nám við Paul Petersens
Institut í Kaupmannahöfn. Hún var
formaður Í.K. 1934-1945 og 1947 - 1949.
Unnur Jónsdóttir í hópi
KR-kvenna sem hún
kenndi leikfimi þar til
KR-ingar ákváðu að láta
karlmann fá hennar
stöðu.
Unnur Jónsdóttir starfaöi
sem fimleikakennari hjá
Knattspyrnufélagi Reykja-
víkur og kenndi konum
leikfimi - en þegar
ákveðið var að veita
karlveru stöðuna sem
hún hafði gegnt vildi hún
ekki una því og hætti.
Taldi hún ekki einungis
að brotið væri á sér - heldur væru konur mun
hæfari til að kenna kynsystrum sínum leikfimi
heldur en karlar. Ákvað hún því að stofna
íþróttafélag sem eingöngu væri ætlað konum
og þann sjöunda október 1934 var íþróttafélag
kvenna stofnað. Á stofnfundinum gengu 60
konur í nýja félagið, m.a. konur úr K.R. sem
höfðu stundað leikfimi hjá Unni um nokkurt
skeið og lýstu þær þar með yfir stuðningi sínum
við hana.
Á stofnfundinum kom fram að nauðsynlegt
væri að stuðla að aukinni íþróttaiðkun kvenna,
en íþróttum fyrir konur var lítið sinnt af íþrótta-
hreyfingunni. Það er ekki fýrr en á seinustu
árum sem farið er að líta á þátttöku kvenna í
íþróttum sem sjálfsagöan hlut og var íþrótta-
félag kvenna því nokkurskonar brautryðjandi á
því sviði.
1 lögum félagsins sem samþykkt voru á
stofnfundinum kemur í Ijós að þetta voru
ákveðnar félagskonur með háleit en jafnframt
raunsæ markmið. í 2. gr. segir t.d. „Tilgangur
félagsins er, að efla hreysti, heilbrigöi og
fegurð íslenzkra kvenna. Þessu hyggst félagiö
aö ná með því að iðka fimleika, sund og aðrar
tþróttir, svo sem knattleiki, hlaup, skíða- og
skautaferöir, fjallgöngur, o.s.frv." í gegnum
árin hafa félagskonur Í.K. boðið upp á fjöl-
margar íþróttagreinar en trúlega er Japanska
glíman sú óvenjulegasta, en til landsins kom
erlendur kennari áriö
1956-1957 til að kenna
þeim réttu tökin.
í október í fyrra varö
félagið 60 ára og var haldin
vegleg afmælisveisla af því
tilefni. Um leiö var farið í
kynningarátak og bættust
þá viö fjölmargar konur sem
starfa nú meö félaginu.
íþróttafélag kvenna stofnaði
síðastliðið haust blakdeild
sem mikill kraftur er í og tók
m.a. þátt í stærsta blak-
móti ársins, þ.e öldunga-
mótinu, sem haldið var
norður á Akureyri síðastliðið
vor. í blakliðinu voru hörku
konur og létu fjórar þeirra
það ekki aftra sér að þær
væru barns-hafandi og því
var oft á tíöum nærri tvöfalt
lið á vellinum! Ef félagið
heldur áfram að fá til liðs
við sigjafn öflugar konur og
hafa starfað með því undan-
farin 60 ár er Ijóst að sá
hópur sem lagöi grunninn
að þessari starfsemi - með
Unni Jónsdóttur í fararbroddi - hefur unnið
gífurlegt starf í þágu kvenna.
Agla Sigríður Björnsdóttir
(Heimild: Iþróttafélag kvenna
Anna Margrét Jóhannesdóttir, 1994 )