Vera - 01.11.1995, Blaðsíða 35

Vera - 01.11.1995, Blaðsíða 35
ingar og Ástralir flesta notendur en Bandaríkin telja flesta notendur. Einn stórgalli á Internetinu er skipulagsleysiö. Þessi samskiptafrumskógur er mjög flókinn og erfitt fyrir nýja notendur aö rata um hann og finna þaö sem þeir leita aö. Til aö taka á þessu vanda- máli hafa komið fram ýmis tæki og tól til aö skipu- leggja Internetiö og gera þaö aðgengilegra fyrir al- menning. Tvennt hefur aöallega valdið grundvallarbreytingum, annars vegar gagnasafniö Gopher og hins vegar World Wide Web eða Verald- arvefurinn. Meö tilkomu Gopher fór fólk fyrst aö nýta sér netið verulega. Þessi notkun hefur slðan stóraukist meö tilkomu Veraldarvefsins sem mætti kalla arftaka Gopher, þótt Gopher sé enn til staöar. Viömót vefsins byggist á svokölluöum heimasíöum sem geta innihaldið texta, myndir og í raun hvaö sem er til aö vekja áhuga notandans. Á heimasíðunum eru svo tilvísanir í allar áttir sem menn geta valiö meö því aö smella á upplýstan texta og þannig fengiö þaö sem textinn vtsaöi á. Meö því aö rekja sig eftir þessum tilvísunum geta menn ferðast um vefinn út og suöur, ýmist milli slöna eða til að sjá þaö sem hugurinn girnist. Helsti gallinn viö aö afla sér gagna eða ferðast um vefinn er hversu mikill tími fer I aö blöa eftir sambandi viö tengingar. Orsök þess er sjálfsagt sú mikla aukning sem hefur oröiö og sú stað- reynd aö flutningur þess byggist á símalínum og mótöldum sem einfaldlega anna ekki því álagi sem myndast þegar margir eru um hituna. En hlutirnir gerast hratt I tölvuheiminum og búast má við lausn á þessu vandamáli. Hvernig tengist ég Internetinu? Til að tengi'ast Internetinu þarf aö hafa: tölvu, símalínu og mótald. Flestar Macintosh tölvur ættu aö geta tengst en fyrir PC-tölvur er lágmarks tölvubúnaður 386-tölvur. Vinnsluminniö I tölvun- um þarf aö vera a.m.k. 4 megabitar. Afkastageta mótalds þarf að vera minnst 14.400 bps til að geta skoðaö Veraldarvefinn. Mótaldiö sendir merki frá tölvunni eftir símallnunni og þarf þvl bæöi aö vera tengt viö tölvuna ogí símalínuna. Til þess aö þaö sé hægt veröur aö opna reikning eöa gerast áskrifandi hjá þjónustuaöila sem hefur aö- gang aö Internetinu og öölast þannig aögang eöa tengingu. Töivukerfi heims eru tengd saman gegnum nokkrar meginmiðstöövar og sá þjón- ustuaðili sem útvegar aögang aö Internetinu teng- ir viðkomandi viö sllka miöstöö. Þjónustuaðilar sem selja aögang aö netinu útvega einnig réttan hugbúnaö. Þjónustuaðilar á Islandi eru m.a ís- lenska menntanetiö, Reiknistofnun Háskólans, Nýherji og Miöheimar. Hvað er á Internetinu? Á Internetinu færðu aðgang aö ótakmörkuöum fjölda upplýsinga um nánast allt sem hugurinn girnist, s.s. gagnasöfn, bókaskrár, bækur, frétta- þjónustu, tlmarit, fræöigreinar og margt fleira. Margir, bæöi einstaklingar, hópar, stofnanir eða fyrirtæki koma þar á framfæri varningi, upplýsing- um eða hugmyndum. Til dæmis notar Green- peace Internetiö til að koma boðskap sínum á framfæri sem og Bill Clinton. Söluaðilar eru einnig duglegir aö markaðs- setja varning sinn á Internetinu og má meöal ann- ars versla I matinn hjá Hagkaup eöa Bónus og jafnvel panta sér pítsu. Rafrænn póstur eða e-mail er einnig mjög vin- sæll en með honum er auðveldlega hægt að senda póst og fá póst milli tölva, bæöi skjöl, bréf og bækur. Meö Internettengingu fæst einnig aö- gangur aö „Usenet“ eða samræðuhópum og eru þeir fjölmargir. Meðal annars má nefna: Nýtt efni á Internetiö kemur daglega og fer algjör- lega eftir notendum sjálfum. Eflaust finnst sum- um margt efni fara út fyrir öll velsæmismörk en eitt er vlst aö allir ættu aö finna eitthvað viö sitt hæfi á Internetinu þótt I mismiklu magni sé. Hvernig finn ég efni á Veraldarvefnum? Eins og hér hefur komiö fram er oft erfitt aö finna upplýsingar á Veraldarvefnum. Nýlega hafa oröið til gagnagrunnar sem hafa gert atriðaorðaskrá um ýmislegt sem hægt er að finna á vefnum. Engir þeirra ná þó yfir allt þaö efni sem til er á Internet- inu enda ómögulegt. Yahoo er einn þessara gagnagrunna sem þægilegt er að leita á. Þetta er efnisskrá veraldar- vefsins og í september 1995 hafði skráin að geyma meira en 50.000 heimaslður. Þegar leitaö er á Yahoo er leitað eftir leitaroröum. Netfang Ya- hoo er: http://www.yahoo.com/ Annaö gott leitartæki er World Wide Web Worm (WWWW) netfang: http://www.es. colorado.edu/home/mcbryan/www.html- Á Intemetinu er einnig hægt aö fá upplýsingar um netið sjálft og má þar nefna „A Guide to Cyperspace". Þar er hægt að fá svör viö spumingum eins og „Hvaö er Intemet?" og „Hvemig rata ég um veraldarvefinn?" Net- fangiö en http://www.eit.com/web/www.guide/ Ef konur hafa ekki mikinn tlma til aö flakka um á Internetinu eöa eru I vafa um hvar þær eigi aö byrja veröur hér bent á nokkrar síður sem getur verið gaman aö skoða. Resources for Women: Þessi síöa hefur að geyma efni og heimasíður sem kvenréttindakonur og konur almennt gætu haft áhuga á. Þar er hægt aö fá upplýsingar um áhugaverða samræöuhópa, kvennaráðstefnuna I Kína, kvennasögu, brjóst- krabbamein, heimilisofbeldi og margt margt fleira. Netfangiö er: http://www.ibd.nrc.ca /-mansfield/feminist/resources.html Women’s Resources on the Intemet: Hefúr aö geyma upplýsingar ffá, um og fýrir konur á Intemetinu, s.s. uppeldi, kvenréttindi, kvennaráðstefnur, listir og tónlist. Frá síðunni er hægt aö tengjast öðrum heima- síöum. Netfangiö er: http://sunsite.unc.edu/cheryb /women/resources.html Guide to Useless WWW Pages: Hefur aö geyma skemmtilegan lista yfir ónothæfar upplýsingar og heimasíður sem finna má á Veraldarvefnum. Á slö- unni er hægt aö sjá margt áhugavert sem gaman getur veriö aö skoöa t.d. þegar manni leiöist heima hjá sér. Netfangiö er: http://www.primus.com.staff. paulp/useless.html Höfundur er nemi í sagnfi'teði og bókasafns- og upplýsingafi-œði. Hún hefiir tekið að sá'að annast nýjan þátt í blaðinu san við köUum „á netinu“. konur og veraldarvefurinn í nýlegri alþjóðlegri könnun kom í Ijós að konur voru aðeins 12% þeirra sem nota veraldarvefinn. Það er kannski ekki aö undra því flest það efni sem er á vefnum er þangað komið frá karlmönnum. Karlamenningin er mjög sterk á netinu t.d. er hægt að finna lista sem nefnast álíka nöfnum og: „Babes on the Web”. Þar hafa einhverjir „snilldarmenn" safnað saman upplýsingum um konur á netinu án þeirra vitneskju. Þessir listar eru vinsælir hjá mörgum eflaust einmana karlmönnum sem senda þessum konum netpóst i tíma og ótlma. En vefurinn fer stækkandi og ávallt bætist viö nýtt efni og kvennaefni fer fjölgandi svo ástæöulaust er fyrir konur að hverfa frá. Ýmislegt er þar áhugavert að finna. á n^tinu

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.